Fengu góð kjör í skuldabréfaútgáfu 14. júní 2006 06:30 Bjarni Ármannsson Forstjóri Glitnis á afkomukynningu vegna fyrsta ársfjórðungs þessa árs.
Glitnir banki gekk frá útgáfu víkjandi skuldabréfa í Bandaríkjunum að upphæð 500 milljónir Bandaríkjadala eftir lokun markaða vestra á mánudag. Útgáfan jafngildir um 37 milljörðum íslenskra króna og er til 10 ára með innköllunarákvæði eftir 5 ár af hálfu Glitnis. Kjörin sem bankinn fékk í útgáfunni eru 175 punktar yfir ávöxtunarkröfu 5 ára bandarískra ríkisskuldabréfa, sem sem svarar 123 punktum yfir LIBOR millibankavöxtum. Kaupþing banki gaf úr skuldabréf fyrir 1,25 milljarða dala fyrir um mánuði síðan með kjör upp á 200 punkta yfir ávöxtunarkröfu bandarískra ríkisskuldabréfa. "Þetta er ekki alveg sambærilegt en okkur reiknast til að kjörin hjá okkur núna séu um 30 punktum betri," segir Tómas Kristjánsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Glitnis. Hann segir kaupendur að stærstum hluta hafa verið bandaríska stofnanafjárfesta. Umframeftirspurn var eftir bréfunum og alls óskuðu fjárfestar eftir að kaupa fyrir 1.400 milljónir dala, eða sem svarar tæpum 104 milljörðum króna. Umsjón með útgáfunni höfðu alþjóðabankarnir UBS og Credit Suisse. Tómas segir ljóst að í Bandaríkjunum hugnist fjárfestum vel kaup á bréfum bankans. "Mönnum líst vel á skuldarann, verðið og þá sögu sem verið er að skoða," segir hann, en kveður enn nokkra óvissu ríkja í svokölluðum CDS-gildum, í álagi á skuldabréf bankanna á eftirmarkaði. "Þar er ennþá óvissa og verð sveiflast."
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Fleiri fréttir Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Sjá meira