Viðskipti innlent

Breytingar á Wyndeham

Úr prentsmiðju Wyndeham prss group Starfsemi fyrirtækisins hefur verið skipt upp í tvö svið.
Úr prentsmiðju Wyndeham prss group Starfsemi fyrirtækisins hefur verið skipt upp í tvö svið.

Starfsemi breska prent- og samskiptafyrirtækisins Wyndeham Press Group, sem Daybreak Acquisitions Limited, dótturfélag Dagsbrúnar á 94,5 prósenta hlut í, hefur verið skipt í svið útgáfulausna og svið markaðslausna.

Svið útgáfulausna mun veita útgefendum tímarita þjónustu en svið markaðslausna þjónustar fyrirtæki á neytendavöru-, þjónustu og smásölumarkaði.

Í tilkynningu Dagsbrúnar til Kauphallar Íslands er haft eftir Paul Utting, framkvæmdastjóra Wyndeham, að markmið endurskipulagningarinnar sé að viðskiptavinir fái aðgang að prentun og samskiptalausnum á einum stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×