Fjárfest í sænskum tölvusala 19. janúar 2005 00:01
Burðarás hefur eignast tæplega fimmtán prósenta hlut í sænska upplýsingatæknifyrirtækinu Scribona. Burðarás hafði eignast lítinn hlut í fyrirtækinu, en keypti 12,9 prósenta hlut fyrir um 900 milljónir króna. Scribona er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem selur bæði vélbúnað og hugbúnað. Vélbúnaðurinn er þó stærri hluti rekstrarins. Framlegð félagsins hefur verið slök undanfarin ár, en ráðist hefur verið í hagræðingu sem á að skila sér í bættum rekstri. "Við töldum fyrirtækið lágt metið," segir Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri Burðaráss, um kaupin. Scribona er með um fjórtán prósenta markaðshlutdeild í sölu á tölvubúnaði á Norðurlöndunum. Geirinn hefur verið í lægð að undanförnu, en mat Burðaráss er að skilyrði fari batnandi á þessum markaði samhliða því sem aðhaldsaðgerðir í rekstri muni skila sér. Þannig er veikur dollari hagstæður þar sem tæknivörur verða ódýrari í innkaupum. Kaupin í Scribona eru önnur kaup Burðaráss í Svíþjóð sem eru tilkynningarskyld. Friðrik segir það ekki merki um að Burðarás hafi augastað á sænskum fyrirtækjum öðrum fremur. Burðarás á stóran hlut í verðbréfafyrirtækinu Carnegie og í aðdraganda kaupa þess má gera ráð fyrir að sænski markaðurinn hafi verið tekinn til gaumgæfilegar skoðunar. Velta Scribona var 106 milljarðar og veltan fyrstu níu mánuði ársins 2004 nam 74 milljörðum króna. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði árið 2003 nam aðeins 0,8 prósentum af tekjum.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira