Þáttur kaupir tvo þriðju í Sjóvá 19. apríl 2005 00:01
Íslandsbanki hf. og Þáttur eignarhaldsfélag ehf. hafa komist að samkomulagi um kaup Þáttar á 66,6 prósent hlutafjár í Sjóvá fyrir 17,5 milljarða króna. Íslandsbanki mun áfram eiga 33,4 prósent hlutafjár í Sjóvá og samstarf bankans og vátryggingarfélagsins, einkum á sviði sameiginlegrar vöruþróunar og markaðsfærslu, verður með óbreyttum hætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka og Sjóvá. Í tilkynningunni segir enn fremur að markmið nýrra eigenda Sjóvá sé að treysta sterka markaðsstöðu félagsins enn frekar með aukinni sókn samhliða eðlilegu aðhaldi í rekstri. Sterk fjárhagsstaða verði jöfnum höndum nýtt sem grunnur fyrir öflugri þjónustu og auknar fjármagnstekjur. Samhliða viðskiptunum hefur verið ákveðið að stofna öflugt fjárfestingarfélag í eigu Íslandsbanka, Þáttar og Sjóvá. Þáttur er í eigu fjárfestingarfélagsins Milestone ehf., en eigendur þess eru Ingunn Wernersdóttir, Karl Wernersson og Steingrímur Wernersson. Félagið hefur á undanförnum árum einbeitt sér fyrst og fremst að fjárfestingum innanlands og á meðal annars 12,5% hlutafjár í Íslandsbanka. Með kaupunum á ráðandi hlut í Sjóvá hefur verið tekin ákvörðun um þátttöku til langs tíma í rekstri stórra og traustra fjármálafyrirtækja á Íslandi. Íslandsbanki keypti allt hlutafé í Sjóvá fyrir átján mánuðum fyrir 19,4 milljarða króna en söluverðið til Þáttar samsvarar 26,2 milljörðum króna heildarverðmæti félagsins. Við söluna innleysir bankinn 3,4 milljarða króna hagnað fyrir skatta af selda hlutnum auk þess sem Sjóvá hefur greitt Íslandsbanka 3,5 milljarða króna í arð frá því bankinn eignaðist félagið. Salan styrkir eiginfjárgrunn Íslandsbanka um ríflega 15 milljarða króna og miðað við núverandi eiginfjárstefnu bankans skapast að öðru óbreyttu svigrúm fyrir mögulegan 200 milljarða króna útlánavöxt.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira