Hvalkjöt vinsælt í S-Kóreu 19. júní 2005 00:01
Hvalkjöt nýtur vaxandi vinsælda í Suður-Kóreu og þar fer fundur hvalveiðiráðsins fram á næstunni. Náttúruverndarsinnar segja hvalinn aldrei hafa verið í meiri hættu. Það styttist í ársfund Alþjóða hvalveiðiráðsins í Ulsan í Suður-Kóreu. Á sama tíma berast af því fregnir að vinsældir hvalkjöts vaxi þar hratt. Hvalasteik fæst á fiskmarkaði bæjarins en veiðimenn segja þær af hvölum sem lenda í netum fiskveiðimanna. Náttúruverndarsinnar eru þó ekki vissir um að það sé rétt og benda á að í bænum standi til að koma á fót hvalstöð. Jim Wickens grænfriðungur segir að ef heimilt verði að byggja hvalstöðina séu það skýr skilaboð þess efnis að Kóreustjórn styðji ólöglegar veiðar dýrategunda í útrýmingarhættu. „Það er jafnfáránlegt að byggja þessa hvalstöð og að byggja stöð sem vinnur fílabein úr fílum sem hafa verið drepnir fyrir slysni á sléttum Kenía,“ segir Wickens. Hvalavinir segja meiri ógn stafa að hvölum en nokkru sinni fyrr: Mengun valdi því að eiturefni safnist fyrir í þeim, hljóðmengun valdi streitu og jafnvel því að hvali rekur á land. Hitabreytingar hafi og áhrif á svif sem margir hvalir nærast á. Þessi kóreski eigandi hvalaveitingastaðar er á því að hugleiða eigi hvalveiðar en rétt sé að fara með gát.
Erlent Fréttir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira