Þingið gengur gegn vilja Bush 25. maí 2005 00:01
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt að afnema takmarkanir á opinberum fjárframlögum til stofnfrumurannsókna. George W. Bush forseti hótar að beita neitunarvaldi sínu verði frumvarpið að lögum í meðförum öldungadeildarinnar. Umræðurnar voru heitar í fulltrúadeildinni í fyrradag um hvort afnema ætti þær takmarkanir sem Bush forseti setti árið 2001 á opinber fjárframlög til rannsókna á stofnfrumum úr fósturvísum. Þótt þingmennirnir hefðu venju samkvæmt skipst í tvær fylkingar þá var skiptingin þverpólitísk. Þegar yfir lauk höfðu fimmtíu þingmenn úr röðum repúblikana snúist á sveif með þorra demókrata og frumvarpið var því samþykkt með 238 atkvæðum gegn 194. Deilan snýst um hvort réttlætanlegt sé að nota vísi að mannslífi til að þróa lækningar við alvarlegum sjúkdómum á borð við Parkinsons-veiki og sykursýki. Því voru umræðurnar í þinginu óvenju persónulegar þar sem þingmenn létu óspart í ljós trúarskoðanir sínar og fjölskylduaðstæður. "Í fyrsta sinn í sögu þjóðar okkar á að nota peninga skattborgarana til að eyða saklausum mannslífum," sagði Henry J. Hyde, repúblikani frá Illinois. Joe Barton, repúblikani frá Texas, kvaðst hins vegar styðja frumvarpið þar sem faðir hans hefði dáið úr sykursýki og bróðir úr lifrarsjúkdómi. 290 atkvæði fulltrúadeildarþingmanna þarf til að forseti geti ekki beitt neitunarvaldi sínu en George W. Bush hefur lýst því yfir að hann muni gera það nái frumvarpið fram að ganga. Þá skoðun lét hann í ljós á blaðamannafundi í fyrradag umkringdur börnum sem höfðu verið ættleidd þegar þau voru enn á fósturstigi. Fastlega er búist við að frumvarpið nái fram að ganga í öldungadeildinni en skoðanakannanir benda auk þess til að þorri almennings sé hlynntur stofnfrumurannsóknum. Það er ekki síst stuðningur Nancy Reagan við rannsóknirnar sem hefur aflað málinu fylgis hjá íhaldssamari hluta þjóðarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Forystan sé búin að missa klefann Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira