Skjálftinn skók alla jörðina 20. maí 2005 00:01
Jarðskjálftinn í Indlandshafi á annan í jólum skók skorpu allrar jarðarinnar. Titringur vegna skjálftans mældist víða um heim mörgum vikum eftir hann. Þetta kemur fram í nýjasta hefti tímaritsins Science sem kemur út í dag. Þar kemur ýmislegt fleira fram um skjálftann sem ekki hefur áður verið greint frá. Segja má að skjálftinn annan í jólum hafi slegið fjölmörg heimsmet, enda stærsti skjálfti á jörðinni í meira en fjörutíu ár og því sá eini af þessari stærðargráðu sem hefur verið skoðaður ítarlega með nútímatækni. Skjálftinn kom í kjölfar langmesta misgengis sem mælst hefur og náði gliðnunin á sjávarbotninum yfir meira en þúsund kílómetra svæði. Þá gekk sjávarbotninn allt að tuttugu metra upp á við þar sem mest lét. Skjálftinn stóð yfir í miklu lengri tíma en áður hefur mælst. Lítill skjáfti stendur að jafnaði yfir í minna en eina sekúndu, meðalstór skjálfti í nokkrar sekúndur en skjálftinn undan ströndum Súmötru stóð yfir í hartnær tíu mínútur sem er meira en hundrað sinnum lengri tími en meðalstór skjálfti. Upphaflega var talið að skjálftinn hefði verið níu á Richter en nú er talið að hann hafi náð allt að 9,3. Krafturinn sem skjálftinn leysti úr læðingi jafnast á við hundrað milljarða tonna sprengju að sögn jarðvísindasérfræðinga. Á Taílandi hófst í vikunni á nýjan leik leit að líkum erlendra ferðamanna. Leitinni var hætt fyrir mánuði síðan en tæplega þrjú þúsund manns er enn saknað í landinu og aðstandendur þeirra fóru þess á leit við yfirvöld í landinu að leitinni yrði haldið áfram enn um sinn. Alls er meira en fimmtíu þúsund manna enn saknað eftir skjálftann auk þess sem staðfest hefur verið að tæplega 180 þúsund manns hafi látist.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira