Deildar meiningar um mannfall 17. maí 2005 00:01
Sjónarvottar telja að allt að 745 manns hafi látið lífið í átökum við stjórnarher Úsbekistans um helgina. Formælendur ríkisstjórnarinnar segja hins vegar að mannfallið hafi verið mun minna. Allt var með kyrrum kjörum í borginni Andijan í austurhluta Úsbekistans í gær en þar brutust út mikil mótmæli á föstudaginn sem enduðu með átökum við stjórnarhermenn. Í gær sagði Nigara Khidoyatova, leiðtogi eins stjórnarandstöðuflokksins, að allt benti til að hermennirnir hefðu síðustu daga myrt 745 saklausa borgara í Andijan og í nágrannaborginni Pakhtabad. Fólk úr hópi þeirra ríflega 500 flóttamanna sem komust til Kirgisistan segir svipaða sögu. Það kveðst hafa veifað hvítum dulum og hrópað að það væri vopnlaust en engu að síður var skotið á það. Fólkið hafnar því algerlega að íslamskir öfgamenn hafi staðið fyrir mótmælunum heldur hafi það aðeins viljað knýja á um efnahags- og lýðræðisumbætur. Sjónarvottar sögðu í samtölum við fréttaritara BBC að hermenn hefðu fjarlægt lík barna og kvenna en skilið lík karla eftir á vettvangi til að breiða yfir dauðsföll saklausra borgara. Islam Karimov, forseti Úsbekistans, og undirmenn hans vísa ásökunum stjórnarandstöðunnar á bug og segja að aðeins 169 manns hafi fallið. "Hersveitir okkar skutu einungis á hryðjuverkamenn," sagði Rashid Kadyrov, formælandi ríkisstjórnarinnar, við blaðamenn í gær. Hann sagði auk þess að mannfall óbreyttra borgara væri sök hryðjuverkamannanna sem væru flestir öfgasinnaðir múslimar og mannfallsáætlanir stjórnarandstæðinga væru þvættingur sem villa ættu um fyrir erlendum fréttamönnum. Yfirvöld í Moskvu hafa tekið undir með Karimov og sagt að ofbeldið væri heittrúuðum múslimum að kenna. Ekki var von á öðru enda hafa þau iðulega afgreitt þjóðfrelsisbaráttu Tsjetsjena sem verk íslamskra öfgamanna. Bretar hafa hins vegar fordæmt aðgerðir stjórnvalda í Taskent svo og Bandaríkjamenn þótt margir telji það gert með hálfum hug. 37 mótmælendur voru handteknir í Lundúnum í gær en þeir höfðu slett málningu á úsbeska sendiráðið í borginni.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira