Fleiri á hóteli en leyfilegt var 16. apríl 2005 00:01
Miklu fleiri en leyfilegt var gistu á hótelinu í París sem brann til kaldra kola í gær. Félagsmálayfirvöld höfðu komið svo mörgum fyrir á hótelinu og um alla Parísarborg gista innflytjendur í sambærilegum eldgildrum. Nú liggur fyrir að 21 fórst í eldhafinu á Paris-Opera hótelinu sem brann í gær og rannsóknarmenn á vettvangi óttast að finna fleiri rík í rústum hótelsins. Laurent Vibert, talsmaður slökkviliðs Parísar, segir að við frekari leit síðustu nótt hafi einn til viðbótar fundist látinn sem þýði að fórnarlömbin séu 21. Heildarfjöldi látinna sé þó ekki ljós því leit sé ekki lokið. Vibert segir leitina ganga hægt því burðarvirki efri hæða hótelsins sé mjög veikburða. 32 herbergi voru á hótelinu og þar mátti 61 gista. En samkvæmt lista félagsmálayfirvalda, sem komið höfðu fjölda innflytjenda fyrir á hótelinu, voru gestirnir nærri því 90. Talan er nokkuð á reiki. En þetta er ekki eina dæmið um slíkt. Um alla borg eru innflytjendur á sambærilegum hótelum, sannkölluðum brunagildrum þar sem eldvarnir eru litlar. Fjölskylda ein hefur búið í sama hjallinum í fimm ár og þó eru þau öll með landvistarleyfi og vinnu. Þau segja að yfirvöld í París og fólk almennt vita að þau dvelji þarna. Hins vegar viti þau ekki að álagið er stöðugt í íbúðinni vegna framkvæmda í kring. Yfirvöld segist hafa boði þeim önnur úrræði og segi að þau hafi alltaf neitað að flytja. Hið rétta sé að fjölskyldan hafi verið í íbúðinni í fimm ár og hafi aldrei verið boðið neitt annað. Á ellefta þúsund innflytjenda, flestir þeirra frá Afríku, býr á hótelum þar sem fjölskyldum er troðið saman í herbergi, þjónustan er engin, eldunaraðstaðan er engin, þvottaaðstaðan er ekki fyrir hendi og svo mætti lengi telja. Hótelin stórgræða en í fyrra var kostnaðurinn fyrir hið opinbera vegna þessara skammtímalausna 8,8 milljarðar króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Innlent Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Sjá meira