Búið að bera kennsl á lík 29. mars 2005 00:01
Danska lögreglan hefur borið kennsl á líkið sem fannst sundurbútað í miðborg Kaupmannahafnar um helgina. Rúmlega eitt hundrað vísbendingar bárust frá almenningi eftir að mynd af líkinu birtist í fjölmiðlum í gær. Lögreglan hefur gefið dönskum fjölmiðlum upp að maðurinn hafi verið 41 árs og búið í Kaupmannahöfn en þessar upplýsingar eru gefnar til að róa fjölmarga sem hafa haft samband við lögregluna og haft áhyggjur af ástvinum sínum sem líkjast manninum. Nafn hins látna verður ekki gefið upp strax þar sem enn á eftir að láta ættingja hans vita af látinu. Lögregla segir að maðurinn hafi verið stunginn nokkrum sinnum með hnífi og líkið af honum bútað niður með sög. Fyrst fundust fætur og hönd af manninum og í gærmorgun sjálfur búkurinn í húsasundi í miðborg Kaupmannahafnar. Rætt hefur verið um í dönskum fjölmiðlum að vélsög hafi verið notuð til verknaðarins en lögregla vill ekki staðfesta það á þessu stigi málsins. Tennur úr líkinu voru bornar saman við tannlæknaskýrslur og þannig tókst að taka af allan vafa um hver maðurinn var. Í morgun voru 50 möguleg nöfn á lista lögreglu en eftir að mynd var birt af andliti hins látna í fjölmiðlum í gær bárust yfir 100 ábendingar frá almenningi. Krufning á líkinu stendur enn yfir og varir fram á kvöld að sögn dönsku lögreglunnar. Næstu skref í rannsókn málsins eru að ræða við fjölskyldu hins látna, vini hans og vinnufélaga, en í morgun var svæðið í kringum Aðalgötu og Klerkagötu í miðborg Kaupmannahafnar, þar sem líkið fannst um helgina, skoðað nánar. Plasthanskar fundust við þá leit sem lögregla telur tengjast málinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira