Spjótin beinast að Kútsjma 13. mars 2005 00:01
Júrí Lútsenkó, innanríkisráðherra Úkraínu, lét í gær hafa eftir sér beinskeyttustu viðvörunina sem hin nýja ríkisstjórn landsins hefur fram til þessa beint að Leoníd Kútsjma, fyrrverandi forseta, varðandi rannsóknina á morði á blaðamanni sem framið var fyrir nærri fimm árum. Úkraínska vefritið Grani Plus Web birti í gær viðtal við Lútsenkó, þar sem hann segir að bréf sem Júrí Kravtsjenkó, fyrrverandi innanríkisráðherra sem fannst látinn fyrir viku, skildi eftir sig, "setti alla punktana yfir i-in". "Ég tel persónulega að dauði Kravtsjenkós hershöfðingja sé viðurkenning á sekt hans," er haft eftir Lútsenkó. Það lítur út fyrir að Kravtsjenkó hafi svipt sig lífi, en sama daginn og hann fannst látinn, 4. mars, stóð til að yfirheyra hann um mál blaðamannsins Heorhiy Gongadze, sem var numinn á brott og myrtur um mitt ár 2000. Mál Gongadzes vakti alþjóðlega athygli, en hann var kunnur fyrir rannsóknarblaðamennsku sína á spillingu í stjórn Kútsjma forseta. Lútsenkó sagði í viðtalinu að nú "gæti Kútsjma fyrrverandi forseti, sem hershöfðinginn [Kravtsjenkó] nefnir í bréfi sínu, ekki mætt fólki augliti til auglitis með hreina samvisku." Kútsjma hefur vísað á bug öllum ásökunum á hendur sér og á fimmtudag fór hann af sjálfsdáðum á fund saksóknara til að svara spurningum hans. Talsmaður Kútsjma ítrekaði að forsetinn fyrrverandi segðist hafa hreina samvisku. Andstæðingar Kútsjma hafa lengi haldið því fram, að hann hafi fyrirskipað morðið á Gongadze. Morðið á Gongadze og birting hljóðupptöku, þar sem rödd sem virðist vera Kútsjmas fer með formælingar um blaðamanninn, vakti mikla reiði meðal Úkraínumanna og varð kveikjan að mótmælaöldu sem þróaðist yfir í þá sterku stjórnarandstöðuhreyfingu sem tókst að steypa Kútsjma af stalli í vetur. Nýi forsetinn Viktor Jústsjenkó hefur sagt að lausn Gongadze-málsins væri honum og ríkisstjórn sinni mikið metnaðarmál.
Erlent Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira