Verða að yfirvinna óttann 25. febrúar 2005 00:01
Neyðin veldur því að fiskimenn á Srí Lanka yfirvinna óttann við hafið sem þeir finna fyrir í kjölfar flóðbylgjunnar annan dag jóla. Enn eru víða rústir og drulla og hjálpin berst hægt. Það eru liðnir rétt um tveir mánuðir frá hamförunum í Suðaustur-Asíu en enn er langt í land með að lífið þar komist í samt lag. Á Srí Lanka er ástandið til að mynda ennþá víða bágborið, aðstoð berst hægt þrátt fyrir nægar fjárveitingar og að samgöngur þar séu í góðu lagi. Lestarsamgöngur eru hafnar aftur en flóðbylgjan þeytti lestum langt inn á land og lestarteinarnir voru undnir eins og spottar eftir kraft hennar. Í þorpinu Katugoda á suðurströnd landsins er unnið að því að hreinsa rusl en víða eru sprottin upp hús þar sem áður voru aðeins frumstæð tjöld. Um alla eyjuna geta foreldrar sagt sögur af barnamissi og börn leita foreldra sinna. Á austurströndinni, sem varð langverst úti og þar sem þúsundir fiskimanna hurfu, fikra þeir sem lifðu af sig nú niður á strönd en margir fiskimenn óttuðust hafið eftir hamfarirnar. Stjórnvöld vilja einnig að fólk byggi híbýli sín fjær ströndinni en áður en fólkið segist verða að sækja sér björg í bú á hafi úti. En flestir bátarnir hurfu og netin eru í hönk svo að víða þurfa jafnvel tíu fjölskyldur að skipta með sér einum bát. Fiskimennirnir segja að þannig geti þeir ekki lifað af til langframa.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira