Matur

Rómantík í Þingholtunum: Frönsk súkkulaðikaka Ingibjargar

„Það er algjör snilld að geta kíkt á fallegar vörur á meðan maður bíður eftir teinu sínu. Ég kynntist þessu formi úti í Danmörku því ég fór oft á testofu þar. Ég drekk yfirleitt ekki te heima hjá mér en í Danmörku fór ég á kaffistofuna til að láta allt sem ég vildi eftir mér og var alls ekkert að spara. Þá fékk ég mér te og eitthvað sætt að borða því það passar rosalega vel saman," segir Ingibjörg Grétarsdóttir, eigandi Frú fiðrildis.

Ingibjörg leggur áherslu á te og skonsur og býður einnig upp á pressukönnukaffi. "Ég er ekki með neina kaffivél þannig að ég býð bara upp á venjulegt, lífrænt kaffi. Síðan er ég alltaf með skonsur með sætu sítrónusmjöri og te en ég nota jurtir frá Te og kaffi. Ég er með svart, grænt, jurta og ávaxtate svo eitthvað sé nefnt. Síðan er ég oftast með franska súkkulaðiköku og hindberjapæ í boði en ég skipti þeim stundum út fyrir til dæmis hjónabandssælu."

Rómantíkin er alls ráðandi í Frú fiðrildi en það er reyklaus testofa uppfull af gamaldags mublum. Tónlistin er líka gamaldags og blandar Ingibjörg saman dönskum stíl og frönskum sveitastíl. Vörurnar sem til sölu eru í testofunni eru frá Danmörku. Þar er hægt að kaupa allt frá kertum til skarts og selur Ingibjörg bara það sem henni líkar. "Ég kaupi mér aldrei dýra muni heldur leita alltaf í nokkrum búðum áður en ég finn eitthvað sem ég vil á góðu verði."



Frönsk súkkulaðikaka Ingibjargar:

3 egg

100 g sykur eða hrásykur

100 g 70% súkkulaði

100 g brætt smjör

45 g hveiti eða spelt

1 tsk. vanillusykur

Eggjum og sykri er hrært létt saman með gaffli - ekki stífþeytt. Súkkulaði og smjör er brætt saman og hellt rólega út í eggin og sykurinn. Þessu er blandað létt saman með gaffli eða sleif. Hveiti er bætt út í ásamt vanillusykri og hrært rólega með sleif. Sett í lítið, smurt form um það bil tuttugu sentímetra að stærð. Bakað við 175 °C í 15 til 25 mínútur eftir ofni. "Fólk verður svolítið að prufa sig áfram með ofninn. Hægt er að stinga hníf í miðjuna og ef ekkert af kökunni helst á honum þá er hún tilbúin. Mér finnst hún best klesst og blaut," segir Ingibjörg.

Krem:

100 g suðusúkkulaði og 50 g smjör brætt saman. Hægt er að skreyta kökuna með kókos og einnig bæta hnetum eða möndlum við uppskriftina. "Þegar kremið er komið á finnst mér best að setja hana aðeins inn í ísskáp því þá stífnar kremið fyrr," segir Ingibjörg.

Stefán





Fleiri fréttir

Sjá meira


×