Staða krónunnar lykilatriði 16. janúar 2005 00:01
Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Íslandsbanka, segir að staða íslensku krónunnar ráði mestu um hvernig verðlagsþróun verði á næstu misserum. "Okkar spá er sú að ef gengi krónunnar helst á þeim slóðum sem það er nú á þá muni verðbólgan fara niður um mitt árið og yrði lægri en verðbólgumarkmið Seðlabankans segir til um út þetta ár." Hann telur þó blikur á lofti um að sú forsenda haldi. "Ef eitthvað er þá reiknum við heldur með að krónan gefi eftir þegar líður á árið. Það er stór óvissuþáttur. Við sjáum misvægið í hagkerfinu þegar við lítum á viðskiptahallann og einhvern tímann kemur það misvægi fram í lækkun á gengi krónunnar," segir Ingólfur. Annað atriði sem Ingólfur telur vert að fylgjast með er þróun á húsnæðismarkaði. Síðustu tölur benda til þess að mikil hækkun sé á verðmæti húseigna um þessar mundir og ef sú hækkun heldur áfram þá muni það hafa í för með sér að verðbólgan verði mun hærri en Íslandsbanki hefur spáð. "Áhættan í okkar spá er því klárlega upp á við. Það eru líkur á því að við eigum eftir að sjá verðbólguna yfir verðbólgumarkmiðinu þegar árið er liðið," segir hann. Sú þróun veldur áhyggjum um að slæm keðjuverkun fari af stað sérstaklega ef forsendur kjarasamninga bresta og að launaliður kjarasamninga verði tekinn til endurskoðunar til hækkunar næsta vetur. "Það sem Seðlabankinn er að berjast við í augnablikinu er að bjarga kjarasamningum. Fyrir utan að ná verðbólgunni niður þá er það sjálfstætt viðfangsefni að koma í veg fyrir að launaliður þeirra verði endurskoðaður til hækkunar," segir hann. Ingólfur segir hlutdeild hins opinbera í hækkun neysluverðsvísitölunnar nú vera stóran og telur því til viðbótar að aðhald hins opinbera sé ónógt. "Þess vegna lendir þetta meira og minna á Seðlabankanum og við sjáum þetta ójafnvægi í hagkerfinu sem kemur fram í viðskiptahalla, sterkri krónu og versnandi stöðu útflutningsatvinnnuveganna," segir Ingólfur.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira