Viðskipti innlent

Seðlabankinn hækki vexti hraðar

Jón Steinsson hagfræðingur segir Seðlabankann hafa brugðist af festu við þeirri stöðu sem uppi er í efnahagslífnu.  "Heimurinn ferst ekki þótt verðbólgan fari yfir þolmörkin en það er hins vegar vísbending um að Seðlabankinn hafi misreiknað undirliggjanndi spennu og þurfi því að hækka vexti meira og hraðar en markaðurinn gerir ráð fyrir," segir hann. Ólíkt flestum sem tjá sig um efnahagsmálin telur Jón ekki að Seðlabankinn beri of miklar byrðar í efnahagsstjórninni. "Ég er á þeirri skoðun að sem sveiflujöfnunartæki þá eigi Seðlabankinn að bera mestar byrðar. Auðvitað væri gott ef ríkisvaldið frestaði stórum verklegum framkvæmdum á meðan slíkar framkvæmdir eru í gangi á vegum einkaaðila," segir hann. Hann telur umræðu um mikilvægi hallalausra fjárlaga í síðustu niðursveiflu hafa verið misráðna. "Það var mikið talað um það þá að það þyrfti að skera niður verklegar framkvæmdir en þá átti einmitt að auka við þær svo hægt væri að skera þær niður núna," segir hann. Jón gerir heldur ekki athugasemd við að ríkisstjórnin hafi lækkað skatta í miðju góðæri. "Þeir sem eru á móti skattalækkunum geta alltaf sagt að tímasetning sé óheppileg," segir hann. Jón bendir einnig á að flest þau viðfangsefni sem nú séu uppi í efnahagsstjórn séu sökum almennrar velsældar. "Vissulega er útflutningsiðnaðurinn að taka skell en orsök þess er ekki aðgerðir Seðlabankans. Seðlabankinn verður að grípa í taumana út af mikilli spennu í kjölfar álversframkvæmda og það var pólitísk ákvörðun að byggja álverið;" segir hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×