Annan blekktur af syni sínum 30. mars 2005 00:01
Svo virðist sem Kojo, sonur Kofis Annans, hafi ekki komið alls kostar heiðarlega fram við föður sinn. Málefni feðganna eru í brennidepli, enda birtist í gær rannsóknarskýrsla um olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak sem báðir eru flæktir í. Sonurinn, Kojo Annan, vann sem ráðgjafi hjá svissnesku fyrirtæki Cotecna sem var verktakafyrirtæki er valið var til að stýra framkvæmd olíusöluáætlunarinnar. Áætlunin snerist um það að lina þjáningar Íraka með því að leyfa ríkisstjórn Saddams Husseins að selja olíu og kaupa nauðsynjavöru, sérstaklega mat, fyrir ágóðann. Gríðarmikil spilling þreifst hins vegar í þessu máli öllu; þeir sem að sölunni komu mökuðu krókinn á mútum og Saddam Hussein gat selt olíu fram hjá kerfinu og stungið ágóðanum í eigin vasa. Málið snýst um það hvort fyrirtækið Cotecna hafi fengið samninginn við Sameinuðu þjóðirnar vegna tengsla Kojos við framkvæmdastjórann, og í framhaldi, hvort Kofi Annan hafi vitað af þeirri spillingu sem þreifst þar innanbúðar. Svo virðist sem Kojo hafi sagt föður sínum ósatt um starfssamninginn við Cotecna. Kojo var að vinna hjá fyrirtækinu þegar faðir hans tók við embætti framkvæmdastjóra en sagðist vera hættur að vinna þar þegar fyrirtækið fékk olíusölusamninginn. Síðar kom í ljós að svo var alls ekki. Í rannsóknarskýrslunni sem birtist um málið í gær er Kofi Annan hreinsaður af ásökunum um að hafa vitað um að Cotecna væri að sækjast eftir þessum samningi. „Engar sannanir um óviðeigandi áhrif,“ er orðalag skýrsluhöfunda. Hins vegar sætir Annan gagnrýni fyrir að hafa ekki fylgst nægilega vel með framgangi mála og fyrir að hafa ekki tekið nógu hart á málinu eftir að í ljós kom að sonur hans var enn starfsmaður Cotecna.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira