Erlent

Zarqawi hafi viljað fleiri árásir

Bandaríska herstjórnin í Írak segir að hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al-Zarqawi hafi fyrirskipað aukningu á bílasprengjuárásum á fundi sem haldinn var í Sýrlandi. Hryðjuverkamenn í Írak haf mikið notað bílsprengjur í árásunum sem hafa kostað yfir 400 manns lífið undanfarnar þrjár vikur. Talsmaður Bandaríkjahers í Írak segir að al-Qaida samtökin hafi haldið fund í Sýrlandi fyrir nokkru og þá hafi komið fram að Abu Nusab al-Zarqawi, stjórnandi samtakanna í Írak, hafi ekki verið ánægður með gang uppreisnarinnar. Hann hafi fyrirskipað að bílsprengjur skyldu notaðar í auknum mæli til þess að valda sem mestu mannfalli. Frá því í lok febrúar hafa verið gerðar 126 bílsprengjuárásir í landinu, þar af 21 það sem af er þessum mánuði. Talsmaður Bandaríkjanna gat þess ekki hvort Zarqawi hefði sjálfur verið á fundinum en Sýrlendingar neita því að þeir eigi nokkuð saman við hann að sælda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×