Erlent

Konungleg brúarvígsla

Konungar Noregs og Svíþjóðar, Haraldur V og Carl XVI Gústaf, vígðu við hátíðlega athöfn í gær nýja brú milli landanna. Á miðri brúnni, sem liggur yfir Svínasund suður af Óslófirði, afhjúpuðu konungarnir minnismerki í formi tveggja útréttra handa, tákn fyrir vináttu grannlandanna þegar rétt 100 ár eru liðin síðan Norðmenn slitu ríkjasambandinu við Svíþjóð. Haraldur Noregskonungur sagði brúna, sem er 700 metra löng einbogabrú, vera "sterkt tákn um einingu bræðraþjóðanna tveggja". Nýju brúnni er ætlað að auðvelda samgöngur milli landanna, en gamla brúin, sem var byggð 1946, var orðin flöskuháls á þessari fjölförnu leið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×