Somerfield mælir með tilboði Apax 14. október 2005 00:01
Stjórn verslunarkeðjunnar Somerfield tilkynnti í dag að hún myndi mæla með yfirtökutilboði fjárfestahóps leiddum af Apax fjárfestingarsjóðnum. Tilboðið frá hópnum hljóðar upp á 1,08 milljarða punda, eða um 80 milljarða íslenskra króna, en það samsvarar 197 pensum á hlut. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum KB banka. Hópurinn sem um ræðir er sá sem Baugur átti upphaflega aðild að en dró sig svo út úr þegar ákærur í Baugsmálinu voru birtar. Að sögn KB banka má því segja að þessari sögu sé nú lokið en hún hófst 9. febrúar síðastliðinn með tilboði Baugs upp á 190 pens á hlut. Þó að því tilboði hefði verið hafnað vakti það áhuga fjárfesta á Somerfield og voru á tímabili að minnsta kosti fjórir hópar sem bitust um félagið. Þó hafði þeim sem sýndu áhuga fækkað jafnt og þétt eftir því sem á leið áreiðanleikakönnunina og var Apax hópurinn einn eftir undir lokin. Hafði Somerfield gefið Apax hópnum frest til dagsins í dag til að skila inn tilboði í félagið. Tilboðið er þó nokkru lægra en sérfræðingar í Bretlandi höfðu búist við en væntingar voru um allt að 220 pens á hlut. Verð á hlutabréfum Somerfield hækkaði nokkuð í kjölfar tilkynningarinnar í dag, úr 189 pensum á hlut í 193 pens, eða um 3,21%.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira