Hermenn hafi ekki gert neitt rangt 26. apríl 2005 00:01
Rannsóknarmenn á vegum Bandaríkjahers hafa komist að því að bandarískir hermenn sem skutu ítalskan leyniþjónustumann sem var nýbúinn að bjarga ítölskum blaðamanni úr haldi mannræningja í Írak hafi ekki gert neitt rangt heldur aðeins sinnt störfum sínum. Þetta kemur fram í skýrslu sem gerð hefur verið um málið og greint er frá á fréttavef BBC. Ítalski leyniþjónustumaðurinn Nicola Calipari var einn þeirra sem sóttu blaðakonuna Guiliönu Sgrena eftir að samið hafði verið við uppreisnarmennina um lausn Sgrena snemma í síðasta mánuði. Þegar fólkið nálgaðist varðstöð Bandaríkjahers við Bagdad í bifreið hófu hins vegar bandarískir hermenn að skjóta á hana og lést Calipari þegar hann fleygði sér yfir Sgrena til að verja hana fyrir skothríðinni. Þá særðist Sgrena einnig í árásinni. Ítölsk og bandarísk stjónvöld hafa deilt um aðdraganda málsins og segja Bandaríkjamenn að bíll Ítalanna hafi nálgast varðstöðina á miklum hraða og að hermennirnir hafi m.a. skotið viðvörunarskotum en Ítalir segja að Bandaríkjamenn hafi verið látnir vita af komu fólksins og að bíllinn hafi verið stöðvaður áður en skothríðin hófst. Skýrslan um málið hefur ekki verið gerð opinber, m.a. vegna þessara ágreiningsmála, en í henni kemur fram að bandarískurhermennirnir hafi aðeins framfylgt fastri aðgerðaáætlun innan hersins. Ljóst er að málið er Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, afar erfitt þar sem andstaða við hernaðinn í Írak er mikil á Ítalíu, en það var hann sem fór fram á það að bandarísk stjórnvöld rannsökuðu málið.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan leitar að Cezary Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Innlent Fleiri fréttir Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Sjá meira