Blair víki á næsta kjörtímabili 17. apríl 2005 00:01 MYND/AP
Enginn annar kemur til greina sem eftirmaður Tonys Blairs en Gordon Brown, og Blair ætlar að víkja fyrir honum á næsta kjörtímabili. Þetta fullyrða breskir fjölmiðlar í dag. Það hafa lengi gengið sögusagnir þess efnis að Tony Blair myndi ekki sitja út þriðja kjörtímabilið beri Verkamannaflokkurinn sigur úr býtum í kosningunum í vor. Hermt er að samkomulagið á milli þeirra Gordons Browns hafi jafnvel verið slæmt á tímabili þar sem Brown var á því að tímabært væri að Blair hyrfi af forsætisráðherrastóli og að hann tæki við. Undanfarna daga hefur Blair margítrekað að hann muni sitja út næsta kjörtímabil verði úrslit kosninganna eins og kannanir benda til. Dagblaðið Independent segir í dag að það sé af og frá að Blair verði enn forsætisráðherra fyrir næstu kosningar. Þvert á móti sé alkunna innan Verkamannaflokksins að Blair muni víkja úr embætti, að líkindum eftir tvö ár eða svo. Blaðið segir að Blair sé þetta ljóst og að hann hafi nú greint Brown frá því að enginn annar komi til greina sem eftirmaður. Blair hafi falið Alastair Campbell, fyrrverandi talsmanni sínum, að semja við samstarfsmenn Browns um valdaskiptin. Meðal þess sem þar er samið um er samsetning næstu ríkisstjórnar, en Brown ku leggja á það áherslu að samverkamenn hans séu þar áberandi. Independent segir að völdin innan flokksins færist nú þegar í vaxandi mæli í hendur Brown og að öllum sé ljóst að Blair sé ekki vært í embætti mjög lengi jafnvel þó svo færi að Verkamannaflokkurinn ynni stórsigur. Blair gæti ekki eignað sér heiðurinn af því þar sem kannanir bendi eindregið til þess að fylgi flokksins væri töluvert meira leiddi Brown hann. Ljóst sé að nú sé málum svo komið að Blair sé nánast orðinn dragbítur fyrir Verkamannaflokkinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira