Steyptist fram af hengiflugi 28. nóvember 2004 00:01
Tveir menn létust af slysförum um helgina. Ekið var á karlmann á fimmtugsaldri á Eyrarvegi á Selfossi um sexleytið í morgun og lést hann samstundis að sögn lögreglunnar að Selfossi. Slæm akstursskilyrði voru þegar slysið varð, rigning og rok og lélegt skyggni. Ökumann fólksbifreiðarinnar sakaði ekki. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Þá beið karlmaður um fertugt bana þegar jeppi hans fór fram af þverhníptri sandöldu í sunnanverðu Vonarskarði á sjötta tímanum í gærkvöld. Ökumaðurinn var einn í bílnum, en var í samfloti með þremur öðrum jeppum, á leið frá Þúfuveri í Gæsavötn. Fimm björgunarsveitir voru kallaðar út eftir að tilkynnt var um slysið til Neyðarlínunnar og fóru björgunarsveitarmenn á átta jeppum til aðstoðar, þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð til. Einar Brynjólfsson félagi í Flugbjörgunarsveitinni á Hellu sem kom fyrst á vettvang segir að jeppamennirnir hafi verið búnir að fara einu sinni yfir Köldukvísl en þurft að fara yfir hana aftur þar sem hlykkur var á ánni á þessari leið. Maðurinn sem lést ók bifreiðinni sem var í fararbroddi. Hann ók eftir snjólausri sandöldu en sá illa fram fyrir sig og bifreiðin steyptist fram af hengiflugi ofan í ána og lenti á hvolfi. Félagar hans fóru þegar út í og komu taug í jeppann og gátu rétt hann af. Hann var hinsvegar mikið skemmdur og ekki hægt að opna dyrnar. Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn á sjöunda tímanum, með klippur var maðurinn þegar látinn. Þegar það vitnaðist sneri um helmingur björgunarsveitarmanna við og hélt aftur til byggða. Fjórir jeppar héldu áfram og komu að slysstað þegar þyrlan var nýfarin með lík mannsins. Maðurinn sem lést hét Stefán Reynir Ásgeirsson til heimilis að Barmahlíð 34 í Reykjavík. Hann var fjörutíu og tveggja ára og lætur eftir sig unnustu og þrjú börn.
Fréttir Innlent Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira