Innlent

Virknin í Grímsvötnum minni

Virkni í Grímsvötnum er minni þessa stundina og er einnig orðin hviðukennd eins og gerist í Grímsvatnagosum, auk þess sem hlaup í Skeiðará virðist vera í rénun. Af þessum ástæðum hefur samhæfingarstöð almannavarna verið lokað í bili og bakvakt almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hefur tekið við eftirlitshlutverki almannavarna. Lögreglustjórar í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði hafa verið upplýstir um þessa ákvörðun. Að ölllu óbreyttu verður vegurinn um Skeiðarársand opinn í nótt en vegfarendur eru hvattir til að sýna ítrustu varkárni á ferð sinni um sandinn.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×