Innlent

Meiri bráðnun en venjulega

Eldgosið sem hófst í Grímsvötnum í gærkvöldi er sunnar og vestar en hefðbundnar gosstöðvar og er íshellan þar mun þykkari. Því verður meiri bráðnun en í venjulegu Grímsvatnagosi og er þegar farið að magnast hlaupið ofan til í Skeiðará. Sama er að segja um Gígjukvísl. Öskufalls hefur orðið vart í Möðrudal á Fjöllum. Veginum yfir Skeiðarársand var lokað til öryggis á miðnætti en hefur nú verið opnaður aftur. Grannt er fylgst með rennsli í ánni og verður veginum lokað aftur, ef hlaupið vex umtalvert. Vegna hugsanlegra gosefna í lofti hefur Flugfélag Íslands slegið flugi til Egilsstaða, Þórshafnar og Vopnafjarðar á frest en flogið er með Austfjarðafarþega á milli Reykjavíkur og Akureyrar og svo ekið að austan til Akureyrar eða til baka. Þá hefur yfirdýralæknir ráðlagt bændum á austanverðu landinu að taka fé sitt á hús svo það skaðist ekki af ösku. Annars virðist gosið vera talsvert öflugra en síðasta gos í Grímsvötnum árið 1998 því gosstrókurinn náði 13 kílómetra hæð í nótt en hann náði hæst um það bil tíu kílómetra hæð fyrir sex árum. Vegna þessa var allri þotuumferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu í nótt beint suður fyrir landið og er svo enn. Talið er að Skeiðarárhlaupið hafi létt svo á fargi yfir gosstöðvunum að gosefni hafi átt greiðan aðgang upp úr jarðskorpunni. Þannig hafi hlaupið komið gosinu af stað. Mikil og stöðug skjálftavirkni hófst um áttaleytið í gærkvöldi en hjaðnaði svo rétt fyrir tíu sem gefur til kynna að þá hafi eldgosið náð upp úr íshellunni. Slæmt skyggni hefur verið á vettvangi í nótt en eldglæringar sáust frá Egilsstöðum og Kárahnjúkum í nótt.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×