Innlent

Hætta á öskufalli í byggð

Flugumferð hefur verið beint suður fyrir Ísland í nótt vegna gosmakkar frá eldgosinu. Mest hætta á öskufalli í byggð er sem stendur norðaustur af eldstöðinni, eins og í Vopnafirði. Víðir Reynisson, verkefnafulltrúi Almannavarna, segir hættu ekki stafa af gosinu að svo stöddu. Veginum yfir Skeiðarársand hafi þó verið lokað í nótt í öryggisskyni. Samkvæmt rennslismælum hefur rennslið í Skeiðará ekkert aukist umfram það hlaup sem í ánni er eftir að gosið hófst. Búist er þó við meira hlaupi. Víðir segir erfitt að fullyrða hvort brýrnar á sandinum séu í hættu en sé gosið inni í vötnunum er ekki mikil hætta á því.

Flugvél frá Flugmálastjórn með vísindamönnum innanborðs er á flugi yfir Grímsvötnum til að reyna að átta sig á því hvar gosið er nákvæmlega. Þær fréttir bárust nýlega frá vélinni, sem er nú yfir gosstöðvunum, að mökkurinn sé rúmir þrettán kílómetrar á hæð í augnablikinu. Við fyrstu athugun er talið að gosið sé suðvestur af Grímsvötnum. Af ótta við að aska sé að berast til norðausturs hefur áætlunarflugi til Egilsstaða verið frestað þar til hægt verður að kanna aðsætður í björtu.

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra lét loka þjóðveginum um Skeiðarársand á miðnætti af ótta við að Skeiðarárhlaupið kunni að vaxa en svo hefur ekki gerst enn. Vegurinn hefur því verið opnaður aftur. Talið er að Skeiðarárhlaupið hafi létt svo á fargi yfir gosstöðvunum að gosefni hafi átt greiðan aðgang upp úr jarðskorpunni þannig að hlaupið hafi komið gosinu af stað.

Mikil og stöðug skjalftavirkni hófst um áttaleytið í gærkvöldi en hjaðnaði svo rétt fyrir tíu sem gefur til kynna að þá hafi eldgosið náð upp úr íshellunni. Slæmt skyggni hefur verið á vettvangi í nótt en eldglæringar sáust frá Egilsstöðum og Kárahnjúkum í nótt. Ekki hafa enn borist fréttir af öskufalli en Grímsvötn eru í Vatnajökli vestanverðum.

Aukafréttatími verður á Stöð 2 klukkan 12.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×