VÍS af markaði 25. október 2004 00:01
Stærstu hluthafar í Vátryggingarfélagi Íslands hafa komist að samkomulagi sem felur í sér að félagið verður tekið af markaði. Smærri hluthöfum hefur verið gert tilboð um að selja hluti sína á genginu 49 sem er síðasta viðskiptagengi með bréf í félaginu áður en samkomulagið var undirritað. Í gær var einnig kynnt ársuppgjör VÍS. Hagnaður félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins er 1.557 milljónir þar af 199 á þriðja ársfjórðungi. Afkoman er töluvert betri en í fyrra og umfram væntingar að sögn Finns Ingólfssonar forstjóra. "Þetta er betra en við höfðum áætlað og betri afkoma en í fyrra. Það skýrist fyrst og fremst að því að þó að tjón séu örlítið fleiri þá eru þau ekki eins alvarlega og oft áður," segir Finnur. Hann segir að slysatjón á fólki hafi minnkað töluvert. Finnur bendir á að stærstur hluti hagnaður VÍS sé af meginstarfseminni en ekki af kaupum og sölu á hlutabréfum. Þá nefnir hann að VÍS hafi ekki bókfært hlutabréfaeign sína á markaðsvirði en væri hagnaður af slíkri starfsemi inni í uppgjörinu yrðu hagnaðartölur hærri. Stærstu hluthafar í VÍS eru KB banki, Eignarhaldsfélagið Hesteyri, Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar og Eignarhaldsfélagið Andvaka. Þessir aðilar eiga rúmlega 87 prósent hlutafjár. Með því að gera samkomulag sín á milli hafa þessi félög skapað sér skyldu til þess að gera öllum öðrum hluthöfum tilboð. Um þá ákvörðun að taka VÍS af markaði segir Finnur að það sé gert í ljósi þess hversu þröngt eignarhaldið sé orðið. Hann segir að félagið telji sér betur borgið að vera ekki á markaði í ljósi þessa. "Í sjálfu sér er ekki neinna breytinga að vænta á rekstrinum heldur er undirstrikað í þessu hluthafasamkomulagi að menn ætli að reka fyrirtækið í óbreyttri mynd. Það verður á þeim grunni að fyrst og fremst að einbeita sér að meginstarfsemi sem er tryggingastarfsemi, fjármálaþjónustu og öryggisþjónsutu. Það er undirstrikað í þessu samkomulagi milli hluthafa," segir Finnur. Hann segir engin áform vera uppi um að sameina VÍS og KB banka en reglulega hafa sögusagnir þess efnis skotið upp kollinum. "Það eru engin áform uppi um neina sameiningu," segir Finnur.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira