Erlent

Slitið sambandi við Ísrael

Ríkisstjórn Nýja Sjálands hefur slitið sambandi við ísraelsk stjórnvöld í kjölfar þess að tveir meintir ísraelskir njósnarar voru fangelsaðir fyrir að reyna að verða sér út um nýsjálensk vegabréf. Ísraelsk yfirvöld hafa verið krafin skýringa, og hyggjast Nýsjálendingar skera á diplómatísk tengsl sín við Ísrael þar til skýringar hafa borist. Forseti Ísraels ætlaði að koma við á Nýja Sjálandi á leið heim frá Ástralíu í næsta mánuði, en af því verður ekki, og nýr sendiherra Ísraels verður ekki viðurkenndur í bili.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×