Peaches til Íslands 14. júní 2004 00:01
Bandaríska elektróclashdrottningin Peaches mun halda tónleika í listastöð Klink&Bank við Þverholtið, þriðjudagskvöldið 29. júní næstkomandi. Kanadamærin Peaches heitir réttu nafni Merrill Nisker og olli miklu fjaðrafoki með fyrstu breiðskífu sinni Teaches of Peaches eftir að platan var endurútgefin af Beggars XL-útgáfunni fyrir tveimur árum. Hún þykir sérstaklega opinská varðandi kynlíf í textasmíðum en tónlist hennar er mjög einföld, ögrandi og forritanir mjög naumhyggjulegar. Hún talar opinskátt um tvíkynhneigð sína í textum og er lítið fyrir boð og bönn. Í fyrra fylgdi hún frumraun sinni eftir með plötunni Fatherfucker þar sem m.a. Iggy Pop söng með í einu laganna. Það er skemmtileg tilviljun því sjálfri hefur henni verið lýst sem eins konar kvenkyns útgáfu af poppsöngvaranum. Tónleikar Peaches eru engu líkir. Hún er ein á sviðinu og býður upp á góða sýningu. Klæðir sig upp í búninga, skellir sér á áhorfendahópinn og lætur allt flakka í tjáningu sinni. Í kjölfarið hefur hún verið í uppáhaldi hjá tísku- og tónlistarblöðunum. Þrátt fyrir að útvarpsstöðvarnar treysti sér ekki ennþá til þess að leika lög hennar opinberlega hafa plötur hennar selst um allan heim, enda óhætt að segja að Peaches sé engri annarri lík.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Góðir straumar á Straumi Menning Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“