

Árneshreppur á Ströndum tók þátt í verkefni Byggðastofnunar „Brothættar byggðir“. Um er að ræða verkefni sem byggir á byggðaáætlun og er hluti af áætlun Byggðastofnunar til að aðstoða byggðarlög sem standa höllum fæti. „Áfram Árneshreppur“ en svo kallast verkefnið í Árneshreppi, var hrundið af stað árið 2018 og er nú komið á loka metrana.
Jóhanna Maggý Hauksdóttir skrifar um hvalveiðar Íslendinga.
Í næstu viku hefst kennsla í flestum grunn- og framhaldsskólum, og í leikskólum hafa elstu börnin verið kvödd og nýir leikskólanemar stíga sín fyrstu skref í fjölbreyttu skólastarfi. Fátt er mikilvægara en sá grunnur sem lagður er að menntun og farsæld barna og ungmenna í skólum landsins, og á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum.
Kenningarlega séð eru heimili og hótelherbergi andstæð fyrirbæri. Heimili er staður sem litast af þeim sem þar býr, þar sem íbúinn velur innbúið í samræmi við sinn smekk og klæðir rýmið að innan með nærveru sinni sem leiðir til þess að íbúðin verði eins konar fagurfræðileg framlenging af honum sjálfum; en hótelherbergi eru tilbúin og fyrirskipuð rými sem mótast ekki af nærveru manns með tímanum heldur núllstillast á hverjum degi þegar þau eru þrifin og enduruppröðuð til að líta nákvæmlega eins út og daginn áður.
Hugtakið ,,woke“ hefur verið til í mörg ár. Það vísar til þess að vera meðvitaður um og ögra kerfisbundnum kynþáttafordómum, kynjamisrétti, misréttlæti gegn fólki með andleg veikindi, hinsegin fóbíu og annars konar kúgun. Að vera woke snýst um að viðurkenna að þessi kerfi eru til og að þau hafi neikvæð áhrif á líf fólks. Þetta snýst líka um að vera reiðubúinn að grípa til aðgerða til að taka þessi kerfi í sundur.
Það er bæði gömul saga og ný að regluverk á Íslandi er íþyngjandi og oftar en ekki meira íþyngjandi en gengur og gerist meðal nágrannaþjóða okkar. Þetta sést skýrt þegar Ísland er skoðað í alþjóðlegum samanburði og ætti að vera kappsmál stjórnvalda að bæta úr þessari stöðu.
Framtíð háskólamenntunar felst ekki í nafnlausum nemendum sem einangrast bak við skjáinn. Framtíð háskólamenntunar utan höfuðborgarsvæðisins verður ekki tryggð nema með því að nýta tæknina og bjóða upp á öflugt og fjölbreytt fjarnám. Þessar tvær fullyrðingar eru ekki í trássi hver við aðra en við þurfum að finna stofnunum okkar form þar sem sá sannleikur sem er fólginn í þeim báðum nær að raungerast og, allt í senn, treysta búsetu, efla samfélög og auka lífsgæði yngri kynslóða.
Í baráttu minni um rétt minn til að velja mér búsetu hafa margir fílar orðið á vegi mínum, þessir fílar eru í líki sveitarstjórnarfólks í GOGG og einnig innviðaráðaherra sem hefur þessi mál á sinni könnu. Enginn þessara aðila sýnir því skilning að það er niðurlægjandi að vera „Óstaðsettur“ og ósýnilegur.
Hæ, ég heiti Alexander og ég er trans maður. Fyrir þau sem þurfa frekari útskýringu þá þýðir það að ég fékk úthlutað kvenkyni við fæðingu, allir héldu að ég væri stelpa og seinna, kona, þangað til að ég sagði þeim að ég væri í raun karlmaður.
Íslendingar eru duglegir við nýyrðasmíði og hafa alltaf verið. Að eiga lifandi, fjölbreytt og djúpt tungumál er bæði fallegt og virðingarvert.
Margs konar tækifæri og áskoranir fylgja aukinni ferðaþjónustu. Áherslur hafa breyst og uppbygging hefur á sér ýmsar myndir líkt og fjölbreytt verkefni hringinn í kringum landið bera með sér. Við getum nú skoðað fleiri minjar, höfum aðgengi að nýjum stöðum og aðkoma að dýrmætum náttúruperlum hefur bæst til muna. Ásamt þessu hefur aðstaða fyrir gesti aldrei verið betri.
Óhætt er að segja að birting Sigurðar Þórðarsonar (SÞ) fyrrum setts ríkisendurskoðanda á greinargerð hans um Lindarhvol fyrir nokkru hafi sett Lindarhvolsmálið í nýtt ljós. Viðbrögð við birtingu Sigurðar á skjalinu hafa verið margvísleg, sum fyrirsjáanleg en önnur hafa komið nokkuð á óvart.
Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið mikið á undanförnum árum og stefnir í áframhaldandi vöxt vegna eftirspurnar frá nýjum íbúum og áforma landeigenda um uppbyggingu.
Langreyður er næst stærsta dýr á jörðinni á eftir frænku sinni, steypireyðinni. Hún er skíðishvalur sem nærist að mestu á svifkrabbadýrum. Langreyður er farhvalur og er útbreidd um heimsins höf. Þær eru hvala hraðskreiðastar og geta synt á 45 km/klst hraða.
- Til upplýsinga fyrir fjölmiðlamenn og aðra vegna ónákvæmrar hugtakanotkunar - Hugtakið flóttamaður er lagalegt hugtak og vel skilgreint í íslenskum lögum sem eru, vel að merkja, í fullu samræmi við alþjóðasamninga.
Það er ekki erfitt að finna fyrir óöryggi í þessu yndislega landi okkar þegar fjölmiðlar bera okkur fréttir af stöðu margra mála, afstöðu og aðgerðarleysis ríkisstjórnarinnar.
Andri Snær Magnason rithöfundur fjallar um hvalveiðar Íslendinga.
„Það lá alveg ljóst fyrir að með samþykkt þessara laga væri verið að taka þjónustu af fólki. Þegar þú ert að svipta fólki þjónustu eins og húsnæði og framfærslu þá geturðu ekki sett þessi lög með þessum afleiðingum en líka veitt þjónustuna á sama tíma. Þá fellur þetta allt um sjálft sig.“
Þegar ég tala um ADHD þá heyri ég oft þessa setningu; „Eru ekki allir með smá ADHD?“ Stutta svarið er einfaldlega bara nei.
Árið er 1994. Þrettán ára gömul lítil stelpa stendur fyrir framan Rauða krossinn með litla bróður sínum sem er ári yngri en hún og foreldrum þeirra. Þau setjast í rútu með eina ferðatösku á mann sem farangur. Þarna er fullt af fólki og tvær fullar rútur voru klárar að leggja af stað.
Í síðustu viku urðum við Íslendingar, því miður, vitni að úthugsuðu og þaulskipulögðu illvirki. Í beinni útsendingu níddust yfirvöld á þremur konum sem höfðu enga möguleika á því að bera hönd fyrir höfuð sér.
Sjón skrifar um hvalveiðar Íslendinga.
Helsta kennileiti og aðdráttarafl Íslands er hrífandi landslag eyjunnar og þau náttúruundur sem hér má finna. Þessi einkenni eru einnig hennar helsta ógn, en hér þarf stöðugt að gera ráð fyrir snjóflóðum, jarðskjálftum og ógn af virkum eldfjöllum, auk annara óhjákvæmilegra náttúruafla sem hér ríkja.
Það er býsna fróðlegt að fylgjast með stigvaxandi bumbuslætti virkjunarsinna, áróðri sem dynur á okkur nánast daglega og er aðallega stýrt af forkólfum stóriðju- og virkjanafyrirtækja við undirleik ráðherra málaflokksins.
Hér er í stuttu máli innsýn í daglegt líf þegar ég þarf á táknmálstúlkun að halda við félagslegar aðstæður. Eitt lítið dæmi sem sýnir þá þröskulda sem við táknmálsfólk / döff þurfum að kljást við, stundum næstum daglega, jafnvel vikulega og stundum bara einhvern tímann á árinu.
„Stjórnsýslan er óásættanleg.“ Þetta eru orð Jens Garðars Helgasonar í grein í Viðskiptablaðinu 11. ágúst s.l. Þarna deilir hann á fámennar og fjársveltar ríkisstofnanir, sem eiga eftir að vinna og afgreiða leyfisumsókn í Seyðisfirði. Hann segir það geta tekið rúman áratug að fá eitt leyfi.
Íris Ásmundardóttir dansari fjallar um hvalveiðar Íslendinga.
Opið bréf til Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félagsmálaráðherra
Vinkonuhópur úr grunnskóla hittist eftir aðskilnað í áravís. Þær eru 22 ára. Það eru fagnaðarfundir, margt á dagana drifið og frá mörgu að segja gleði og sorg – væntingar og vonbrigði. Eins og lífið er. Þegar hallar að kvöldi og trúnó tekur völdin stígur ein þeirra upp og segir frá ofbeldi sem þjálfarinn hennar beitti hana.
Nýlega gaf Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) út skýrslu þar sem farið var yfir stöðu snjalltækja í kennslu. Meginniðurstaða skýrslunnar er sú ályktun að snjalltæki eins og farsímar og spjaldtölvur eigi ekki að nota innan veggja skóla nema ef notkun þeirra sé að bæta kennslu með ótvíræðum hætti.