Erlent

Sonur síðasta konungs Ítalíu handtekinn

Ítalska lögreglan handtók í gær Viktor Emmanuel, son Umberto annars, síðasta konungs Ítalíu. Emmanuel er grunaður um að hafa tekið þátt í skipulagðri glæpastarfsemi sem talin er teygja anga sína víða um lönd, meðal annars á sviði vændis.

Erlent

N-Kóreumenn prófa eldflaug um helgina

Norður-Kóreumenn hyggjast um helgina skjóta á loft langdrægri tilraunaeldflaug sem getur borið kjarnaodda. Eldflaugin er af tegundinni Taepodong-2 og getur dregið sex þúsund kílómetra, eða allt til borga á vesturströnd Bandaríkjanna.

Erlent

Ekki virðist meirihluti fyrir hvalveiðum

Ríki sem hlynnt eru nýtingu hvalastofna virðast ekki í meirihluta á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, þvert á það sem spáð hafði verið. Í gær höfðu friðunarsinnar betur í tveimur atkvæðagreiðslum á fundinum sem fram fer í karabíska eyríkinu Sankti Kristófer og Nevis.

Erlent

Tugir liggja í valnum eftir átök morgunsins

Í það minnsta 37 hafa fallið í heiftarlegum átökum stjórnarhersins á Srí Lanka og Tamíl-tígra í morgun. Formælandi ríkisstjórnarinnar segir að ákveðið hafi verið að ráðast til atlögu gegn Tamílum eftir að 64 borgarar létu lífið í fyrradag þegar rúta sem þeir voru í ók utan í jarðsprengju sem tígrarnir höfðu komið fyrir.

Erlent

Forseti Írans efast enn um helförina

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, endurtók í dag fyrri staðhæfingar sínar um að helför nasista gegn gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni sé ekki studd nægilega traustum heimildum og því þurfi að gera nýja og óháða sagnfræðirannsókn á atburðunum sem áttu sér stað í vinnubúðum nasista.

Erlent

Smyglaði sprengiefni hugsanlega í skóm sínum

Maður er grunaður um að hafa borið sprengiefni í skóm sínum inn til föstudagsbæna í Buratha-moskunni í Norður-Bagdad í dag. Í það minnsta 11 létust og 25 særðust þegar hann sprengdi sig í loft upp.

Erlent

Hvalfriðunarsinnar enn í meirihluta

Ríki sem hlynnt eru algerri friðun hvalastofna virðast enn einu sinni vera í meirihluta á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins því nýtingarsinnar töpuðu naumlega atkvæðagreiðslu um veiðar á smáhvelum. Formaður íslensku sendinefndarinnar á fundinum gerir sér engar grillur um að nokkur árangur náist þar.

Erlent

Arabi gabbaði Kaupþing Noregi

Rúmlega hundrað og tuttugu milljónir króna úr sjóðum Kaupþings í Noregi fóru í súginn eftir að arabískur kaupsýslumaður narraði starfsmenn þess til hlutabréfakaupa. Þótt upphæðin sé ekki há á mælikvarða fyrirtækisins þykir málið hið vandræðalegasta.

Erlent

Stjórnarskrá ESB bíður til 2008

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í Brussel í Belgíu í morgun að styðja áætlun um að ríki og alþjóðlegar stofnanir tryggi Palestínumönnum fjárstuðning, en sniðgangi um leið heimastjórn Hamas-liða. Leiðtogarnir hafa einnig gefið sér frest til ársins 2008 til að taka ákörðun um framtíð stjórnarskrár sambandsins.

Erlent

Mannskæð gassprenging í Moskvu

Að minnsta kosti tveir létu lífið og sex slösuðust þegar gassprenging varð í fjölbýlishúsi í Moskvu í morgun. Nokkrir veggir hússins hrundu við sprenginguna. 17 slökkvubílar komu þegar á vettvang og 9 björgunarsveitarhópar leita nú í rústum hússins af einhverjum sem þar kunna að liggja.

Erlent

Batamerki síamstvíburastúlkna

Síamstvíburastúlkurnar sem aðskildar voru á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum eru farnar að sýna merki um bata. Læknar eru bjartsýnir á að bati stúlknanna muni ganga að óskum. Stúlkurnar gengust undir tólf tíma aðgerð í fyrradag og í gær og þótti aðgerðin heppanst vel. Systurnar voru fastar saman frá neðra brjóstholi niður að mjaðmagrind. Aðgerðin þótti einstaklega flókin þar sem endurskapa þurfti mörg mikilvæg líffæri en önnur stúlknanna var aðeins með eitt nýra.

Erlent

Möguleg stökkbreyting fuglaflensuveirunnar

Nýjasta dæmi fuglaflensusmits í mönnum í Kína bendir til þess að H5N1 veiran hafi stökkbreyst. Veiran virðist nú vera jafn smitandi í heitu veðri og í köldu að sögn heilbrigðisráðherra Hong Kong. H5N1 veirustofninn þrífst best í köldum veðrum á norðurhveli jarðar en í gær bárust fréttir af smiti 31 árs vörubílstjóra. Einnig virðist vera hægt að smitast af fuglaflensunni af fuglum sem sýna engin einkenni smits. Rannsóknir á fuglum á mörkuðum í Kína sem taldir voru heilbrigðir sýndu að um eitt prósent þeirra voru smitaðir af fuglaflensu.

Erlent

Tveir menn finnast látnir við Merapi-fjall

Tveir menn fundust látnir við rætur eldfjallsins Merapi á eyjunni Jövu í Indónesíu í morgun. Mennirnir höfðu leitað skjóls í hálfniðurgröfnu skýli sem hafði grafist undir möl, grjóti og hrauni. Mennirnir létust af völdum hita og var annar mannanna illa brunninn af völdum gufu. Skýlið sjálft var fullt af ösku. Merapi-fjallið hefur gosið öðru hverju í nokkrar vikur en á miðvikudaginn var stórt gos. Björgunarmenn höfðu reynt að komast til mannanna síðan í gær, en annar þeirra var þorpsbúi en hinn meðlimur björgunarsveita.

Erlent

Norður-Kórea að prófa flaugar sem draga milli heimsálfa

Norður-Kóreumenn hafa flýtt undirbúningi að prófun eldflauga sem draga milli heimsálfa segir Bandaríkjastjórn. Sérfræðingar segja að Norður-Kórea hafi yfir að ráða hundruðum flauga, sem stofni Suður-Kóreu og Japan í hættu. Norður-Kóreustjórn naut góðs af samskiptum við Sovétríkin í kalda stríðinu við þróun flaugaáætlunar sinnar.

Erlent

Ahmadinejad segist vera að skoða tilboð fastra meðlima Öryggisráðsins

Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, var spurður um tilboð fastra meðlima Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í opinberri heimsókn í Kína í morgun. Hann sagðist hafa beðið samstarfsfólk sitt að fara yfir tilboðið sem gengur út á hvata og refsiaðgerðir til að fá Íran til að hætta við kjarnorkuáætlun sína. Spurður um helförina og Ísraelsríki sagði Ahmadinejad enga misklíð vera á milli gyðinga, kristinna og múslima.

Erlent

Bill Gates að hætta

Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, tilkynnti í gær að hann ætli að hætta að sjá um almennan rekstur fyrirtækisins en hann er einn af stofnendum þess. Í staðinn ætlar Gates að nýta tíma sinn í baráttu fyrir bættri heilsu fólks og eflingu menntunar á vegum stofnunar Bill og Melindu Gates. Fyrirtækið tilkynnti að tveggja ára ferli, sem á að tryggja að breytingarnar myndu ganga vel fyrir sig, væri farið í gang.

Erlent

Fótboltabullur til vandræða

Þýska lögreglan stendur í ströngu þessa dagana vegna óláta í fótboltabullum. Hefur hún fengið aðstoð frá pólskum og breskum lögreglumönnum.

Erlent

Hamas-samtökin tilbúin að endurnýja vopnahléssamkomulag við Ísrael

Hamas-samtökin hafa lýst yfir vilja Palestínumanna til að endurnýja vopnahléssamkomulag sitt við Ísrael. Talsmaður samtakanna sagði í gær að heimastjórn Hamas vildi sem fyrst sjá vopnahlé á öllu heimastjórnarsvæðinu. Fyrst þyrfti þó Ísraelsher að hætta hernaðaraðgerðum sínum á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum. Hamas lýstu því yfir í síðustu viku að sextán mánaða vopnahlé væri fallið úr gildi eftir að átta Palestínumenn létu lífið í sprengingu á baðströnd.

Erlent

Barnaníðingurinn ákærður

Lögreglan í Belgíu hefur ákært dæmdan barnaníðing vegna hvarfs tveggja telpna, sjö og tíu ára, en stúlkurnar hurfu á laugardag. Abdallah Ait Oud gaf sig sjálfur fram til lögreglu eftir að lýst var eftir honum í fjölmiðlum. Hann neitar allri aðild að málinu og belgíska lögreglan er vonlítil um að hann játi nokkuð á sig, nema sönnunargögn finnist.

Erlent

Rokka upp Evrópulagið

Finnskir embættismenn mættu með bunka af dreifimiðum á leiðtogafund Evrópusambandsins og réttu hverjum sem vildi.

Erlent

Lofar að fangelsa Taylor

Breska ríkisstjórnin sagði í gær að hún væri tilbúin til að útvega fyrrverandi forseta Líberíu, Charles Taylor, vist í fangelsum Bretlands verði hann fundinn sekur um stríðsglæpi.

Erlent

Stórt skref í aðskilnaðarátt

Líkur eru á því að kjósendur í Katalóníuhéraði samþykki næstkomandi sunnudag áætlun um aukna sjálfstjórn héraðsins. Íhaldsmenn á Spáni leggja þetta að jöfnu við áætlun um sjálfstæði Katalóníu og upplausn Spánar. Upplausn Spánar má reyndar kalla stjórnarskrárbundna, því í stjórnarskrá landsins er kveðið á um að vald ríkisins skuli í áranna rás vera fært æ frekar heim í héruðin.

Erlent

Viðurkenna Svartfjallaland

Ríkisstjórn Serbíu viðurkenndi í gær sjálfstæði Svartfjallalands og tilkynnti að komið yrði á stjórnmálasambandi ríkjanna á milli. Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði og sambandsslitum frá Serbíu hinn 3. júní eftir þjóðar­atkvæðagreiðslu.

Erlent

Mega ekki koma að landi

Ráðherra þjóðar­öryggismála á karabísku eyjunni St. Kitts tilkynnti að ríkisstjórnin hefði ákveðið að banna skipi Grænfriðunga að koma að landi. Hann neitaði að tjá sig um tilefni hafnbannsins en ákvörðunin var líklega tekin í tilefni fundar Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem nú stendur yfir á eyjunni.

Erlent

Múslimar hertaka aðra borg

Múslimar hafa hertekið Jowhar, síðustu hernaðarlega mikilvægu borgina sem var á valdi bandalags nokkurra stríðsherra sem eru styrktir af Bandaríkjastjórn.

Erlent