Erlent
Nakinn maður eltur og skotinn Erlent 19.6.2006 07:00 Ævintýraleg þorskveiði Þorskurinn virðist vera kominn aftur í hafið við Grænland eftir 15 ára bið, að sögn vefútgáfu norska blaðsins Fiskeribladet, og hann lítur vel út sá sem veiðist. "Ævintýraleg veiði," segir Leivur á Rógvi skipstjóri. Erlent 19.6.2006 06:45 Discovery út í geiminn 1. júlí Bandaríska geimferðastofnunin NASA ákvað á laugardag að skjóta skyldi geimferjunni Discovery út í geim þann 1. júlí næstkomandi. Ákvörðunin er tekin þvert á ráðleggingar sérfræðinga sem segja stofnunina ekki fyllilega hafa leyst þau vandamál sem urðu til þess að geimferjan Columbia fórst árið 2003 með þeim afleiðingum að sjö geimfarar fórust. Erlent 19.6.2006 06:45 « ‹ ›
Bandarísku hermennirnir látnir Tveir bandarískir hermenn, sem saknað hafði verið frá því á föstudag, fundust skammt suður af Bagdad í morgun. Lík mannanna báru þess merki að þeir hefðu verið pyntaðir. Uppreisnarhópur tengdur al Qaeda samtökunum sagðist hafa numið mennina á brott frá landamærastöð þar sem þeir unnu. Erlent 20.6.2006 13:52
Ítalskur saksóknari kærir bandarískan hermann Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir að hafa myrt ítalskan leyniþjónustumann við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. Erlent 20.6.2006 13:29
Charles Taylor loks fyrir dómstól Charles Taylor, fyrrverandi einræðisherra í Líberíu, er nú á leið til Hollands þar sem réttað verður yfir honum. Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi í tíu ára borgarastríði í nágrannalandinu Sierra Leone. Erlent 20.6.2006 12:00
Gervifrjóvganir borga sig Breskir tölfræðingar hafa reiknað út að kostnaðurinn við gervifrjóvganir borgi sig margfalt fyrir breska ríkið, þegar tillit er tekið til framlags barnsins uppkomins til þjóðarframleiðslu og skattborgana. Erlent 20.6.2006 11:32
Japanskar sveitir yfirgefa Írak Japanar munu draga allt herlið sitt frá Írak nú þegar Írakar hafa sagst munu taka við öryggiseftirliti í þeim héruðum þar sem Japanir hafa verið að störfum. Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, sagði í morgun að enduruppbyggingarhlutverki japanskra varnarsveita í Írak væri lokið og því engin þörf fyrir að Japanar héldu úti mannskap þar lengur. Erlent 20.6.2006 11:15
Ilmur Beckhams eitraður Ilmur Beckhams er eitraður ef marka má orð Grænfriðunga sem létu greina innihald nýs herrailmvatns sem knattspyrnuhetjan David Beckham hefur lagt nafn sitt við. Erlent 20.6.2006 10:58
Fótboltabullur handteknar í Köln Fjórir stuðningsmenn enska landsliðsins í fótbolta voru handteknir fyrir skrílslæti í Köln í nótt, þegar eftirvænting þeirra eftir leik Englendinga gegn Svíþjóð fór úr böndunum. Sextán lögreglumenn slösuðust í átökunum og þurfti einn að leggjast inn á sjúkrahús. Erlent 20.6.2006 10:36
Foreldrar á Bretlandseyjum reiðir Meðlimir foreldrafélaga barnaskóla á Bretlandseyjum eru reiðir eftir að þarlendir fréttamiðlar greindu nýverið frá því að reglur sem settar höfðu verið til að halda dæmdum kynferðisafbrotamönnum utan skólakerfisins hafi brugðist. Erlent 20.6.2006 09:19
Ofbeldi í New Orleans Borgarstjórinn í New Orleans kallaði eftir hjálp þjóðvarðliða í gær til að hefta útbreiðslu mikils ofbeldis sem verið hefur í borginni og hefur leitt til dauða sex manna nú um helgina. Erlent 20.6.2006 09:11
Skógareldar í Norður-Arizona Rýma þurfti yfir fimm hundruð heimili og fyrirtæki í Norður-Arizona í Bandaríkjunum í gær vegna mikilla skógarelda sem þar geysa. Erlent 20.6.2006 09:02
Ákærður fyrir morð á ítölskum njósnara Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir morð á ítalska leyniþjónustumanninum Nicola Calipari við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. Erlent 19.6.2006 23:15
Málverk selt á 10 milljarða Málverk austurríska málarans Gustav Klimt sem Nasistar stálu á valdatíma sínum í Þýskalandi var selt í New York í gær, að því er talið er, fyrir jafnvirði rúmra 10 milljarða íslenskra króna. Málverkið er eitt fjögurra verka Klimt sem Nasistar hrifsuðu til sín. Erlent 19.6.2006 23:00
Varað við hryðjuverkamanni 2003 Bretar máttu vita þegar árið 2003 að einn fjögurra hryðjuverkamanna, sem átti þátt í dauða 52 í hryðjuverkaárás á Lundúnir í fyrra, væri maður sem réttast væri að hafa gætur á. Bandarísk stjórnvöld vöruðu þá bresku leyniþjónustuna við höfuðpaurnum sem þá þegar var bannað að fljúga til Bandaríkjanna. Erlent 19.6.2006 22:45
3 bandarískir hermenn ákærðir fyrir morð Þrír bandarískir hermenn hafa verið ákærðir fyrir morð á þremur Írökum sem voru í haldi hermanna vegna aðgerða hersveitar í síðasta mánuði. Hermennirnir eru einnig ákærðir fyrir að hafa reynt að koma í veg fyrir að rannsókn færi fram. Erlent 19.6.2006 22:30
al Kaída tengist mögulega mannránum á bandarískum hermönnum í Írak Hópur tengdur al Kaída hryðjuverkasamtökunum segir á vefsíðu sinni í dag að hann hafi rænt tveimur bandarískum hermönnum sem hafa verið týndir í Írak um nokkurt skeið. Erlent 19.6.2006 16:12
Stuðningsmenn Aung San Suu Kyi biðja fyrir lausn baráttukonunnar úr stofufangelsi Stuðningsmenn Aung San Suu Kyi biðja nú fyrir lausn baráttukonunnar úr stofufangelsi en hún á sextíu og eins árs afmæli í dag. Erlent 19.6.2006 13:49
Fyrsta konan kjörin biskup í bandarísku biskupakirkjunni Fyrsta konan var kjörin biskup í bandarísku biskupakirkjunni í gær. Aðeins kanadíska og nýsjálenska biskupakirkjan hafa hingað til kjörið konu til biskupsembættis og margir leiðtogar biskupakirkjunnar víða um heim telja konur ekki einu sinni eiga erindi til að gegna prestsstörfum. Erlent 19.6.2006 13:13
Þorskur aftur genginn að Grænlandsströndum Þorskur er aftur genginn að Grænlandsströndum að sögn norska blaðsins Fiskeribladet, og fékk togari umþaðbil þúsund tonn af vænum þorski á slóðum, þar sem ekki hefur sést þorskur í fimmtán ár. Erlent 19.6.2006 13:07
172 manneskjur voru fluttar út úr tíu hæða blokk í Osló 172 manneskjur voru fluttar út úr tíu hæða blokk í Osló þegar kviknaði í blokkinni í nótt. Slökkviliðið var kallað út klukkan eitt í nótt og logaði þá glatt á áttundu hæð í blokkinni. Erlent 19.6.2006 13:02
Japanir hóta hörðum viðbrögðum við eldflaugaprófunum Forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, sagði í morgun að japönsk stjórnvöld myndu í samráði við Bandaríkin bregðast hart við fyrirhuguðum eldflaugaprófunum Norður-Kóreumanna. Erlent 19.6.2006 12:51
Þokast í samkomulagsátt í Palestínu Hamas- og Fatahhreyfingarnar í Palestínu eru nálægt því að komast að samkomulagi um ýmis aðalágreiningsatriði fylkinganna, svo sem viðurkenningu Ísraelsríkis og lausn fanga úr fangelsum. Erlent 19.6.2006 10:39
Lögreglan í Kaupmannahöfn skýtur mann til bana. Lögreglan í Kaupmannahöfn skaut mann til bana í morgun, eftir að æði rann á hann í söluturni, þar sem hann braut allt og bramlaði með barefli. Þegar lögreglumenn náðu því af honum dró hann upp hníf og ógnaði nærstöddum sem lyktaði með því að lögreglumennirnir skutu á hann. Hann lést af skotsárum sínum skömmu síðar. Erlent 19.6.2006 10:27
Alþjóða hvalveiðiráðið samþykkir ályktun um að hvalveiðibann ráðsins sé úrelt Alþjóða hvalveiðiráðið samþykkti í gær ályktun um að hvalveiðibann ráðsins sé úrelt og ekki lengur nauðsynlegt. Það var þó mjótt á munum, 33 þjóðir greiddu atkvæði með ályktuninni en 32 voru því mótfallnar. Í ályktuninni er lagt til að hvalveiðiráðið snúi sér að upprunalegu hlutverki sínu: að stjórna hvalveiðum, í stað þess að banna þær með öllu. Hvalveiðibann alþjóða hvalveiðiráðsins stendur þó áfram enda þurfa 75 prósent þjóðanna sem í því sitja að styðja afnám bannsins til þess að því sé hnekkt. Erlent 19.6.2006 09:40
Al Qaída skipulagði gasárás í neðanjarðarlestum New York borgar í ársbyrjun 2003 Al Qaída skipulagði umfangsmikla gasárás í neðanjarðarlestum New York borgar í ársbyrjun 2003 en hætti við áður en af árásinni varð. Þetta kemur fram í útdrætti úr bók Pulitzer-verðlaunahafans Rons Suskinds sem birtist í vefútgáfu tímaritsins Time í gær. Erlent 19.6.2006 09:26
Krefjast afsökunarbeiðni lögreglu Áætlað er að þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælagöngu í austurhluta Lundúna í gær til að krefjast formlegrar afsökunarbeiðni frá bresku lögreglunni eftir áhlaup lögreglumanna í byrjun mánaðarins vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi. Erlent 19.6.2006 09:24
Líkt við örkina hans Nóa Norðmenn eru byrjaðir að byggja eins konar dómsdagsbyrgi, sem grafið verður inn í frosnar fjallshlíðar Svalbarða, og á að geyma plöntufræ hvaðanæva að úr veröldinni til að hægt sé að hefja ræktun á ný ef stórslys á borð við miklar loftslagsbreytingar eða kjarnorkustríð skyldi stefna uppskeru á jörðinni í hættu Erlent 19.6.2006 07:30
Hefndarmorð á unglingum Fimm unglingar voru skotnir til bana í New Orleans í Bandaríkjunum í gær, og er það versta fjöldamorð sem framið hefur verið í sögu borgarinnar. Fórnarlömbin, fimm ungir piltar á aldrinum 16 til 19 ára, fundust í og við bíl þeirra eftir að morðingjarnir höfðu skotið fjölmörgum skotum á bílinn með þeim afleiðingum að allir í honum létust. Erlent 19.6.2006 07:00
Ævintýraleg þorskveiði Þorskurinn virðist vera kominn aftur í hafið við Grænland eftir 15 ára bið, að sögn vefútgáfu norska blaðsins Fiskeribladet, og hann lítur vel út sá sem veiðist. "Ævintýraleg veiði," segir Leivur á Rógvi skipstjóri. Erlent 19.6.2006 06:45
Discovery út í geiminn 1. júlí Bandaríska geimferðastofnunin NASA ákvað á laugardag að skjóta skyldi geimferjunni Discovery út í geim þann 1. júlí næstkomandi. Ákvörðunin er tekin þvert á ráðleggingar sérfræðinga sem segja stofnunina ekki fyllilega hafa leyst þau vandamál sem urðu til þess að geimferjan Columbia fórst árið 2003 með þeim afleiðingum að sjö geimfarar fórust. Erlent 19.6.2006 06:45