Erlent

Múslimar æfir út í páfa

Múslimar um allan heim eru æfareiðir Benedikti páfa sextánda fyrir ummæli sem hann lét falla í ræðu í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar ræddi páfi hugtakið "heilagt stríð".

Erlent

Íranar ýja að viðræðum í kjarnorkudeilu

Yfirrvöld í Frakklandi hafa staðfest að Íranar hafi gefið til kynna að þeir vilji hefja viðræður um það við Evrópusambandið að þeir hætti auðgun úrans. Frá þessu var greint skömmu fyrir hádegi.

Erlent

Fimm menn skotnir nærri heimili Haniyehs

Byssumenn skutu fimm Palestínumenn til bana nærri heimili forsætisráðherrans Ismails Haniyeh á Gasaströndinni í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af atburðinum en talið er að einhverjir hinna látnu hafi verið í öryggissveitum palestínsku heimastjórnarinnar.

Erlent

Japansprins farinn af sjúkrahúsi

Kiko Japansprinsessa og nýfæddur sonur hennar, Hisahito, fengu að fara heim af sjúkrahúsinu í Tokyo í morgun. Sonurinn kom í heiminn fyrir viku og er fyrsta sveinbarnið sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í rúm 40 ár. Sló það á allar áhyggjur um erfingjaskort því samkvæmt japönskum lögum mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina.

Erlent

Kastró hressist

Fídel Kastró, forseti Kúbu, virðist óðum vera að ná fyrri styrk en hann átti í gær fund með Hugo Chavez, forseta Venesúela, á sjúkrastofu Kastrós á Havana. Fjölmargir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Chavez, sækja nú árlega leiðtogafund samtkaa ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Havana.

Erlent

Komið í veg fyrir sprengjuárás í Jemen

Yfirvöld í Jemen staðfestu í morgun að öryggisverðir hefði fellt fjóra menn sem ætluðu sér að gera árás á tvö borsvæði þar sem olía og gas eru unnin. Einn öryggisvörður féll í átökunum.

Erlent

Bush hótar að beita neitunarvaldi

Nefnd bandarískra öldungadeildarþingmanna hefur farið gegn vilja Bush Bandaríkjaforseta og styðurlöggjöf þar sem skilgreint er hvernig rétta beri yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið því að beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum. Bandaríkjaforseti styður annað frumvarp sem myndi leyfa það að réttað yrði fyrir herrétti yfir föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru í haldi. Forsetinn mætti sjálfur á fund nefndarinnar í gær til að leggja áherslu á mál sitt. Fjölmargir Repúblíkanar eru andvígir því frumvarpi og styður Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, þá í andstöðu sinni. Samkvæmt frumvarpi því sem forsetinn styður yrðu hertari yfirheyrsluaðferðir leyfðar, frekari njósnir einnig og rýmri heimildir til að halda grunuðum. Með þessu væri í raun verið að endurskilgreina það hvernig bandarísk stjórnvöld uppfylli ákvæði Genfar-sáttmálans um meðferð stríðsfanga. Þessu er Powell andvígur og segir þetta í raun stefna lífi bandarískra hermanna á erlendri grundu í hættu og renna stoðum undir málflutning þeirra sem gagnrýna framferði Bandaríkjamanna og siðferði þeirra. Meðal þeirra sem eru andvígir hugmyndum forsetans er John McCain, sem barðist við Bush um útnefningu Repúblíkana fyrir forsetakosningarnar árið 2000. Búist er við að McCain sækist aftur eftir útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár. Hálfur mánuður er þar til fulltrúadeild Bandaríkjaþings frestar fundum sínum vegna kosninga í nóvember. Miðla þarf málum fyrir þann tíma. Ef það tekst ekki verður alls óvíst með framtíð fanganna í Guantanamo-fangabúðunum og hvernig mál þeirra verða meðhöndluð.

Erlent

Íbúar í Montreal slegnir

Ein kona týndi lífi og 19 særðust, þar af sex lífshættulega, þegar hálf þrítugur maður hóf skothríð á nemendur í menntaskóla í Montreal í Kanada síðdegis í gær. Lögregla felldi árásarmanninn.

Erlent

Senegalskir innflytjendur fluttir frá Spáni

Spánverjar byrja í dag að flytja ólöglega innflytjendur frá Senegal til síns heima eftir að tafir urðu á flutningunum sem hefjast áttu í gær. Tvær vélar með um 100 Senegala hvor fljúga frá Kanaríeyjum í dag en þangað hafa um tólf þúsund senegalskir innflytjendur leitað í ár.

Erlent

Skotárás í Montreal í rannsókn

Ein kona týndi lífi og minnst nítján særðust þegar ungur maður hóf skothríð á samnemendur sína í menntaskóla í Montreal í Kanada síðdegis í gær. Lögregla felldi árásarmanninn. Lögregla í Kanada rannsakar nú málið en ekki er vitað hvað olli því að ungi maðurinn greip til vopna gegn námsmönnum í skólanum.

Erlent

Þrír sagðir slasaðir eftir að þak flugstöðvar hrundi

Þak á flugstöð á eyjunni Menorku við austurströnd Spánar hrundi í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af slysinu en minnst þrír munu hafa slasast svo vitað sé. Talsmaður slökkviliðs á svæðinu segir að enginn sé fastur undir brakinu, en fyrstu fréttir bentu til þess að tuttugu verkamenn sem unnu að endurbótum á þakinu hefðu orðið undir því.

Erlent

Ofbeldi er ekki kynþokkafullt

Eiginkonur og kærustur götuklíkumeðlima í Kólumbíu grípa nú til sinna ráða til að sporna við ofbeldi á götum Pereira, þar sem ofbeldi er einna mest í allri Kólumbíu. Tugir kvenna neita mökum sínum um allt kynlíf þar til byssurnar verði lagðar á hilluna. Að sögn einnar þeirra eru skilaboðin sem þær vilja senda mönnunum að ofbeldi sé síður en svo kynþokkafullt.

Erlent

Sjö námamenn fastir í kolanámu í Kína

Björgunarmenn í Norðaustur-Kína reyna nú hvað þeir geta til að bjarga sjö námamönnum sem sitja fastir í kolanámu. Vatn flæddi inn í námuna þar sem nítján námamenn voru að störfum.

Erlent

Umdeilt frumvarp varðandi hegðun ungmenna

Innanríkisráðherra Frakklands, Nicholas Sarkozy, kynnti í gær umdeilt frumvarp á franska þinginu sem ætlað er að taka á óæskilegri hegðun ungmenna. Það sem harðast er deilt á er ákvæði sem heimilar bæjar- og borgarstjórum að svipta fjölskyldur vandræðaunglinga atvinnuleysis- og húsnæðisbótum ef þörf krefur.

Erlent

1000 pólskir hermenn til Afganistans

Pólverjar ætla að senda eitt þúsund hermenn til viðbótar þeim hundrað sem þeir hafa þegar sent til Afganistan. Viðbótarliðið verður sent til landsins í febrúar á næsta ári.

Erlent

Fjórir létust í árás byssumanna

Að minnsta kosti fjórir eru látnir og sextán særðir eftir skotárás tveggja byssumanna í framhaldsskóla í Montreal í Kanada. Lögreglan í Montreal segir að svo virðist sem annar byssumannanna hafi svipt sig lífi en hinn var felldur af lögreglunni.

Erlent

Framhaldsskóli rýmdur vegna skotárásar

Byssumenn hóf skothríð í framhaldsskóla í Montreal á fimmta tímanum í dag. Lögreglan í Montreal segir óvíst hversu margir særðust í árásinni en fréttastofan Sky hefur eftir sjónvarvottum að fjórir að minnsta kosti hafi særst.

Erlent

Páfi heimsótti gröf foreldra sinna

Benedikt páfi sextándi heimsótti í morgun gröf foreldra sinnna en hann er nú á ferð um Þýskaland, heimaland sitt. Í för með páfa í morgun var bróðir hans en gröfin stendur rétt fyrir utan Regensburg.

Erlent

Vilja ekki senda fleiri hermenn til Afganistan

Þjóðir Atlantshafsbandalagsins eru ekki tilbúnar að senda fleiri hermenn til Afganistan. Yfirmenn öryggismála í Afganistan segja að þörf sé á tvö þúsund og fimm hundruð friðargæsluliðum til viðbótar til að geta tryggt öryggi borgara.

Erlent

Rekinn fyrir að týna skýrslu um Vollsmose-málið

Starfsmaður leyniþjónustu dönsku lögreglunnar hefur verið rekinn úr starfi eftir að í ljós kom að hann hafði glutrað niður skýrslu um Vollsmose-málið, þar sem níu menn voru handteknir vegna gruns um að þeir væru að undirbúa hryðjuverk í Danmörku.

Erlent

Segjast hafa fengið keðjur til að hætta að selja fisk

Grænfriðungar segjast hafa fengið sænskar verslanakeðjur til þess að hætta að kaupa þorsk sem veiddur er í Eystrasalti. Þeir segjast munu, í þessari viku, senda dönskum kaupmönnum bréf, þar sem þeir eru hvattir til þess að gera slíkt hið sama.

Erlent

Árásarmenn reyndust Sýrlendingar

Mennirnir fjórir sem réðust á bandaríska sendiráðið í Damaskus í Sýrlandi í gær voru allir Sýrlendingar. Þrír þeirra féllu í átökum við öryggisverði. Mennirnir ætluðu sér að aka bifreið hlaðinni sprengiefni inn á afgirt svæði við sendiráðið.

Erlent