Hæsta viðbúnaðarstigi lýst yfir í Brussel sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 21. nóvember 2015 09:52 Mikill viðbúnaður er á götum Brussel. vísir/epa
Hæsta viðbúnaðarstigi var lýst yfir í Brussel í gærkvöldi og hafa yfirvöld í Belgíu varað við alvarlegri og yfirvofandi hryðjuverkahættu. Lestarkerfinu hefur verið lokað og almenningi ráðlagt að halda sig fjarri fjölförnum stöðum. Næst hæsta viðbúnaðarstig hefur verið í gildi í landinu öllu undanfarna daga. Það var hækkað í höfuðborginni í gær, meðal annars vegna gruns um að einn höfuðpaura árásanna í París, Salah Abdeslam, sé staddur í borginni. Í tilmælum stjórnvalda er fólk beðið um að forðast mikinn mannfjölda, meðal annars í verslunarmiðstöðvum og á tónleikum næstu daga. Þá hefur ýmsum viðburðum verið aflýst, til að mynda fótboltaleikjum og tónleikum. Nokkrir af ódæðismönnunum í árásunum í París voru með belgískt ríkisfang. Fjölmargar handtökur og húsleitir hafa átt sér stað í landinu síðan þá, en þar á meðal var Abdelhamid Abbaoud, skipuleggjandi hryðjuverkanna, en hann fell í áhlaupi lögreglu í París. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti einróma að stórefla aðgerðir gegn ISIS, en hryðjuverkasamtökin hafa lýst ábyrgð á árásunum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð Sjá meira