Draumabyrjun Bryndísar með Snæfelli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. október 2015 17:11 Bryndís byrjar vel í búningi Snæfells. mynd/snæfell
Landsliðskonan Bryndís Guðmundsdóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Snæfell þegar Íslandsmeistararnir báru sigurorð af Stjörnunni á heimavelli í dag, 95-93. Bryndís skoraði 15 stig fyrir Snæfell og þ.á.m. sigurkörfuna í þann mund sem leiktíminn rann út. Meistararnir voru með 11 stiga forskot, 88-77, þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir en þá tók Chelsie Schweers til sinna ráða. Hún skoraði 10 stig í röð fyrir nýliða Stjörnunnar og skyndilega var munurinn aðeins fjögur stig, 91-87. Hafrún Hálfdánardóttir minnkaði muninn í tvö stig og Bryndís Hanna Hreinsdóttir jafnaði svo metin af vítalínunni, 91-91, þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum. Haiden Palmer kom Snæfelli aftur yfir en Hafrún jafnaði metin í næstu sókn. Það var svo Bryndís sem tryggði Snæfelli sigurinn eins og áður sagði. Palmer var stigahæst í liði Snæfellinga með 35 stig en Gunnhildur Gunnarsdóttir kom næst með 17 stig. Schweers bar af í liði Stjörnunnar með 36 stig og átta fráköst. Bryndís Hanna skoraði 18 stig og Margrét Kara Sturludóttir var með 15 stig, 11 fráköst og fimm stoðsendingar. Snæfell hefur unnið báða leiki sína til þessa á meðan Stjarnan er enn án stiga.Tölfræði leiksins: Snæfell-Stjarnan 95-93 (31-21, 22-14, 22-28, 20-30)Snæfell: Haiden Denise Palmer 35/5 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 17/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 15/5 stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir 10, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 7/6 fráköst, Andrea Björt Ólafsdóttir 5/5 fráköst, María Björnsdóttir 5/5 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 3, Sara Diljá Sigurðardóttir 3/5 stoðsendingar.Stjarnan: Chelsie Alexa Schweers 36/8 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 20/4 fráköst, Margrét Kara Sturludóttir 15/11 fráköst/5 stoðsendingar/3 stolnir, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 12/6 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 8, Erla Dís Þórsdóttir 2, Kristbjörg Pálsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira