Jón Ásgeir og Tryggvi fá skilorđsbundna dóma

Vísir Innlent 03. maí 2007 12:02
Gestur Jónsson, lögmađur Jóns Ásgeirs, og Jakob R. Möller, lögmađur Tryggva í réttarsal í dag.
Gestur Jónsson, lögmađur Jóns Ásgeirs, og Jakob R. Möller, lögmađur Tryggva í réttarsal í dag. MYND/Björn Gíslason
Björn Gíslason skrifar:

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að Baugsmálinu. Þá var Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri félagsins, dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir aðild sína að málinu. Ákærulið á hendur Jóni Gerald Sullenberger var vísað frá.

Jón Ásgeir og Tryggvi eru dæmdir sekir fyrir bókhaldsbrot í tengslum við hinn margumrædda kreditreikning frá Nordica.

Þeir eru sagðir hafa látið færa tilhæfulausan kreditreikning frá Nordica til tekna í bókhaldi Baugs. Þá var Tryggvi sakfelldur fyrir að hafa látið færa tilhæfulausa kredityfirlýsingu frá færeyska félaginu SMS í bókhaldið en Jón Ásgeir sýknaður í þeim lið, þeim 16. Enn fremur var Tryggi sakfelldur samkvæmt ákærulið 17 sem laut að tilhæfulausri bókhaldsfærslu um sölu á hlutabréfum til Kaupþings.

Dómarnir yfir Jóni Ásgeiri og Tryggva eru skilorðsbundnir til tveggja ára.

Alls var ákært í 18 liðum í endurákærunni sem Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í málinu, gaf út eftir að 32 ákæruliðum í upprunalegri ákæru í Baugsmálinu var vísað frá dómi. Ákæruliðirnir voru upphaflega 19 en einum þeirra, sem laut að meintu auðgunarbroti Jóns Ásgeirs, var vísað frá dómi.

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, var ákærður í 17 af 18 ákæruliðanna. Ákæruliðir 2-9 lutu að meintum ólögmætum lánveitingum frá Baugi til félaganna Gaums og Fjárfars og Kristínar Jóhannesdóttur en Jóni Ásgeiri var gefið að sök að hafa hlutast til um lánin á þeim tíma sem Baugur var almenningshlutafélag, nánar tiltekið á árunum 1999-2001. Þeim var öllum vísað frá dómi í morgun á þeim grundvelli að refsiheimild skorti í hlutafélagalögum til þess að hægt væri að dæma einstakling fyrir brot af þessu tagi.

Auk þess var 10. ákærulið, þar sem Jóni Ásgeiri var gefið að sök að hafa látið rangfæra bókhald Baugs í tengslum við fyrirtækið Baugur.net, vísað frá.

Sama má segja um 19. ákærulið þar sem Tryggva var gefinn að sök fjárdráttur með því að hafa látið Baug greiða fyrir persónuleg útgjöld sem hann stofnaði til með kreditkorti í reikning Nordica. Honum var vísað frá á þeim grundvelli að ákæran væri ekki nógu skýr, þ.e. að þeir kreditkortareikningar sem ákært var fyrir hefðu ekki verið sundurliðaðir í ákærunni og því hefði Tryggvi ekki getað tekið afstöðu til hverrar greiðslu með kortinu.

Sakfellt fyrir tilhæfulausan kreditreikning

Í ákæruliðum 11-14 voru Jóni Ásgeiri og Tryggva gefin að sök bókhaldsbrot tengd Baugi. Jón Ásgeir var sýknaður af öllum ákæruliðum en Tryggvi dæmdur fyrir bókhaldsbrot samkvæmt 14. ákærulið sem laut að sölu á hlutabréfum í Arcadia til Kaupþings sem ekki áttu sér stoð í raunveruleikanum.

Þeir voru svo báðir báðir sakfelldir fyrir bókhaldsbrot samkvæmt 15. ákærulið með því að hafa látið færa tilhæfulausan kreditreikning frá Nordica upp á tæpar 62 milljónir til tekna í bókhaldi Baugs sumarið 2001.

Jón Gerald var einnig ákærður í þessum ákærulið, fyrir að hafa útbúið kreditreikninginn, en með vísan til þess að hann hafi ekki notið þeirra réttinda sakbornings við lögreglurannsókn málsins sem lagaákvæði segja til um var ákærunni á hendur honum vísað frá.

Tryggi sakfelldur í fjórum ákæruliðum

Þá var Tryggvi sakfelldur fyrir að hafa látið færa tilhæfulausa kredityfirlýsingu frá færeyska félaginu SMS í bókhald Baugs sama sumar en Jón Ásgeir sýknaður í þeim lið, þeim 16.

Enn fremur var Tryggi sakfelldur samkvæmt 17. ákærulið sem laut að tilhæfulausri bókhaldsfærslu um sölu á hlutabréfum til Kaupþings upp á 330 mlljónir króna. Alls var Tryggvi sakfelldur í fjórum ákæruliðum.

Enn fremur var Jóni Ásgeiri og Tryggva gefið að sök að hafa dregið Fjárfestingarfélaginu Gaumi um 32 milljónir króna frá Baugi til þess að fjármagna eignarhlutdeild og kostnað Gaums vegna skemmtibátsins Thee Viking á Flórída.

Þeir voru sýknaðir af þeim ákærulið þar sem að fjármunirnir sem um ræðir runnu ekki til Gaums heldur Nordica. Segir dómurinn að ekki megi dæma menn fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir og þar sem ósannað sé að ákærðu hafi dregið Gaumi fé, eins og þeir eru ákærðir fyrir, verði þeir sýknaðir af þessum lið ákærunnar.

Dómarnir yfir Jóni Ásgeiri og Tryggva eru skilorðsbundnir til tveggja ára. Þá úrskurðaði dómurinn að málsvarnarlaun skipaðs verjanda Jóns Ásgeirs, 15,3 milljónir króna, skyldu greiðast að 9/10 úr ríkissjóði en Jón Ásgeir 1/10.

Málsvarnarlaun skipaðs verjanda Tryggva, 11,9 milljónir, greiðast að 4/5 úr ríkissjóði en 1/5 af Tryggva. Málsvarnarlaun skipaðs verjanda Jóns Geralds, 7,9 milljónir króna, greiðast alfarið úr ríkissjóði.

Þá skulu Jón Ásgeir og Tryggvi greiða fimm milljónir í sakarkostnað til ríkissjóðs. Kostnaður Jóns Ásgeirs upp á tæpar 26 milljónir er að 1/10 hluta greiddur af honum en að 9/10 hlutum skal hann greiddur úr ríkissjóði.

Dóminn í heild sinni má sjá hér að neðan.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Ţađ er eitthvađ súrt viđ ţetta“

"Ţetta slćr menn,“ segir Björn Valur Gíslason, ţingflokksformađur Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu fćrandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu međ gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluţjónn kćrir falsađa undirskrift á lista Ástţórs

Daníel Guđjónsson, yfirlögregluţjónn á Akureyri, hefur kćrt fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eđlilegt ađ lögreglan rannsaki frambođslista

Ástţór Magnússon forsetaframbjóđandi hefur skilađ hátt í 200 undirskriftum til viđbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóđ á bak viđ stćrsta fíkniefnainnflutning síđasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóđu ađ innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta ţúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrđi

Rúnar Bjarki Ríkharđsson, sem fékk einn ţyngsta dóm sem falliđ hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsćtisráđherra, hefur gengiđ til liđs viđ OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Međ loftbyssu og skotfćri í Leifsstöđ

Karlmađur var međ loftbyssu og skotfćri í fórum sínum í Flugstöđ Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar ađ kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á nćstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóđa upp á nettengingu í háloftunum

Ţeir sem fljúga međ flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta veriđ netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farţega

Lögreglan á Akranesi stöđvađi í gćrkvöldi bifreiđ sem var á ferđ viđ bćinn. Ţrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveđinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verđur kveđinn upp í einu stćrsta fíkniefnamáli síđasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákćrđur fyrir hćttulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmađur hefur veriđ ákćrđur fyrir sérstaklega hćttulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tćplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sćvar Sverrisson, höfuđpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dćmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuđningur viđ áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embćtti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvćmdastjórn Evrópu tilkynntu í gćr um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hćttulegrar árásar

Hćstiréttur stađfesti í gćr dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herđi Ţráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leiđ til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viđbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annţórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verđur rýmdur fyrir tvo fanga sem grunađir eru um manndráp áđ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosiđ um sameiningu í haust

Íbúar Garđabćjar og Álftaness munu greiđa atkvćđi um ţađ í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um ađ aukinn trjágróđur og byggđ innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferđin kom til af nauđsyn

Lćkkun á veiđigjaldi frá ţví sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnađi 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Bođar skođun á innra skipulagi embćttisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verđa endurskođađar í kjölfar ţess ađ embćttiđ kćr...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glćpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alţingis beinir ţeim tilmćlum til innanríkisráđherra ađ und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagrćđingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fćkkar um 50 um mánađamótin vegna hagrćđingarađgerđa. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kćrt til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á ţví a...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:00

Segir jafnréttismál í ólestri

Ţorgerđur Katrín Gunnarsdóttir, ţingmađur Sjálfstćđisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:34

Verjandi líkti al-Thani málinu viđ mál Mladic

Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöđu sakborninga ţess ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:30

Björk fékk Webby verđlaunin

Björk Guđmundsdóttur voru veitt Webby verđlaunin í vikunni í flokknum listamađur ársins. ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 21:28

Búinn ađ skila međmćlendalista

„Viđ erum búin ađ skila međmćlendalistunum," segir Hannes Bjarnason, forsetaframbjóđ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:30

Íslendingar duga ekki á Drekasvćđiđ - gefast upp

Útgerđarmađurinn sem er á leiđ í olíuleit á Drekasvćđinu segir ađ ekki ţýđi lengur ađ hafa...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 20:00

"Menntaskólakerfiđ er undirlagt af kannabisneyslu"

Magnús Stefánsson, forvarnarfulltrúi, hefur miklar áhyggjur af aukinni neyslu ungmenna á k...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:56

Jóhanna og Füle rćddu gjaldeyrishöftin

Jóhanna Sigurđardóttir, forsćtisráđherra, fundađi í dag međ Stefan Füle, framkvćmdastjóra ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 19:30

Catalina lenti á Reykjavíkurflugvelli

Catalina flugbáturinn, sem verđur helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, lenti á R...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:49

Verjandi Barkar furđar sig á umfjöllun fjölmiđla

Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunađur er um ađ hafa banađ mann á Litla Hrauni 17. maí ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:45

Íhuga ađ hćtta viđ komu skemmtiferđaskips vegna tollalaga

Franskt félag íhugar ađ hćtta viđ fyrirhugađa siglingu skemmtiferđaskips viđ Íslandsstrend...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 18:30

Fjölskyldufyrirtćki tapađi gengismáli

Skuldastađa yfir ţúsund fyrirtćkja er í uppnámi eftir ađ Hćstiréttur sýknađi Lýsingu nú sí...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 17:58

Hćstiréttur sýknar Fylki

Hćstiréttur sýknađi í dag Íţróttafélagiđ Fylkir af kröfum Sveins Rafns Eiđssonar en hann s...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:58

Byssumađur reyndist vera leikari

Sem betur fer eru útköll lögreglu stundum byggđ á misskilningi. Ţannig var ţví t.d. fariđ ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:42

Lögmenn Annţórs ósáttir viđ framgang lögreglu

Lögmenn Annţórs Kristjáns Karlssonar, sem grunađur er um ađ hafa banađ Sigurđi Hólm Sigurđ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 16:17

Í ađgerđ vegna fótbrots - konan hryggbrotnađi

Karlmađurinn, sem féll niđur um 40 metra ţegar ađ brún á Lágey Dyrhólaeyjar gaf sig í dag,...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 15:36

Könnuđust ekki viđ ađ styđja Ástţór

Stikkprufur sem yfirkjörstjórn í Norđausturkjördćmi hefur framkvćmt hefur leitt í ljós ađ ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:59

Ţjóđaratkvćđagreiđsla fer fram um tillögur stjórnlagaráđs

Ţingmenn samţykktu nú á ţriđja tímanum tillögur um ţjóđaratkvćđagreiđslu um tillögu stjórn...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:56

Íbúar kjósa um sameiningu í haust

Íbúar Garđabćjar og Álftaness munu í haust greiđa atkvćđi um ţađ hvort ađ sameina eigi sve...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:48

Nćstum helmingur ók of hratt í Sigtúni

Brot 46 ökumanna voru mynduđ í Sigtúni í Reykjavík í dag. Fylgst var međ ökutćkjum sem var...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:47

Kannabis í Kópavogi

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu stöđvađi kannabisrćktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gć...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:16

Björgunarsveitarmađur: Kraftaverk hvađ ţau sluppu vel

"Ţetta er ekkert annađ en kraftaverk,“ segir Grétar Einarsson úr björgunarsveitinni ...  

Meira
Innlent 24. maí. 2012 14:08

Tekur 500 klukkustundir ađ fara yfir málskjölin

Ćtla má ađ ţađ taki verjendur 500 klukkustundir ađ fara yfir málskjöl í al-Thani málinu ge...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Jón Ásgeir og Tryggvi fá skilorđsbundna dóma