Fleiri fréttir Gjaldeyrisforði minnkaði og krónan veiktist um 0,7 prósent Gengi krónunnar veiktist um 0,7 prósent frá upphafi og til loka 2017 og dróst velta á millibankamarkaði saman um 42 prósent frá fyrra ári. Þá minnkaði gjaldeyrisforði vegna uppgreiðslu á erlendum lánum ríkissjóðs og kaupa á aflandskrónueignum. 11.1.2018 16:44 Kristján ráðinn framkvæmdastjóri eTactica Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eTactica ehf., en Kristján hefur verið tæknistjóri félagsins frá 2015. 11.1.2018 13:48 Þúsund efnamestu eiga nær allt Þúsund eignamestu einstaklingarnir í íslensku viðskiptalífi eiga nærri allt eigið fé einstaklinga í íslenskum fyrirtækjum, eða yfir 98 prósent. 11.1.2018 09:32 Vöruskiptahalli aldrei meiri í krónum talið Vöruskiptahalli var 172 milljarðar í fyrra en samt er útlit fyrir um 100 milljarða viðskiptaafgang. Innflutningur neysluvara hefur aukist mikið. Hagfræðingur segir aukna skuldsetningu heimila aðeins skýra hluta af vexti einkaneyslu. 11.1.2018 06:00 Sæmundur Sæmundsson nýr forstjóri Borgunar Sæmundur tekur við af Hauki Oddssyni, sem sagði upp störfum á síðasta ári eftir tíu ára starf. 10.1.2018 18:01 Sveinn nýr fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins Sveinn H. Guðmarsson hefur verið ráðinn fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins. 10.1.2018 17:52 Eva Sóley ný í stjórn Júpíter Eva Sóley Guðbjörnsdóttir var kjörin í stjórn Júpíter rekstrarfélags á hluthafafundi félagsins í desember síðastliðnum. 10.1.2018 12:24 Fluttu 2,8 milljónir farþega á síðasta ári Um er að ræða 69 prósent fjölgun farþega frá árinu áður. Sætanýting WOW air árið 2017 var 88 prósent sem er sú sama og árið 2016. 10.1.2018 11:09 Spá því að EBITDA Haga lækki um 39 prósent Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir því að rekstrarhagnaður verslunarfélagsins Haga fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) hafi numið 850 milljónum króna á rekstrartímabilinu 1. september til 30. nóvember í fyrra 10.1.2018 10:30 Eigendur Atlantsolíu setja félagið í formlegt söluferli Eigendur olíufélagsins Atlantsolíu, sem rekur nítján sjálfsafgreiðslustöðvar á landinu öllu, hafa sett félagið í formlegt söluferli. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa nokkrir fjárfestar sýnt félaginu áhuga. 10.1.2018 10:30 Eigendur Egils Árnasonar og Harðviðarvals skoða sölu Eigendur verslananna Egils Árnasonar og Harðviðarvals skoða nú mögulega sölu á fyrirtækjunum. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa þeir leitað til verðbréfafyrirtækisins Arctica Finance til þess að kanna áhuga fjárfesta á kaupum á fyrirtækjunum. 10.1.2018 10:00 Magnús Kristinsson kaupir í Kviku banka Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, hefur fjárfest í Kviku banka en félagið Q44, sem er í eigu Magnúsar og fjölskyldu í gegnum Fjárfestingarfélagið Blik ehf., gekk nýlega frá kaupum á 1,25 prósenta hlut í fjárfestingabankanum. 10.1.2018 08:00 Íbúðaverð lækkar og leigumarkaður minnkar Íbúðaverða á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,7 prósent milli mánaða. 10.1.2018 07:36 Óskabein næststærsti hluthafi Korta með tíu prósenta hlut Fjárfestingafélagið Óskabein skráði sig fyrir 10 prósenta hlut þegar fjárfestar lögðu Kortaþjónustunni til nærri 1.500 milljónir króna í nýtt hlutafé. Bakkavararbræður eiga fimm prósent og Sigurður Bollason er með sex prósenta hlut. 10.1.2018 07:30 Vilja meta fjárhagslegt tjón lífeyrissjóðanna Fagfjárfestasjóðurinn Arev NII krefst þess að dómkvaddir verði matsmenn til að meta fjárhagslegt tjón sem hluthafar telja sig hafa orðið fyrir. 10.1.2018 07:15 Arðsemi í sjávarútvegi tvöfalt meiri en almennt í atvinnulífinu Arðsemi eigna í sjávarútvegi dróst saman um þriðjung 2009 til 2016 á sama tíma og arðsemi í atvinnulífinu jókst um nærri sjötíu prósent. Arðsemi sjávarútvegsfyrirtækja er engu að síður talsvert betri en almennt í atvinnulífinu. 10.1.2018 07:00 Icelandair flýgur til Kansas City í vor Flugáætlun Icelandair í ár verður sú umfangsmesta í sögu félagsins. 9.1.2018 17:22 Borgin greiðir 14,6 milljarða til Brúar lífeyrissjóðs Reykjavíkurborg greiddi Brú lífeyrissjóði 14,6 milljarða króna undir lok síðasta árs til að gera upp áfallnar lífeyrisskuldbindingar upp á 3,5 milljarða og áætlaðar framtíðarskuldbindingar upp á 10 milljarða. Þá var lagt framlag í varúðarsjóð upp á einn milljarð. 9.1.2018 16:10 Viðgerð á Hoffelli Samskipa tefst Skipið mun ekki leggja úr höfn í þessari viku. 9.1.2018 15:41 Jóhanna ráðin fræðslu- og jafnréttisfulltrúi BHM Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir hefur verið ráðin fræðslu- og jafnréttisfulltrúi BHM. 9.1.2018 15:05 Hildur nýr mannauðsstjóri Mannvits Hildur Þórisdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Mannvits. Hún tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. 9.1.2018 13:38 Björgvin Skúli ráðinn framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar Björgvin Skúli Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi hjá fyrirtækinu síðastliðinn föstudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 9.1.2018 12:19 Brynja í stjórn Fossa markaða Brynja Baldursdóttir var kjörin í stjórn Fossa markaða á hluthafafundi félagsins í desember síðastliðnum. 9.1.2018 11:02 Icelandair aldrei flutt jafn marga og á síðasta ári Flutningatölur Icelandair fyrir árið 2017 liggja fyrir og kemur þar fram að félagið hefur aldrei flutt fleiri farþega á einu ári. Voru farþegar alls fjórar milljónir. 9.1.2018 10:03 Marina Candi nýr prófessor við viðskiptadeild HR Marina Candi hefur gegnt stöðu dósents við HR frá árinu 2010. 9.1.2018 09:51 Nítján milljarða greiðsla ríkissjóðs inn á lífeyrisskuldbindingar Fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti í dag samkomulag við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR) um framsal eigna fyrir 19 milljarða króna. Framsalið er gert á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2017 sem Alþingi samþykkti 30. desember síðastliðinn. 8.1.2018 16:15 Kynna fjórðu leiðina við bókun á flugi Nýi valkosturinn heitir WOW comfy og verður hægt að nýta sér hann þegar bókað er flug með félaginu. Í WOW comfy er innifalinn flugmiði, lítið veski, innrituð taska, handfarangur, forfallavernd og sæti með XL eða XXL sætabili. 8.1.2018 14:41 Fanney Birna ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans Sinnti Fanney starfi aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins á sínum tíma en undanfarið ár hefur hún stýrt pólitíska umræðuþættinum Silfrinu á RÚV ásamt Agli Helgasyni. Segir í tilkynningunni að hún muni áfram stýra þættinum með Agli. 8.1.2018 13:21 Ganga frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði Opin kerfi og Ríkiskaup hafa gengið frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði. Um er að ræða samning þar sem Opin kerfi er skilgreint sem forgangsbirgi Ríkiskaupa næstu þrjú árin í kaupum Ríkisstofnana á miðlægum tölvubúnaði. 8.1.2018 13:01 Fjárfesta í Solid Clouds fyrir 270 milljónir Kjölur fjárfestingarfélag og aðrir tæknifjárfestar hafa fjárfest fyrir 270 milljonir króna í íslenska tölvuleikjaframleiðandanum Solid Clouds herkænskuleikinn Starborne. Auk þess fékk Solid Clouds vaxtarstyrk til tveggja ára frá Tækniþróunarsjóði. 8.1.2018 10:41 Tomato rukkar nú hærra þjónustugjald í hraðbönkum en stóru bankarnir þrír Innlendir greiðslukortshafar eru nú rukkaðir um 185 króna þjónustugjald þegar þeir taka út pening úr hraðbönkum Tomato. 8.1.2018 09:15 Nokkurra vikna aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis og langur vitnalisti Aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 17. janúar næstkomandi. 8.1.2018 09:00 Karl Wernersson skilaði rangri skattskýrslu um aflandsfélag Yfirskattanefnd staðfesti niðurstöðu Ríkisskattstjóra að hluta en féllst á kröfu Karls í einum lið. Skattstofn Karls lækkar um 739 milljónir. 8.1.2018 06:00 Vetur hagræðingar fram undan að mati Samtaka atvinnulífsins Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, lét orðin falla á hádegisfundi SA í gær. 6.1.2018 11:48 Tilraunir í eldhúsinu urðu að 30 milljarða viðskiptasamningi: Lykillinn að „djöflast svolítið í þessu“ Franski mjólkurrisinn Lactalis hefur ákveðið að kaupa The Icelandic Milk and Skyr Corporation. Siggi vill ekkert gefa upp um kaupverðið en eignarhlutur hans í fyrirtækinu er um 25 prósent. 5.1.2018 22:14 Nýherji og dótturfélögin sameinast undir nafninu Origo Nýherji og dótturfélögin Applicon og TM Software hafa sameinast undir nafninu Origo. 5.1.2018 19:12 Stofnandi Color Run selur 51 prósenta hlut sinn Davíð Lúther Sigurðarson hefur selt 51 prósenta hlut sinn í Basic International ehf. til Manhattan ehf. 5.1.2018 18:30 Minna flutt inn af flugeldum í takt við minni hagvöxt 578 tonn af flugeldum voru flutt til landsins á síðasta ári og er það heldur minna en árið áður, 2016, þegar 662 tonn voru flutt inn. Er það í takt við minni vöxt hagkerfisins á milli ára, að því er fram kom í kynningu Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, á hádegisfundi samtakanna með fjölmiðlum í dag. 5.1.2018 14:15 Magnús Kristinn nýr framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar Magnús Kristinn Ásgeirsson lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar. 5.1.2018 10:23 „Frekar myndum við fara í fangelsi“ Aðalmeðferð í lögbannsmáli Glitnis HoldCo gegn Stundinni fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 5.1.2018 09:05 Mjólkurrisi kaupir Siggi's skyr Franska mjólkurfyrirtækið Lactalis hefur ákveðið að kaupa The Icelandic Milk and Skyr Corporation, 5.1.2018 07:24 Kerecis selur skuldabréf fyrir 300 milljónir króna Lækningavörufyrirtækið Kerecis seldi fyrir áramót skuldabréf með breytirétti fyrir 300 milljónir króna til hluthafa félagsins. 5.1.2018 07:00 Bíða eftir niðurstöðu dómstóls í lögbannsmáli Þess er nú beðið að héraðsdómur taki afstöðu til ákvörðunar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja lögbannsbeiðni vegna afhendingu Isavia á gögnum sem varða forval um leigu á aðstöðu fyrir veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2014. 5.1.2018 06:15 Íslendingar eru orðnir meðvitaðri neytendur Neytendastofu berast margar ábendingar í kringum útsölur, flestar snúa að röngu fyrra verði þannig að afsláttur sé látinn líta út fyrir að vera meiri en hann er. 4.1.2018 22:30 Nýtt skipurit innleitt hjá Icelandair Í kjölfar skipulagsbreytinga sem gerðar hafa verið hjá Icelandair Group, og tilkynnt var um í nóvember síðastliðnum, hefur verið ákveðið að innleiða nýtt skipurit hjá félaginu. 4.1.2018 18:12 Sjá næstu 50 fréttir
Gjaldeyrisforði minnkaði og krónan veiktist um 0,7 prósent Gengi krónunnar veiktist um 0,7 prósent frá upphafi og til loka 2017 og dróst velta á millibankamarkaði saman um 42 prósent frá fyrra ári. Þá minnkaði gjaldeyrisforði vegna uppgreiðslu á erlendum lánum ríkissjóðs og kaupa á aflandskrónueignum. 11.1.2018 16:44
Kristján ráðinn framkvæmdastjóri eTactica Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eTactica ehf., en Kristján hefur verið tæknistjóri félagsins frá 2015. 11.1.2018 13:48
Þúsund efnamestu eiga nær allt Þúsund eignamestu einstaklingarnir í íslensku viðskiptalífi eiga nærri allt eigið fé einstaklinga í íslenskum fyrirtækjum, eða yfir 98 prósent. 11.1.2018 09:32
Vöruskiptahalli aldrei meiri í krónum talið Vöruskiptahalli var 172 milljarðar í fyrra en samt er útlit fyrir um 100 milljarða viðskiptaafgang. Innflutningur neysluvara hefur aukist mikið. Hagfræðingur segir aukna skuldsetningu heimila aðeins skýra hluta af vexti einkaneyslu. 11.1.2018 06:00
Sæmundur Sæmundsson nýr forstjóri Borgunar Sæmundur tekur við af Hauki Oddssyni, sem sagði upp störfum á síðasta ári eftir tíu ára starf. 10.1.2018 18:01
Sveinn nýr fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins Sveinn H. Guðmarsson hefur verið ráðinn fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins. 10.1.2018 17:52
Eva Sóley ný í stjórn Júpíter Eva Sóley Guðbjörnsdóttir var kjörin í stjórn Júpíter rekstrarfélags á hluthafafundi félagsins í desember síðastliðnum. 10.1.2018 12:24
Fluttu 2,8 milljónir farþega á síðasta ári Um er að ræða 69 prósent fjölgun farþega frá árinu áður. Sætanýting WOW air árið 2017 var 88 prósent sem er sú sama og árið 2016. 10.1.2018 11:09
Spá því að EBITDA Haga lækki um 39 prósent Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir því að rekstrarhagnaður verslunarfélagsins Haga fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) hafi numið 850 milljónum króna á rekstrartímabilinu 1. september til 30. nóvember í fyrra 10.1.2018 10:30
Eigendur Atlantsolíu setja félagið í formlegt söluferli Eigendur olíufélagsins Atlantsolíu, sem rekur nítján sjálfsafgreiðslustöðvar á landinu öllu, hafa sett félagið í formlegt söluferli. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa nokkrir fjárfestar sýnt félaginu áhuga. 10.1.2018 10:30
Eigendur Egils Árnasonar og Harðviðarvals skoða sölu Eigendur verslananna Egils Árnasonar og Harðviðarvals skoða nú mögulega sölu á fyrirtækjunum. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa þeir leitað til verðbréfafyrirtækisins Arctica Finance til þess að kanna áhuga fjárfesta á kaupum á fyrirtækjunum. 10.1.2018 10:00
Magnús Kristinsson kaupir í Kviku banka Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, hefur fjárfest í Kviku banka en félagið Q44, sem er í eigu Magnúsar og fjölskyldu í gegnum Fjárfestingarfélagið Blik ehf., gekk nýlega frá kaupum á 1,25 prósenta hlut í fjárfestingabankanum. 10.1.2018 08:00
Íbúðaverð lækkar og leigumarkaður minnkar Íbúðaverða á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,7 prósent milli mánaða. 10.1.2018 07:36
Óskabein næststærsti hluthafi Korta með tíu prósenta hlut Fjárfestingafélagið Óskabein skráði sig fyrir 10 prósenta hlut þegar fjárfestar lögðu Kortaþjónustunni til nærri 1.500 milljónir króna í nýtt hlutafé. Bakkavararbræður eiga fimm prósent og Sigurður Bollason er með sex prósenta hlut. 10.1.2018 07:30
Vilja meta fjárhagslegt tjón lífeyrissjóðanna Fagfjárfestasjóðurinn Arev NII krefst þess að dómkvaddir verði matsmenn til að meta fjárhagslegt tjón sem hluthafar telja sig hafa orðið fyrir. 10.1.2018 07:15
Arðsemi í sjávarútvegi tvöfalt meiri en almennt í atvinnulífinu Arðsemi eigna í sjávarútvegi dróst saman um þriðjung 2009 til 2016 á sama tíma og arðsemi í atvinnulífinu jókst um nærri sjötíu prósent. Arðsemi sjávarútvegsfyrirtækja er engu að síður talsvert betri en almennt í atvinnulífinu. 10.1.2018 07:00
Icelandair flýgur til Kansas City í vor Flugáætlun Icelandair í ár verður sú umfangsmesta í sögu félagsins. 9.1.2018 17:22
Borgin greiðir 14,6 milljarða til Brúar lífeyrissjóðs Reykjavíkurborg greiddi Brú lífeyrissjóði 14,6 milljarða króna undir lok síðasta árs til að gera upp áfallnar lífeyrisskuldbindingar upp á 3,5 milljarða og áætlaðar framtíðarskuldbindingar upp á 10 milljarða. Þá var lagt framlag í varúðarsjóð upp á einn milljarð. 9.1.2018 16:10
Jóhanna ráðin fræðslu- og jafnréttisfulltrúi BHM Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir hefur verið ráðin fræðslu- og jafnréttisfulltrúi BHM. 9.1.2018 15:05
Hildur nýr mannauðsstjóri Mannvits Hildur Þórisdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Mannvits. Hún tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins. 9.1.2018 13:38
Björgvin Skúli ráðinn framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar Björgvin Skúli Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi hjá fyrirtækinu síðastliðinn föstudag, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 9.1.2018 12:19
Brynja í stjórn Fossa markaða Brynja Baldursdóttir var kjörin í stjórn Fossa markaða á hluthafafundi félagsins í desember síðastliðnum. 9.1.2018 11:02
Icelandair aldrei flutt jafn marga og á síðasta ári Flutningatölur Icelandair fyrir árið 2017 liggja fyrir og kemur þar fram að félagið hefur aldrei flutt fleiri farþega á einu ári. Voru farþegar alls fjórar milljónir. 9.1.2018 10:03
Marina Candi nýr prófessor við viðskiptadeild HR Marina Candi hefur gegnt stöðu dósents við HR frá árinu 2010. 9.1.2018 09:51
Nítján milljarða greiðsla ríkissjóðs inn á lífeyrisskuldbindingar Fjármála- og efnahagsráðuneytið staðfesti í dag samkomulag við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins (LSR) um framsal eigna fyrir 19 milljarða króna. Framsalið er gert á grundvelli heimildar í fjáraukalögum fyrir árið 2017 sem Alþingi samþykkti 30. desember síðastliðinn. 8.1.2018 16:15
Kynna fjórðu leiðina við bókun á flugi Nýi valkosturinn heitir WOW comfy og verður hægt að nýta sér hann þegar bókað er flug með félaginu. Í WOW comfy er innifalinn flugmiði, lítið veski, innrituð taska, handfarangur, forfallavernd og sæti með XL eða XXL sætabili. 8.1.2018 14:41
Fanney Birna ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans Sinnti Fanney starfi aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins á sínum tíma en undanfarið ár hefur hún stýrt pólitíska umræðuþættinum Silfrinu á RÚV ásamt Agli Helgasyni. Segir í tilkynningunni að hún muni áfram stýra þættinum með Agli. 8.1.2018 13:21
Ganga frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði Opin kerfi og Ríkiskaup hafa gengið frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði. Um er að ræða samning þar sem Opin kerfi er skilgreint sem forgangsbirgi Ríkiskaupa næstu þrjú árin í kaupum Ríkisstofnana á miðlægum tölvubúnaði. 8.1.2018 13:01
Fjárfesta í Solid Clouds fyrir 270 milljónir Kjölur fjárfestingarfélag og aðrir tæknifjárfestar hafa fjárfest fyrir 270 milljonir króna í íslenska tölvuleikjaframleiðandanum Solid Clouds herkænskuleikinn Starborne. Auk þess fékk Solid Clouds vaxtarstyrk til tveggja ára frá Tækniþróunarsjóði. 8.1.2018 10:41
Tomato rukkar nú hærra þjónustugjald í hraðbönkum en stóru bankarnir þrír Innlendir greiðslukortshafar eru nú rukkaðir um 185 króna þjónustugjald þegar þeir taka út pening úr hraðbönkum Tomato. 8.1.2018 09:15
Nokkurra vikna aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis og langur vitnalisti Aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 17. janúar næstkomandi. 8.1.2018 09:00
Karl Wernersson skilaði rangri skattskýrslu um aflandsfélag Yfirskattanefnd staðfesti niðurstöðu Ríkisskattstjóra að hluta en féllst á kröfu Karls í einum lið. Skattstofn Karls lækkar um 739 milljónir. 8.1.2018 06:00
Vetur hagræðingar fram undan að mati Samtaka atvinnulífsins Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, lét orðin falla á hádegisfundi SA í gær. 6.1.2018 11:48
Tilraunir í eldhúsinu urðu að 30 milljarða viðskiptasamningi: Lykillinn að „djöflast svolítið í þessu“ Franski mjólkurrisinn Lactalis hefur ákveðið að kaupa The Icelandic Milk and Skyr Corporation. Siggi vill ekkert gefa upp um kaupverðið en eignarhlutur hans í fyrirtækinu er um 25 prósent. 5.1.2018 22:14
Nýherji og dótturfélögin sameinast undir nafninu Origo Nýherji og dótturfélögin Applicon og TM Software hafa sameinast undir nafninu Origo. 5.1.2018 19:12
Stofnandi Color Run selur 51 prósenta hlut sinn Davíð Lúther Sigurðarson hefur selt 51 prósenta hlut sinn í Basic International ehf. til Manhattan ehf. 5.1.2018 18:30
Minna flutt inn af flugeldum í takt við minni hagvöxt 578 tonn af flugeldum voru flutt til landsins á síðasta ári og er það heldur minna en árið áður, 2016, þegar 662 tonn voru flutt inn. Er það í takt við minni vöxt hagkerfisins á milli ára, að því er fram kom í kynningu Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, á hádegisfundi samtakanna með fjölmiðlum í dag. 5.1.2018 14:15
Magnús Kristinn nýr framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar Magnús Kristinn Ásgeirsson lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar. 5.1.2018 10:23
„Frekar myndum við fara í fangelsi“ Aðalmeðferð í lögbannsmáli Glitnis HoldCo gegn Stundinni fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 5.1.2018 09:05
Mjólkurrisi kaupir Siggi's skyr Franska mjólkurfyrirtækið Lactalis hefur ákveðið að kaupa The Icelandic Milk and Skyr Corporation, 5.1.2018 07:24
Kerecis selur skuldabréf fyrir 300 milljónir króna Lækningavörufyrirtækið Kerecis seldi fyrir áramót skuldabréf með breytirétti fyrir 300 milljónir króna til hluthafa félagsins. 5.1.2018 07:00
Bíða eftir niðurstöðu dómstóls í lögbannsmáli Þess er nú beðið að héraðsdómur taki afstöðu til ákvörðunar sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að synja lögbannsbeiðni vegna afhendingu Isavia á gögnum sem varða forval um leigu á aðstöðu fyrir veitingarekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar árið 2014. 5.1.2018 06:15
Íslendingar eru orðnir meðvitaðri neytendur Neytendastofu berast margar ábendingar í kringum útsölur, flestar snúa að röngu fyrra verði þannig að afsláttur sé látinn líta út fyrir að vera meiri en hann er. 4.1.2018 22:30
Nýtt skipurit innleitt hjá Icelandair Í kjölfar skipulagsbreytinga sem gerðar hafa verið hjá Icelandair Group, og tilkynnt var um í nóvember síðastliðnum, hefur verið ákveðið að innleiða nýtt skipurit hjá félaginu. 4.1.2018 18:12