Viðskipti innlent

Fanney Birna ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Fanney Birna er nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Fanney Birna er nýr aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Fanney Birna Jónsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarritstjóri Kjarnans og hefur hún störf nú þegar. Þá mun hún einnig koma inn í eigendahóp fjölmiðilsins en frá þessu er greint á vef Kjarnans.

Sinnti Fanney starfi aðstoðarritstjóra Fréttablaðsins á sínum tíma en undanfarið ár hefur hún stýrt pólitíska umræðuþættinum Silfrinu á RÚV ásamt Agli Helgasyni. Segir í tilkynningunni að hún muni áfram stýra þættinum með Agli. Munu þau því bæði sinna störfum fyrir tvo fjölmiðla, en Egill heldur úti pistlaskrifum á Eyjunni undir merkjum „Silfur Egils“.

„Ég er mjög spennt fyrir því að takast á við þetta verkefni og þróa Kjarnann áfram með því öfluga fólki sem þar er fyrir. Íslenskt samfélag þarfnast nauðsynlega sterkra og óháðra fjölmiðla. Á tímum þar sem blaðamönnum fer fækkandi og almannatenglum hratt fjölgandi, ásamt því að valdamestu menn samfélagsins veigra sér ekki við því að vega að heiðri og þannig trausti fjölmiðla, er beittur, gagnrýninn og aðhaldssamur fréttaflutningur ómetanlegur,“ segir Fanney í tilkynningunni.



„Ég fagna tækifærinu til þess að fá að leggja mitt lóð á vogarskálarnar í þessum efnum hjá Kjarnanum, sem hefur sýnt að miðillinn er til þess gerður að veita bæði stjórnvöldum og stórfyrirtækjum það aðhald sem er nauðsynlegt í okkar lýðræðissamfélagi.“

Þá hefur Kjarninn einnig fengið til liðs við sig Báru Huld Beck, blaðamann, og Gretti Gautason sem mun sjá um verkefna- og sölustjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×