Viðskipti innlent

Magnús Kristinn nýr framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar

Atli Ísleifsson skrifar
Magnús Kristinn Ásgeirsson.
Magnús Kristinn Ásgeirsson. Nasdaq
Magnús Kristinn Ásgeirsson lögfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar. Hann tekur við starfinu af Guðrúnu Ó. Blöndal, sem gegnt hefur starfinu undanfarin fjögur ár en lætur nú af störfum að eigin ósk.

Í tilkynningu frá kemur fram að Magnús sé stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og hlaut Mag Jur. gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2009.

„Hann hefur starfað hjá Nasdaq síðan sumarið 2007; sem lögfræðingur á eftirlitssviði Nasdaq á Íslandi (Kauphöllinni) 2008-2009, hjá viðskiptaeftirliti Nasdaq í Stokkhólmi 2009-2010 og síðan aftur hjá Kauphöllinni sem yfirlögfræðingur hennar frá árinu 2011. Magnús tók þá einnig við stöðu yfirlögfræðings allrar starfsemi Nasdaq á Íslandi sem telur Kauphöllina og Nasdaq verðbréfamiðstöð, seint á árinu 2013  og hefur gegnt þeirri stöðu fram að þessu.“ segir í tilkynningunni.

Magnús mun hefja störf þann 1. febrúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×