Viðskipti innlent

Borgin greiðir 14,6 milljarða til Brúar lífeyrissjóðs

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Þá var tekið 4,9 milljarða lán vegna uppgjörsins.
Þá var tekið 4,9 milljarða lán vegna uppgjörsins. vísir/stefán
Reykjavíkurborg greiddi Brú lífeyrissjóði 14,6 milljarða króna undir lok síðasta árs til að gera upp áfallnar lífeyrisskuldbindingar upp á 3,5 milljarða og áætlaðar framtíðarskuldbindingar upp á 10 milljarða. Þá var lagt framlag í varúðarsjóð upp á einn milljarð.

Í tilkynningu frá borginni segir að reiddir hafi verið fram 9,8 milljarðar úr borgarsjóði með handbæru fé frá rekstri. Þá var tekið 4,9 milljarða lán vegna uppgjörsins en þar segir að kjörin hafi verið þau bestu sem í boði voru í þessum skuldabréfaflokkum.

Verðtryggðir vextir voru 2,74 prósent en óverðtryggðir 5,20 prósent. Í tilkynningunni segir að með því að fjármagna greiðsluna á þennan hátt, í stað þess að taka lán hjá Brú, sé sparnaðurinn 500 milljónir að núvirði.

Í síðasta skuldabréfaútboði borgarinnar var ávöxtunarkrafan 2,58 prósent á nýjum 15 ára verðtryggðum skuldabréfaflokki.

Greiðslan er í samræmi við þær skyldur sem Alþingi samþykkti á ríki og sveitarfélög með setningu laga nr. 127/2016 þegar lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins var breytt en sú lagabreyting hafði einnig áhrif á A-deild Brúar lífeyrissjóðs frá 1. júní 2017 sem kallaði á framlög launagreiðenda til A-deildar sjóðsins. Þá segir í tilkynningunni að með þessu hafi Reykjavíkurborg að fullu staðið við sitt í þessum efnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×