Viðskipti innlent

Vetur hagræðingar fram undan að mati Samtaka atvinnulífsins

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Halldór Benjamín segir að stundum sé mikið svigrúm til launahækkana og stundum lítið.
Halldór Benjamín segir að stundum sé mikið svigrúm til launahækkana og stundum lítið. Vísir/GVA
„Í mínum huga verður þessi vetur vetur hagræðingar hjá mörgum fyrirtækjum,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), á hádegisfundi samtakanna með fjölmiðlum í gær.

Fram kom í máli hans að eftir undraverðan hagvöxt á umliðnum árum væri íslenska hagkerfið að breyta um takt. Hægt hefði á vexti þess. Eftir ríflega sjö prósenta hagvöxt á síðasta ári gera greinendur ráð fyrir þriggja til fjögurra prósenta vexti í ár.

„Við fundum fyrir þessu í fundaherferð SA um landið á haustmánuðum síðasta árs þar sem við ræddum við hundruð manna og tugi fyrirtækja. Sagan var alltaf efnislega sú sama: Það hefur gengið vel en við finnum að launakostnaðurinn er farinn að taka í,“ sagði hann.

Halldór Benjamín benti á að raungengi á mælikvarða launa hefði hækkað verulega undanfarin ár og væri nú álíka hátt og 2007. Hækkunin væri til marks um þverrandi samkeppnishæfni íslenskra útflutningsgreina.

„Ef launaþróunin verður áfram sú sama næstu þrjú ár eins og hún hefur verið síðustu þrjú ár teiknast upp einhvers konar ómöguleiki þar sem íslenskir útflutningsatvinnuvegir verða svo gott sem fullkomlega ósamkeppnishæfir á erlendri grundu.

Stundum er mikið svigrúm til launahækkana og stundum lítið. Nú er það lítið og við verðum að laga okkur að því. Við höfum farið í gegnum gríðarlega miklar launahækkanir til alls þorra manna sem hafa skilað sér nánast að fullu í vaxandi kaupmætti þar sem verðbólga hefur á sama tíma verið lág. Við getum ekki treyst á þessa aðferð aftur vegna þess að við verðum ekki svo heppin aftur.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×