Innlent

Verulega slegið af öryggiskröfum í Húsavíkurflugi

Mynd/Vilhelm

Landssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna telur að með því að flytja gamlan slökkvibíl frá Bakkaflugvelli til Húsavíkur til þess að hægt sé að lenda á flugvelli bæjarins sé verið að slá verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi.

„Vegna verkfallsaðgerða LSS hyggst Flugfélag Íslands færa áætlunarflug sitt frá Akureyri til Húsavíkur. Að mati LSS grípur Flugfélag Íslands gagngert til þessarar ráðstöfunar til þess að komast hjá áhrifum löglega boðaðra verkfallsaðgerða LSS. Það er brot á lögum nr. 80/1938, gr. 14 og 18," segir í tilkynningu frá LSS.

„Starfsmönnum sem ætlað er að sinna öryggisgæslu á Aðaldalsflugvelli, var fyrir aðeins fáum klukkustundum kennd notkun slökkvibílsins, þessa mikilvæga öryggistækis. LSS metur það svo að með þessu hafi verið slegið verulega af öryggiskröfum sem alla jafnan eru gerðar þegar farþegaflug er annars vegar," segir ennfremur.

„Þá telur LSS það skýrt verkfallsbrot að starfsmenn annarra stéttarfélaga gangi í störf félagsmanna LSS sem eru í löglega boðuðum verkfallsaðgerðum," segir að lokum um leið og félagið hvetur forystumenn viðkomandi stéttarfélaga til að koma í veg fyrir umrædd verkfallsbrot.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á félagsfundi LSS í morgun:

Félagsfundur Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), haldinn föstudaginn 13. ágúst 2010, lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefnd LSS.

Lýst er yfir vonbrigðum með störf launanefndar sveitarfélaga og þær yfirlýsingar og rangfærslur sem ítrekað hafa komið frá henni í fjölmiðlum. Jafnframt lýsir félagsfundur yfir megnri óánægju með Isavia og þátttöku þeirra í endurteknum verkfallsbrotum.

Öryggi flugfarþega á Húsavíkurflugvelli er á hendi Isavia og er því að mati félagsmanna LSS telft í tvísýnu með lélegum tækjakosti og skyndimenntun starfsmanna.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×