Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 snýr aftur til Madridar eftir 45 ára fjarveru og mun kappaksturinn fara fram á glænýrri kappakstursbraut. Williams ætlar að fagna því með vitnun í gamlan bíl þeirra en sá bíll var með umdeilanlegan styrktaraðila. Formúla 1 9.9.2026 07:29
Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Charles Leclerc, ökuþór Formúlu 1 liðs Ferrari, segist laskaður á bæði líkama og sál eftir erfiða keppnishelgi á heimavelli Ferrari þar sem að Leclerc missti stjórn á bíl sínum á miklum hraða og skall á öryggisvegg. Formúla 1 8.9.2026 23:01
Enn ein vonbrigðin fyrir Hadjar Vonbrigðin halda áfram fyrir Red Bull-ökumanninn Isack Hadjar en hann mun missa af spænska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Hann hefur ekki enn jafnað sig í úlnliðnum þar sem hann meiddist í ágúst. Formúla 1 8.9.2026 08:01
Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Isack Hadjar fær aftur þriðja sætið í Mónakó eftir að áfrýjunardómstóll Alþjóðlega akstursíþróttasambandsins hafnaði áfrýjun Alpine. Pierre Gasly var verðlaunað þriðja sæti kappakstursins eftir að Alpine áfrýjaði refsingum sem hann fékk. Formúla 1 4. september 2026 13:30
Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Um helgina fer fram ítalski kappaksturinn í Formúlu 1 og mun hann vera þýðingarmikill fyrir Lewis Hamilton, ökumann Ferrari. Með sigri bætir hann met Michaels Schumacher sem sigursælasti ökumaður brautarinnar. Formúla 1 4. september 2026 10:32
Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Kimi Antonelli, forystusauður stigakeppni ökuþóra, mun ræsa aftastur á heimavelli í Formúlu 1-keppni helgarinnar eftir að hafa fengið á sig refsingu. Formúla 1 3. september 2026 16:30
Lando Norris stofnar sitt eigið lið Lando Norris hefur búið til sitt eigið lið fyrir unga ökumenn sem á að gefa þeim greiðari leið í Formúlu 1. Formúla 1 2. september 2026 21:33
Hadjar frá í aðra keppni Isack Hadjar verður ekki með Red Bull um helgina í ítalska kappakstrinum en hann er ekki enn búinn að jafna sig á meiðslum sem hann varð fyrir í sumarfríinu í Formúlu 1. Liam Lawson verður þá áfram hjá Red Bull um helgina og Yuki Tsunoda fær að spreyta sig í annarri keppni. Formúla 1 2. september 2026 19:30
Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Lando Norris hefur framlengt samning sinn hjá McLaren út árið 2030. Honum fannst ákvörðunin um að framlengja ekki erfið. Formúla 1 29. ágúst 2026 12:02
Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Formúlu 1 lið Ferrari mun heiðra goðsögnina Michael Schumacher á heimavelli á Monza eftir rúma viku þegar að keppnishelgi mótaraðarinnar fer þar fram. Formúla 1 28. ágúst 2026 14:17
Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Lewis Hamilton, sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn og liðsmaður Ferrari, sér eftir ummælum sem hann lét falla í samskiptum við lið sitt og í viðtölum eftir erfiða keppni í Hollandi um síðastliðna helgi. Formúla 1 25. ágúst 2026 11:30
Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Eftir sigurinn í hollenska kappakstrinum í gær hefur Lando Norris unnið tvo kappakstra í röð í Formúlu 1. Ef McLaren-bíllinn heldur áfram að bæta sig gæti hann orðið mesti keppinautur Kimi Antonelli sem situr í efsta sæti heimsmeistaramótsins. Formúla 1 24. ágúst 2026 20:00
Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Lewis Hamilton, ökuþór Ferrari, var pirraður út í lið sitt þegar að hollenski kappaksturinn fór fram í gær. Formúla 1 24. ágúst 2026 07:30
Norris náði öðrum sigri Lando Norris hjá McLaren stóð uppi sem sigurvegari í Formúlu 1 kappakstrinum í Hollandi. Hann hefur nú unnið tvær keppnir í röð og minnkað forystu Kimi Antonelli hjá Mercedes í efsta sæti heimslistans. Formúla 1 23. ágúst 2026 15:18
Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Hollendingurinn Max Verstappen, ökumaður Red Bull, er úr leik í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi þessa stundina. Verstappen klessti harkalega á fyrsta hring. Formúla 1 23. ágúst 2026 13:16
Norris náði ráspólnum aftur Ríkjandi meistarinn Lando Norris hjá McLaren er ekki tilbúinn að játa sig sigraðan í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og tryggði sér fremstu stöðu í Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram í Hollandi á morgun. Formúla 1 22. ágúst 2026 15:11
Russell vann sprettinn í þriðja sinn George Russell varð fyrstur í sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Hollandi. Hann var fremstur alla 24 hringina og kom í mark 1,3 sekúndu á undan Charles Leclerc. Formúla 1 22. ágúst 2026 10:46
Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Isack Hadjar braut á sér hendina á boxæfingu og verður ekki með í hollenska kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina. Liam Lawson mun keyra Red Bull-bílinn í hans stað. Formúla 1 21. ágúst 2026 13:47
„Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Í morgun var tilkynnt að Max Verstappen hefði framlengt samning sinn við Red Bull í Formúlu 1. Á blaðamannafundi eftir tilkynninguna sagði Verstappen að hann hefði frekar hætt frekar en að skipta um lið. Formúla 1 20. ágúst 2026 15:20
Verstappen skrifaði undir nýjan samning Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen hefur kveðið niður orðróm þess efnis að hann sé að fara yfirgefa mótaröðina með því að skrifa undir nýjan langtímasamning til ársins 2030 við Red Bull Racing liðið. Formúla 1 20. ágúst 2026 09:07
Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Isack Hadjar mun ekki keyra í hollenska kappakstrinum um helgina. Hann er meiddur á úlnlið og mun Liam Lawson að öllum líkindum koma í hans stað þegar hollenski kappaksturinn fer fram. Formúla 1 19. ágúst 2026 10:02
Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Alex Albon hefur framlengt samning sinn við Williams í Formúlu 1. Nýr samningur mun gilda fram yfir næsta tímabil. Formúla 1 18. ágúst 2026 18:33
Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Ökuþórar mega núna keyra undir bæði fána Rússlands og Belarús í öllum akstursíþróttum. Þjóðsöngur beggja landa hefur einnig fengið leyfi til þess að vera spilaður þegar það á við. Formúla 1 14. ágúst 2026 15:17
Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Cadillac hefur ráðið Marcin Budkowski sem liðsstjóra í Formúlu 1. Hann tekur við af Greame Lowdon sem var liðsstjóri Cadillac. Formúla 1 12. ágúst 2026 15:34