

Vötn eru nú víða ísilögð og árstími ísdorgsins því runninn upp. Veiðivísir spjallaði við Ingimund Bergsson, hjá Veiðikortinu, af þessu tilefni.
Menn þekkja hvernig veiðin þróaðist en af einstökum veiðistöðum gaf Sjávarfoss flesta laxana í sumar, eða 205 talsins. Næst komu Hundasteinar með 73 laxa og Hraunið með 68 laxa. Kerlingaflúðir gáfu svo 53 laxa og Teljarastrengur 44, en skemmst er að minnast þess að fyrstu veiðidagana í sumar var laxi mokað upp í Teljarastreng sem var búnkaður af laxi.
Hrygnan náði að hrygna í fjórgagn og var mætt til hrygningar í fimmta skiptið þegar hún lét glepjast af agni veiðimanns, þá á tíunda aldursári. Þetta er með ólíkindum þar sem sjaldgæft er að sami laxinn nái að hrygna tvisvar hvað þá að ganga oft til hrygningar.
... undanfarin ár hefur ekki verið veitt í klak og seiðum sleppt í ána. Það væri ekki verra að eiga nokkra seiðaárganga í hliðarám og lækjum. Ákvörðun þessi er eftir ráðleggingu fiskifræðings Veiðmálastofnunar.“
„Þetta árið skartaði Laxáin sínu fegursta þegar veiðimenn renndu í hlað við veiðihúsin daginn fyrir opnun. Þá var hiti í lofti og ánægjulegir endurfundir með karlaknúsi venju samkvæmt."
Lax, sem er á leið í Laxá í Hreppum, á langa leið fyrir höndum, og verður að fara fram hjá mörgum torfærum. Ég er þeirrar skoðunar, að netaveiðin á Ölfusársvæðinu, í jökulvatninu, hafi verið og sé að eðlisbreyta stofninum.
"Ég gerði endurbætur á hjólinu. Penn bakelite-hjóli, og gekk mér anzi vel, eftir að ég gat stillt viðnámið. Ég átti það í mörg ár. Það var því í upphafi tilviljun, að ég fór að reyna við löng köst.“
Eina og Veiðivísir greindi frá fyrir stuttu verður frægur veiðikofi fjöllistamannsins Guðmundar Einarssonar frá Miðdal við Stóru-Laxá í Hreppum endurgerður í upprunalegri mynd. Um samstarfsverkefni Veiðifélags Stóru-Laxár og leigutaka árinnar, Lax-ár, er að ræða, en kofinn hefur öðlast sess sem eitt helsta kennileiti árinnar í huga veiðimanna sem venja komur sínar á veiðisvæðið.
"Það er mín skoðun að það sé tímaskekkja að draga net fyrir neðan margar af bestu laxveiðiám landsins," segir Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur
Gunnar Bender hefur í samstarfi við Myndform gefið út nýjan DVD-disk sem er safn af því besta sem sýnt var í þáttunum Veiðivaktinni á sjónvarpsstöðinni ÍNN síðasta sumar.
Þótt blikur séu á lofti í stangaveiðiheiminum segist formaður Stangaveiðifélags Akureyrar síður en svo eiga von á samdrætti í sölu á svæðum félagsins.
Ekki er öruggt að lax sem leiðsögumaður bandarískrar konu landaði fyrir hana í Víðidalsá hafi verið nákvæmlega sá sem konan veiddi. Um þetta má lesa í bók um Víðidalsá og Fitjá.
Úrgangur sem lekið hefur í Ytri-Rangá frá kjúklingasláturhúsi á Hellu er fyrst og fremst sjónræn mengun en hefur ekki valdið skaða í lífríkinu.
Vegleg bók um Víðidals og Fitjá í Húnaþingi er komin á markaðinn. Með bókinni fylgja veiðilýsingar, kort og uppflettiskrár.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur framlengt umsóknarfrest um veiðileyfi næsta sumars til 28. desember. Fresturinn átti að renna út í dag.
Liðsmenn Stangaveiðifélags Reykjavíkur deila um breytingar á úthlutun veiðileyfa í Elliðaánum næsta sumar. Árnefndin var á móti breytingunni.
Laxarækt í Tungufljóti í Biskupstungum er sögð hafa hafa hrakið bleikju sem þar var meira og minna á braut. Deilur hafa verið um svokallaða Tungufljótsdeild á vatnasvæðinu.
Skotveiðifélag Íslands minnir nú félagsmenn sína á að skila inn tómum skothylkjum svo þeir eigi möguleika á að vinna 150 þúsund króna eldsneytisúttekt.
"Glettni veiðigyðjunnar - ekki nema það þó!" er titill nýrrar veiðibókar sem kom út fyrir skömmu. Þetta er saga Bjarna Kristjánssonar, sem er mörgum kunnur sem "Rektorinn" bæði vegna þess að hann var lengi rektor Tækniskóla Íslands en ekki síst af því að vinsæl straumfluga var nefnd eftir honum. Það var Kolbeinn Grímsson sem hnýtti fluguna á sínum tíma þegar þeir félagar voru við veiðar í Laxá í Mývatnssveit.
Bókin Salmon – Salmon: With a Chapter on Iceland er nú til sölu á eBay fyrir 400 þúsund krónur. Bókin var gefin út í 100 eintökum árið 1979. Kristján Eldjárn fekk fyrsta eintakið og Karl Bretaprins annað. Bókin er prentuð á 100 prósenta bómullarpappír, sem er afar sjaldgæft.
Óðinn Sigþórsson segir að umræðan um fyrirhugaðar breytingar á lögum um lax- og silungsveiði byggi á "algjörum misskilningi."