Forsetakosningar 2012

Fréttamynd

Stuðningsgrein vegna framboðs Herdísar Þorgeirsdóttur

Og þá er best að koma sér beint að efninu en vera ekkert að læðast í kringum hlutina með alls konar dæmisögum og hinu og þessu sem hugsanlega er fyndið og skemmtilegt. Ég segi bara stutt og laggott frá því sem stendur hjarta mínu næst og það hljómar svona: Ég kýs Herdísi vegna þess að hún er glöð og sönn og einlæg og af því að hún segir alltaf það sem henni finnst. Og ég kýs hana vegna þess að hún er ástríðufull og heil og gerir alltaf það sem hún segist ætla að gera. Og svo kýs ég Herdísi vegna þess að það mun enginn maður eiga neitt inni hjá henni verði hún kjörin.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Forseti, alþingi og traust

Ísland er góður bústaður. Hér eru auðlindir, fiskimið, orka í fallvötnum, jarðvarmi, stórt ræktanlegt land og mikið rými fyrir núverandi íbúafjölda og síðast en ekki síst hér býr vel menntað, duglegt og að jafnaði vel meinandi fólk. Atvinnuvegir okkar ganga líka vel. Fiskur selst alltaf vel og gerir enn. Við erum nýbúin að auka álframleiðslu umtalsvert, langt í tvöfaldað hana. Og ferðamannaiðnaðurinn vex ár frá ári, hröðum skrefum.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Áfram Ólafur Ragnar

Það er frábært fólk að bjóða sig fram í forsetakosningunum og ég myndi ráða þau öll í vinnu ef ég gæti, en það er þó aðeins einn af þeim sem ég myndi ráða (áfram) í starf forseta Íslands. Það er herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti vor.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki forsetakosningar?

Allar líkur eru á því að Ólafur Ragnar Grímsson verði kjörinn áfram til að gegna embætti forseta Íslands eftir kosningarnar 30. júní þrátt fyrir að hafa lýst yfir eindregnum vilja sínum til að yfirgefa embættið og snúa sér að öðrum verkefnum í áramótaávarpi sínu. Aðspurður um hvað hafi orðið til þess að breyta afstöðu hans þá vísar hann í þann hóp fólks sem kallaði eftir framboði hans sem og þess hóps sem stóð á bak við þá smölun. Forsendur hans og fyrrnefnds hóps eru þær að "á þeim óvissutímum sem við lifum nú sé mikilvægt að hafa reyndan og öflugan forseta sem getur verið málsvari/verndari þjóðarinnar“ og var þar m.a. vísað til vantrausts þjóðarinnar til Alþingis.

Skoðun
Fréttamynd

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Þjóðarpúls Capacent Gallup, sem birtur var í gær, mælir Ólaf Ragnar Grímsson með rétt tæplega 45% fylgi, Þóru Arnórsdóttur með 37%, Ara Trausta Guðmundsson með tæplega 11% fylgi, Herdísi Þorgeirsdóttur með 5,3%, Andreu J. Ólafsdóttur með 1,6% og Hannes Bjarnason með 0,8% fylgi.

Innlent
Fréttamynd

Stuðningsgrein: "Djöfull ertu heppinn!“

Það er útbreitt viðhorf að karlmaður sé fyrirvinna. En líka má spyrja hvers vegna við karlar skyldum vilja forgangsraða lífi okkar þannig að svipta okkur sjálfa tíma með börnunum, og þeim tíma með okkur? Ég á tvö börn, eins og þriggja ára. Ég hef notið þeirrar gæfu að fá að verja með þeim miklum tíma. Hverri stund sem ég hef verið heima hefur verið vel varið. En þetta getur líka tekið á taugarnar. Í einhverju örvæntingarkasti yfir því að vera að missa af öllu utan heimilis, heyri ég í vini mínum og rek honum raunir mínar. Hans svar var þetta: "Djöfull ertu heppinn!“

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Þóru eitt kjörtímabil, síðan Ara Trausta

Ólafi Ragnari er ýmislegt til lista lagt, og hann hefur margt vel gert. En hann mærði útrásarvíkinga fyrir hrun, og eftir hrunið neitaði hann að horfast í augu við afleiðingar þess. Í áramótaávarpi sínu á nýárdag 2012 lét hann að því liggja að hann myndi ekki að bjóða sig aftur fram, - segist svo ekkert hafa meint það.

Skoðun
Fréttamynd

Hvaða frambjóðanda gef ég mitt atkvæði og hvers vegna?

Í bloggi sínu frá 25. júní, segir AK-72 að líklega sé öruggast núna að þegja þunnu hljóði um það hvaða forsetaframbjóðanda maður aðhyllist. Ég er alveg sammála honum. Það væri öruggast. En ég hef samt sem áður tekið þá ákvörðun að segja ykkur hverja ég ætla að kjósa og af hverju. Ég geri ráð fyrir að vera hökkuð í spað fyrir það að ætla að “henda atkvæði mínu í ruslið” eða fyrir það að atkvæði mitt sé óbeinn stuðningur við “Gamla Ísland”, eða annað álíka fáránlegt. En það verður bara að hafa það.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Atkvæði mitt fær Andrea

Þegar forsetaframboðin ber á góma koma iðullega upp sömu tuggurnar. Við þurfum forseta með reynslu og allt að því barnalegt sé að kjósa framboð sem ekki eru líkleg til árangurs, því sé best að velja á milli þeirra sem líklegir eru til að vinna. Ég hef velt þessu svolítið fyrir mér og heimfært þetta á ríkjandi pólitísk öfl í landinu. Ef við værum að ganga til Alþingiskosninga og ég færi með þann þankagang í kjörklefann væru valkostirnir ekki margir né ýkja áhugaverðir þ.e. valið stæði á milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar. Vinstri grænir eða Framsókn væru svo vilta kortið í stöðunni og ný framboð eða viðlíka ferskleiki kæmust ekki á blað vegna reynsluleysis því fyrirfram útilokað væri að þau næðu meirihluta.

Skoðun
Fréttamynd

Til stuðnings Andreu Jóhönnu Ólafsdóttur

Það blasir við eftir umrót síðustu ára að stjórnmálaflokkar í landinu eru handgengnir hagsmunaöflum sem hafa hagsmuni sem ganga gegn hagsmunum meirihluta almennings. Í gegnum stjórnmálaflokka hafa þessi hagsmunaöfl náð ægivaldi yfir Alþingi Íslendinga í tilteknum málum. Þetta er ljóst þegar horft er til þess að Alþingi hefur framselt peningaprentunarvaldið til einkaaðila án skilyrða, viðhaldið verðtryggingarsnörunni, afhent fámennum hópi sjávarauðlindina og horft, með hangandi hendi, á stóran hluta Íslendinga sökkva í skuldafen stökkbreyttra lána.

Skoðun
Fréttamynd

Kjósum nýjan forseta

Eftir fáeina daga höfum við val og getum kosið nýjan forseta. Við erum alltaf stolt af landinu okkar, Nýja Íslandi og Gamla Ísandi en miðað við allt og allt hljómar samt Nýja Ísland betur. Kosningaréttur er einn dýrmætasti réttur okkar. Kosningaréttur er frelsi og þess vegna fylgir honum líka ábyrgð.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Forsetinn er sunnudagur

Konan mín sagði við mig: "Svei mér þá. Ég held það sé bara í fyrsta sinn núna sem ég get kosið það sama og vinkonur mínar.“ Hún á dáldið skrautlegar vinkonur. Sumar sveiflast og aðrar eru pikkfastar á hinum bakkanum, svona eins og við erum dáldið föst á bakkanum hérna megin. En á laugardaginn kemur ætlum við að sameinast, mætast á miðri leið, byggja brú og kjósa það sama.

Skoðun
Fréttamynd

Jafnréttið og prinsippfesta Jóhönnu

Ólafur Þ. Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, ritar tímabæran leiðara í blað sitt 22. júní undir fyrirsögninni: Prinsippkonan. Ritstjórinn greinir frá niðurstöðu nýs héraðsdóms í jafnréttismáli gegn Jóhönnu Sigurðardóttur og segir réttilega að hún reyni "að snúa sig út úr klípunni með orðhengilshætti í fréttatilkynningu“.

Skoðun
Fréttamynd

Ábyrgð Ólafs

Íslendingar eru svo heppnir að búa í einu af þróuðustu samfélögum heims. Ekkert samfélag er þó fullkomið eins og við komumst að haustið 2008. Í rannsóknarskýrslu Alþingis var skoðaður þáttur þeirra sem báru ábyrgð á íslenska efnahagsundrinu og afleiðingum þess. Samkvæmt henni voru það helst stjórnmála- og bankamenn. Einnig segir að breytt gildismat hjá þjóðinni hafi skapað hættulegt andrúmsloft og kemst

Skoðun
Fréttamynd

Ég kæri mig ekki um þennan stimpil!

Ég er eindreginn stuðningsmaður Þóru Arnórsdóttur sem næsta forseta Íslands. Og til þess að svo megi verða er ég tilbúin til að leggja ýmislegt á mig. Ég er tilbúin til að standa í verslunarmiðstöð og dreifa bæklingum til fólks, ég er tilbúin til að tala máli hennar hvar sem ég kem, ég er tilbúin til að afgreiða pylsur ofan í fjölda fólks til að vekja athygli á framboðinu og ég hef meira að segja tekið þátt í afar misgáfulegum samræðum í samfélagsmiðlum um það hvort karlmaður geti séð um ungabarn, þrátt fyrir að finnast þátttaka í slíkri samræðu langt fyrir neðan virðingu sæmilega vel þenkjandi fólks. EN það sem ég er ekki tilbúin að gera er að láta draga mig í dilk með ákveðnu stjórnmálaafli.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Tungan er beitt vopn

Ég kýs Þóru sem næsta forseta vegna þess að hún er heiðarleg, einlæg og er í góðum tengslum við fólkið í landinu og ber mikla virðingu fyrir skoðunum annarra. Ég veit hvað býr í Þóru og ég er þess fullviss að hún mun valda þessu embætti. Kosningabarátta Þóru einkennist af heilindum og virðingu fyrir fólki og þannig þekki ég hana. En það sem gerir Þóru kleift að sinna þessu mikilvæga hlutverki er það að hún á alveg einstaklega góðan og heilbrigðan mann sem stendur eins og klettur við bakið á henni. Það vita allir sem eiga börn að afar mikilvægt er að hafa góðan stuðning frá maka og mér þykir það merki um framfarir og þróun í jákvæða átt hvernig Svavar Halldórsson styður við bakið á konu sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Af hverju Þóru?

Það má kallast nokkur lýðræðisbrestur að hægt sé að verða kjörinn forseti Íslands með verulegum minnihluta greiddra atkvæða. Betra væri að hafa þann hátt á sem Frakkar gera og hafa tvær umferðir, þar sem sú síðari gerði upp á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hljóta á fyrra kjördegi. Nú standa forsetakosningar fyrir dyrum eftir fáeina daga. Sjálfur dreg ég enga dul á að mér finnst brýnast af öllu að koma núverandi forseta frá. Af hverju er það svo brýnt? Ástæður þess hafa verið ágætlega raktar af öðrum og ætla ég ekki að tínunda þær allar en minna á nokkrar.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Frá fortíð til framtíðar

Fyrir rúmlega þremur áratugum urðu skil í Íslandssögunni þegar Vigdís Finnbogadóttir gaf kost á sér til forseta. Í kosningabaráttunni áttu sér stað átök sem fólust í því að sögulegar hefðir tókust á við nýjungar. Aldrei fyrr hafði kona boðið sig fram til forseta á Íslandi. Háværar raddir þeirra sem töluðu gegn kosningu Vigdísar tíunduðu óspart sögulegt fordæmisleysi framboðsins. Þá þótti það heldur ekki sæma að einstæð móðir sæti á Bessastöðum. Fjölmiðlar kepptust við að spyrja forsetaefnið út í það hvernig í ósköpunum hún ætlaði að halda veislur og bjóða höfðingjum heim, einsömul manneskjan. Þá þótti hún ekki nógu frambærileg. Hún færi vel í sjónvarpi að kenna frönsku en lengra út í almannarýmið átti ekki að hleypa henni.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Vill ekki vera forsetinn minn

Ég verð að viðurkenna það að ég hef kosið Ólaf Ragnar Grímsson til forseta allt frá því að hann bauð sig fyrst fram til þess embættis. Ég og fjöldi vina minna hafa þannig stuðlað að því að hann hefur getað gengt þessari stöðu í 16 ár. Ef hann hins vegar verður endurkjörinn nú í hið fimmta sinn, þá verður það ekki með ekki með mínu atkvæði eða með atkvæðum þeirra sem ég þekki best. Reyndar yrði hann kjörinn að meirihluta til með atkvæðum fólks, sem aldrei hefur kosið hann áður, fólks, sem einungis hefur sýnt honum fyrirlitningu í gegn um tíðina.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Hún verður vitur forseti

Tveir Þor-geirar eru frægir úr sögum okkar Íslendinga. Annar þeirra er Þorgeir Hávarsson, kjarkmaður mikill en kjarkur hans var í öfugu hlutfalli við vit. Hann drap að ósekju fjölda manna sem minna máttu sín til að auka virðingu sína. Fyrirmyndir hans voru þeir íslenskir sem fóru til hirða norskra konunga til að elta lýð og drepa. Annar þor-geir var Þorgeir Ljósvetningagoði, sem hafði góðan kjark, en því fylgdi vit meira. Sá Þorgeir hafði kjark til að leggjast undir feld til að hug- leiða gerning til sátta þegar við lá að kristnir menn og heiðnir myndu berjast á Alþingi til úrslita um kristnitöku þjóðarinnar. Undan feldi kom þessi Þorgeir með afurð vit síns, sáttatillögu sem þingheimur sættist á og komst þá friður með þjóðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Vegmóð þjóð á tímamótum

Mér finnst ég vegmóð. Nú þegar nær fjögur ár eru liðin frá hruni, er ég beinlínis farin að þrá að sjá fyrir endann á þessari kreppu. En það merkilega er að það er ekki hin fjárhagslega kreppa sem þjakar mig hvað mest; ég get hreinlega ekki kvartað þó harðnað hafi á dalnum, í ljósi aðstæðna. Nei, það er miklu frekar þessi andlega kreppa , sem mér þykir hrjá okkur öll. Hún þreytir mig mest.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Andrea býður fjármagnsöflunum byrginn

Árið 1996 var ég stödd í Angóla og frétti af því í handskrifuðu sendibréfi að Ólafur Ragnar Grímsson væri orðinn forseti Íslands. Mér fannst það hvorki gott né vont, hafði um margt annað að hugsa. Fyrsta kjörtímabil Ólafs Ragnars bjó ég erlendis. Hann var því orðinn nokkuð rótgróinn forseti þegar ég flutti til Íslands á ný og ég hafði lengi vel enga sérstaka skoðun á honum, hvorki til né frá. Enn bý ég erlendis, að þessu sinni ekki vegna ævintýraþrár eins og þegar Ólafur Ragnar var kjörinn, heldur af illri nauðsyn. Sem einstæð móðir tveggja barna sá ég, eftir íslenska efnahagshrunið, enga mögulega leið til að láta enda ná saman. Sex ára háskólanám hafði ekkert að segja þegar kom að launaviðræðum. Excelskjal eftir excelskjal og ákafir útreikningar leiddu ævinlega hið sama í ljós; það var engin lifandi leið fyrir mig að draga fram lífið á Íslandi, sama hve bjartsýnar tölur ég lét inn í dæmið.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Hógvær leiðtogi allrar þjóðarinnar

Leiðtogi sem sameinar og hvetur er það sem við þörfnumst í dag. Ég minnist þess hvað Kristján Eldjárn og Vigdís vöktu með mér mikið stolt yfir forsetaembættinu. Með hógværð og yfirvegun sameinuðu þau Íslendinga og leiddu fram á veginn. Vissulega erum við ekki að leita til gamalla tíma en þau gildi sem þessir forsetar stóðu fyrir eru sannarlega þau gildi sem við þörfnumst í dag. Til viðbótar þurfum við að líta björtum augum til framtíðar, takast á við þau verkefni sem blasa við og standa saman sem þjóð.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Kjósum Andreu

Þegar umræðan um stjórnarskrána stóð hvað æst í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings lét Sigurður Líndal, lagaprófessor, hafa eftir sér eitthvað á þá leið að við þyrftum ekki nýja stjórnarskrá, heldur væri nær að byrja á því að fara eftir þeirri, sem er í gildi. Nú tel ég að lýðveldið þurfi sárlega á nýrri stjórnarskrá að halda vegna augljósra galla, sem eru á gildandi stjórnarskrá. nægir þar að nefna að ýmsar greinar hennar eru svo galopnar að þær má túlka að vild hvers sem er.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Ég kýs gegn valdaklíkunum

Andrea Ólafsdóttir sagði í viðtali við DV um helgina að hún byggist ekki við að vinna í forsetakosningunum. Þótt ég sé óforbetranleg bjartsýnismanneskja kann ég að meta hreinskilni og raunsæi af þessu tagi, og ekki síður að Andrea skuli láta vera að klæða það í grímubúning orðaleppa eins og algengt er meðal stjórnmálafólks.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Að velja sér forseta

Ég eins og aðrir Íslendingar þurfum að velja okkur forseta til næstu ára. Við eigum val um margar glæsilegar manneskjur að þessu sinni. Hver sem vinnur þær kosningar verður forsetinn minn eins og annara Íslendinga. Óháð hvern ég vel. Ég hef gert upp hug minn að þessu sinni. Ég mun greiða Ólafi Ragnari mitt athvæði. Hann og ekki síður hans betri helmingur hafa sýnt mér og öðrum sem erum í endalausum slag fyrir bættum kjörum þeirra sem verst eru settir á Íslandi og víðar um heiminn að þau eru alltaf tilbúin að aðstoða okkur beint og óbeint.

Skoðun
Fréttamynd

Stuðningsgrein: Mig langar orðið að flytja heim

Ég kemst því miður ekki til þess að kjósa mér forseta, í mínum heimabæ er hvorki sendiráð né ræðismaður og ekki hægt að komast á kjöstað öðruvísi en með bát eða flugvél. Erindi mínu um utankjörfund hjá lögregluyfirvaldinu í bænum mínum var tekið fálega hjá utanríkisráðuneytinu, þar fara menn eftir fordæmum, en gefa ekki.

Skoðun
Fréttamynd

Frambjóðendur opni bókhaldið

Andrea Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðendur hafa báðar opnað bókhald sitt og skora á aðra frambjóðendur að gera slíkt hið sama. Hannes Bjarnason segist ætla að birta bókhald sitt um leið og tími gefst til. Andrea hefur safnað 26 þúsund krónum og Herdís 519 þúsund krónum. Þær hafa báðar birt yfirlit yfir það hverjir hafa styrkt þær.

Innlent
Fréttamynd

Ari Trausti er traustsins verður

"Mikið erum við Íslendingar lánsöm þjóð,“ hugsaði ég þegar ég sá tilkynningu um að Ari Trausti Guðmundsson hygðist bjóða sig fram til forseta.

Skoðun