Kosningar 2009

Fréttamynd

Steingrímur vonast til að gengið styrkist

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagðist á þingi í dag vonast til þess að gengið íslensku krónunnar fari að styrkjast á ný á næstunni. Bjarni Benediktsson, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins spurði ráðherrann hvaða skýring væri á því að krónan væri að gefa eftir, sem væri mikið áhyggjuefni.

Innlent
Fréttamynd

Óðinn valdi Þorgerði besta ræðumanninn

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður var ræðumaður nýafstaðins landsfundar Sjálfstæðisflokksins, að mati Óðins, félags launþega í Sjálfstæðisflokknum. Í öðru sæti var Davíð Oddsson og í þriðja sæti var Kristján Þór Júlíusson.

Innlent
Fréttamynd

Meirihluti vill stjórnlagaþing

60,8 prósent segjast telja að kjósa eigi til stjórnlagaþings í haust. 39,2 prósent eru því mótfallin. Stuðningur við stjórnlagaþing er meiri meðal kvenna en karla. 68,1 prósent kvenna er fylgjandi kosningum til stjórnlagaþings, en 54,6 prósent karla. Þá er aðeins munur á afstöðu eftir búsetu, en íbúar á landsbyggðinni eru heldur hlynntari stjórnlagaþingi en íbúar höfuðborgarsvæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Samið verði við ESB eins fljótt og hægt er

„Við viljum sambærileg kjör fyrir íslenskan almenning og þar sem best gerist í Evrópu. Besta leiðin að þessu markmiði er að leita samninga við Evrópusambandið um fulla aðild og upptöku evru eins fljótt og kostur er."

Innlent
Fréttamynd

Framkvæmdarstýra VG: Kannast ekki við styrk frá Geira á Goldfinger

Drífa Snædal framkvæmdarstýra VG segist ekki sjá nein merki þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi nokkurn tímann þegið styrk frá Geira á Goldfinger eða fyrirtækjum tengdum honum. Geiri sagði í samtali við Vísi í morgun að hann hefði styrkt alla stjórnmálaflokkana fjárhagslega á síðustu árum.

Innlent
Fréttamynd

Vilja Sjálfstæðisflokkinn áfram í stjórnarandstöðu

Samfylkingin vill fleiri konur í lykilstöður, að ríkið eigi ráðandi hlut í einum banka, fækka ráðuneytum og Sjálfstæðisflokkinn áfram í stjórnarandstöðu eftir kosningar. Þetta kom fram í stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur nýs formanns flokksins nú síðdegis. Tillaga um að skipta tjóni vegna verðbólgu milli skuldara og lánveitenda var samþykkt.

Innlent
Fréttamynd

Munstrar sig í áhöfn Bjarna Ben

Kristján Þór Júlíusson óskaði Bjarna Benediktssyni innilega til hamingju með kosninguna í formannsstól Sjálfstæðisflokksins í ræðu sem hann hélt eftir að ljóst var að sá síðarnefndi var kjörinn formaður. Hann sagði að nú væru ekki nema sjö sólarhringar síðan hann tilkynnti um framboð sitt og sá tími sem liðinn sé síðan þá hafi verið ævintýri líkastur. Hann sagði það kannski hljóma væmið en í hans augum væri Sjálfstæðisflokkinn hluti af fjölskyldu sinni.

Innlent
Fréttamynd

Bjarni Ben kosinn formaður Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson var rétt í þessu kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Bjarni sigraði Kristján Þór Júlíusson nokkkuð örugglega en hann hlaut 58% greiddra atkvæða á móti 40,4% sem Kristján hlaut. Alls voru 1705 atkvæði greidd en auðir seðlar voru 5 og ógildir 2. Bjarni er níundi formaður Sjálfstæðisflokksins.

Innlent
Fréttamynd

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins kosinn í dag

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins verður kosinn í dag en í dag er síðasti dagur landsfundar flokksins. Það eru þeir Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson sem slást um formannsstólinn og er reiknað með að mjótt verði á mununum. Þá er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ein í framboði til varaformanns flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Dagur B varaformaður - Jóhanna fékk 97% atkvæða

Dagur B. Eggertsson var kosinn varaformaður Samfylkingarinnar fyrir stundu eftir sig á Árna Páli Árnasyni þingmanni. Dagur hlaut 65,6% en Árni Páll 33,9% greiddra atvkæða á landsfundi flokksins. Dagur sagði að flokkurinn myndi sækja um aðild að ESB að loknum kosningum og myndi bjóða til samstarfs með það að leiðarljósi. Hann sagði Samfylkinguna vera eina flokkinn með plan. Jóhanna Sigurðardóttir var kosinn formaður Samfylkingarinnar með 97% greiddra atkvæða.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að ný ríkisstjórn sæki um aðild að ESB

Fjöldi fólks héðan og þaðan í samfélaginu skrifar undir áskorun sem birt er með auglýsingu í dagblöðunum í dag, um að ríkisstjórn sem tekur við eftir kosningar til Alþingis í apríl, hafi það sem eitt af forgangsverkefnum sínum að skilgreina samningsmarkmið Íslendinga og sæki síðan um aðild að Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Ný forysta Samfylkingar kosin í dag

Ný forysta Samfylkingarinnar verður kosin í dag á landsfundi flokksins í Smáranum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er ein í framboði til formanns en tveir menn berjast um varaformannsembættið, þeir Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og Árni Páll Árnason þingmaður.

Innlent
Fréttamynd

Skattahækkanir eru aðför að fólkinu í landinu

Það kemur ekki til greina að hækka skattana á fjölskyldurnar og fólkið í landinu ofan á himinaháa vexti, háa verðbólgu launalækknair og atvinnuleysi," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þær tillögur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs að hækka eignaskatt.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fjórum þingmönnum í Reykjavík

Sjálfstæðisflokkurinn fengi einungis þrjá þingmenn í Reykjavík suður en tvo þingmenn í Reykjavík norður ef niðurstöður kosninganna yrðu eins og ný könnun Capacent Gallup sýnir. Frá þessu segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur á blogginu sínu.

Innlent
Fréttamynd

Mistök Samfylkingarinnar voru að fylgja ekki eigin sannfæringu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, sagði í setningarræðu í upphafi landsfundar í dag að flokkurinn hafi gert mistök með því að fylgja ekki eigin sannfæringu. Hún sagðist hafa líkt og margir aðrir sýnt ákveðið andvaraleysi gagnvart samfélagsþróuninni. En sem aðili að síðustu ríkisstjórn hafi hún staldrað við tvennt öðru fremur.

Innlent
Fréttamynd

Landsfundur Samfylkingarinnar settur í Smáranum

Landsfundur Samfylkingarinnar átti að hefjast í Smáranum í Kópavogi klukkan fjögur í dag en vegna umferðatafa varð að fresta setningu fundarins um nokkrar míníutur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins mun setja fundinn og flytja lokaræðu sína sem formaður Samfylkingarinnar. Samfylkingarmenn gera ráð fyrir að um tvö þúsund manns sæki fundinn alls staðar að af landinu en fundurinn er raunar opinn öllum sem áhuga hafa.

Innlent
Fréttamynd

Borgarahreyfingin fordæmir ríkisstjórnina

Borgarahreyfingin - þjóðin á þing fordæmir ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna harðlega fyrir að ætla að ganga á bak orða sinna um persónukjör í komandi alþingiskosningum. „Boðað undanhald ríkisstjórnarinnar í málinu byggir á einni ósannfærandi álitsgerð um að 2/3 hluta atkvæða þurfi til að samþykkja frumvarpið um persónukjör,“ segir í yfirlýsingu frá hreyfingunni.

Innlent
Fréttamynd

Bjarni Ben: Betur borgið utan ESB

Niðurstaða Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum er sú að komast að sömu niðurstöðu og áður um að Ísland eigi ekki erindi í Evrópusambandið, sagði Bjarni Benediktsson formannsframbjóðandi á landsfundi flokksins í morgun. Mikil andstaða er við aðild Íslands að sambandinu á landsfundinum. Heimir Már Pétursson.

Innlent
Fréttamynd

Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag

Landsfundur Samfylkingarinnar verður settur síðdegis, þar sem nýr formaður verður kjörinn. Yfirskrift fundarins er: Vinna og velferð og er fundurinn haldinn í Smáranum í Kópavogi. Setningarathöfnin hefst klukkan fjögur og við hana heldur Ingibjörg Sólrún Gíslandóttir formaður Samfylkingarinnar ræðu, sem reyndar verður kveðjuræða hennar því sem kunnugt er lætur hún bæði af formennsku og þingmennsku.

Innlent
Fréttamynd

VG auglýsa eftir meðmælendum á netinu

Vinstri grænir auglýsa eftir meðmælendum með framboðslistum á vefsíðu sinni. Langt sé í land og lítill tími til stefnu. Vinstri græn njóta mikils stuðnings samkvæmt skoðanakönnunum þessa dagana.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu listabókstöfum úthlutað

Dómsmálaráðuneytið hefur úthlutað 11 stjórnmálasamtökum listabókstafi fyrir kosningarnar í vor. Þrátt fyrir það er ólíklegt að hægt verði að kjósa á milli 11 framboða í kosningum.

Innlent
Fréttamynd

Björn sammála Evrópunefndinni

„Ég er almennt þeirra skoðunar að efna beri til tveggja þjóðaratkvæðagreiðslna," sagði Björn Bjarnason í umræðum um skýrslu Evrópunefndar Sjálfstæðsflokksins á landsfundi flokksins í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn vilja þjóðaratkvæði um aðildarviðræður

Megin niðurstaða Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins er sú að ganga eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um hvort Ísland eigi að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Kristján Þór Júlíusson kynnti í dag niðurstöður nedndarinnar sem starfað hefur síðan í nóvember.

Innlent
Fréttamynd

Lúðvík skipar fimmta sætið í SV

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði mun skipa fimmta sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Listinn var samþykktur á fundi kjördæmaráðs í dag. Í fyrsta sæti er Árni Páll Árnason alþingismaður og í öðru sæti Katrín Júlíusdóttir alþingismaður. Listinn er annars skipaður eftirtöldum aðilum.

Innlent
Fréttamynd

Hitað upp fyrir varaformannsslaginn

Þeir Árni Páll Árnason og Dagur B. Eggertsson berjast um sæti varaformanns Samfylkingarinnar á landfundi flokksins sem fer fram um helgina. Ljóst er að baráttan verður hörð og má segja að tvær skoðanir á hlutverki varaformanns takist þar á.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri styðja Bjarna í formanninn

Bjarni Benediktsson nýtur stuðnings tæp sextíu prósent Sjálfstæðismanna til að verða næsti formaður flokksins samkvæmt nýrri skoðanakönnun Vísis, Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Kristján Þór Júlíusson hefur þó svipað fylgi og hann á landsbyggðinni.

Innlent