
Félagsmál

Vaxandi neyð hjá öryrkjum vegna veirunnar
Formaður Öryrkjabandalagsins segir að aldrei fyrr hafi það verið mikilvægara að fatlað fólk fái þá aðstoð sem það þarf og að örorkulífeyrir tryggi mannsæmandi líf.

Hafa áhyggjur af fólkinu í neyðarskýlunum
Deildarstjóri hjá veðferðarsviði Reykjavíkurborgar hefur miklar áhyggjur af húsnæðislausu fólki sem nýtir neyðarskýli borgarinnar, vegna kórónuveirunnar. Sjö manns eru skilgreindir íáhættuhópi og er hluti hópsins langveikt fólk með alvarlegan vímuefnavanda.

Hundruð manna fá ekki matargjafir
Mæðrastyrksnefnd verður lokuð næstu vikuna vegna kórónuveirunnar. Þeir verst settu geta beðið um neyðaraðstoð og framkvæmdastjórinn bindur vonir við að félagsþjónustan grípi hópinn.

Undirbúa aðgerðir sem snúa að viðkvæmustu hópum samfélagsins
Ásmundur Einar Daðason barna- og félagsmálaráðherra segist vona að upplýsingar varðandi áhrif útbreiðslu kórónuveirunnar á viðkvæmustu hópa samfélagsins verði gefnar út sem fyrst. Verið

Tryggingastofnun lokar afgreiðslunni vegna veirunnar
Afgreiðslu Tryggingastofnunnar hefur verið lokað og opnar ekki aftur meðan á neyðarstigi almannavarna vegna kórónuveirunnar er í gildi.

Kórónuveirusmit á sambýli fyrir fatlaða
Einn íbúi á sambýli fyrir fatlaða á höfuðborgarsvæðinu smitaðist af kórónuveirunni fyrir tíu dögum og veiktist fimm dögum síðar.

Tugir ofbeldismála gegn fötluðu fólki á borði réttindagæslumanna
Á fjórða tug ofbeldismála hafa síðasta árið komið á borð réttindagæslumanna fatlaðs fólks. Aðeins tvö og hálft stöðugildi réttindagæslumanns er á höfuðborgarsvæðinu og því stundum bið eftir þjónustunni

Þarf ekki að greiða leigu vegna umdeilds gistiskýlis sem komst ekki á koppinn
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Riverside ehf. og Útlendingastofnun af kröfum hvors annars í dómsmáli í tengslum við leigu á umdeildu gistiskýli fyrir hælisleitendur sem fyrirhugað var við Bíldshöfða.

Óttuðust að ófætt barn sitt fengi sama sjúkdóm
Guðrún Ósk Maríasdóttir og Árni Björn Kristjánsson berjast fyrir Halldóru dóttur sína.

„Snýst þetta um að þreyta mannskapinn?“
Formaður velferðarnefndar veltir fyrir sér hvort það sé réttmætt að aðeins þeim einstaklingi sem sótti dómsmál vegna ólögmætra skerðinga á ellilífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun fái greidda dráttarvexti á meðan aðrir sem urðu fyrir sömu skerðingu fá aðeins greidda almenna vexti.

Mikil uppbygging í þágu fatlaðs fólks í Reykjavík
Vinstri græn í borginni láta verkin tala.

Hrifin af hugmyndum um að opinbert sé hvaða tekjur fólk hefur
Forseti ASÍ sér ekki ástæðu fyrir því að leynd sé yfir launum.

Það er ekki svo einfalt að komast út af örorku
Þegar ég loksins náði tökum á öllum þeim krónísku kvillum og sjálfsofnæmissjúkdómum sem höfðu stýrt lífi mínu og líðan á síðustu árum og áratugum, þá fór ég að huga að því að afþakka þann stuðning sem ég hafði fengið frá ríkinu í formi örorkubóta á síðustu árum.

Aldrei hafa fleiri nýtt bótaréttinn erlendis
Vinnumálastofnun gaf á síðasta ári út rúmlega 1.400 leyfi til atvinnuleitenda til að leita sér að vinnu erlendis á sama tíma og þeir fá atvinnuleysisbætur greiddar frá Íslandi.

Búin að missa allt traust á þjónustu við fatlaða dóttur sína
Móðir fatlaðrar konu sem býr á sambýli í Garðabæ gagnrýnir sveitarfélagið fyrir skeytingaleysi í garð dóttur sinnar. Þrátt fyrir að hafa beðið í næstum tíu ár eftir að komast í íbúðakjarna fyrir fatlaða sé hún enn á biðlista. Þá hafi engin viðbrögð komið þaðan eftir að hún gleymdist í tvígang út í bæ.

Frambjóðendur til formanns í Félagi íslenskra rafvirkja útilokaðir frá störfum á meðan kosningabarátta varir
Harka hefur færst í formannsbaráttu Félags íslenskra rafvirkja. Sitjandi formaður og gjaldkeri félagsins, sem eru tveir í framboði, hafa verið útilokaðir frá skrifstofu og störfum félagsins þar til atkvæðagreiðsla hefur farið fram í næstu viku.

Segir sig sjálft að það gangi ekki að vera með 270 þúsund krónur útborgað
Helmingur allra leikskólabarna í Reykjavíkurborg var sendur heim þegar félagsmenn Eflingar lögðu niður störf í hádeginu í dag. Aðgerðirnar höfðu víðtæk áhrif í borginni.

3.500 leikskólabörn send heim á hádegi á morgun
3.500 leikskólabörn verða senda heim á hádegi á morgun vegna verkfallsaðgerða Eflingar. Enginn árangur náðist á samningafundi félagsins og borgarinnar hjá sáttasemjara í dag.

Maðurinn hrinti Guðríði í hangikjötspott á aðfangadag
Ógæfan hefur elt Guðríði Steindórsdóttur á röndum.

Segir of margt fatlað fólk búa á úreltum sambýlum
Formaður Landsamtakanna Þroskahjálpar segir að ef stjórnvöld vilji forðast að þurfa að greiða fólki með fötlun sanngirnisbætur í framtíðinni þurfi að bæta verulega aðbúnað og aðgengi þess að húsnæði.

Ráðherra segir málefni barna hafa setið á hakanum
Stjórnvöld hafa stofnað miðstöð sem er ætlað að halda utan um tölfræðiupplýsingar sem varða ofbeldi gegn börnum.

Engin greining á veikindum Brimis og engin úrræði í níu ár
Móðir ungs drengs, sem er langveikur, gagnrýnir heilbrigðisyfirvöld fyrir úrræðaleysi. Í níu ár hefur hvorki fundist greining á veikindunum né úrræði til aðstoðar. Færsla sem móðirin skrifaði á Facebook virðist hafa ná athygli heilbrigðisyfirvalda.

Fatlaðir fá sanngirnisbætur verði frumvarp að lögum
Áttatíu til níutíu fatlaðir einstaklingar sem voru vistaðir sem börn á stofnunum ríkisins fá þriggja til sex milljóna króna sanngirnisbætur vegna slæms aðbúnaðar verði frumvarp sem áætlað er að leggja fyrir vorþing að lögum.

Segir það skjóta skökku við að dæmdur barnaníðingur haldi forsjá barns
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hefur metið það svo að 13 ára barni manns, sem dæmdur var fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn öðrum börnum sínum, stafi engin hætta af því að búa með föður sínum. Lögfræðingur móðurinnar segir það skjóta skökku við að dæmdur barnaníðingur haldi forsjá barns.

Mikil aukning í samtölum við Hjálparsímann 1717: Atburðir í samfélaginu eins og óveðrið í desember hafði áhrif á kvíða fólks
Ráðgjafi Hjálparsímans 1717 segir sjálfsvígssamtöl sem berist orðin alvarlegri og þá fjölgaði slíkum samtölum mikið á síðasta ári. Atburðir í samfélaginu, eins og óveðrið í byrjun desember, hafi einnig áhrif á kvíða fólks.

Íbúar á tjaldstæðinu í Laugardal komast ekki á leigumarkað
Nokkrir íbúar á tjaldstæðinu í Laugardal hafa búið þar í þrjú ár og segjast ekki hafa kost á að fara á leigumarkað.

Ennþá vantar svæði fyrir tuttugu smáhýsi
Ekki er búið að finna stað fyrir tuttugu smáhýsi sem borgin hefur látið hanna fyrir fólk með sértækar þarfir. Formaður velferðarráðs segir að verið sé að skoða nokkrar staðsetningar. Deiliskipulagsferli hafi tafið fyrir og þá hafi komið fram áhyggjur hjá íbúum.

Öryrkjar fá 10 þúsund króna eingreiðsluna í dag
Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar sem eiga rétt á desemberuppbót fá í dag, á Þorláksmessu, greidda út 10 þúsund króna eingreiðslu sem Alþingi samþykkti í síðustu viku að greiða skyldi út til þeirra nú í desember.

Álitamál hversu langt á að ganga
Félags- og barnamálaráðherra segir álitamál hversu langt eigi að ganga í að festa rétt til fæðingarorlofs við annað hvort foreldrið. Þetta er eitt af því sem haft verður í huga þegar lenging fæðingarorlofsins verður útfærð.

NPA miðstöðin flytur úr Hátúni í Urðarhvarf
NPA miðstöðin hefur gert langtímaleigusamning á stóru rými í Urðarhvarfi 8 í Kópavogi. Ráðgert er að miðstöðin verði flutt úr Hátúni í nýja húsnæðið fyrir 1. apríl 2020.