Líkfundarmálið

Fréttamynd

Ó­trú­leg ó­heppni í sögu­legu saka­máli

Ótrúleg atburðarás fór af stað eftir að kafari fann fyrir algera tilviljun lík í höfninni í Neskaupstað. Fjölmiðlar fóru í kjölfarið hamförum í einu furðulegasta sakamáli síðari tíma sem einkennist af ótrúlegri óheppni.

Innlent
Fréttamynd

Líkfundamaður snýr aftur - aftur

Litháinn Tomas Malakauskas, sem var dæmdur í líkfundarmálinu á Neskaupstað árið 2005 er snúinn aftur til Íslands. Hann var gripinn á Leifsstöð þegar hann kom hingað til lands frá Danmörku 25. september.

Innlent
Fréttamynd

Líkfundarmaður ferðaðist á eftir­nafni konu sinnar

Tomas Malakauskas sem fékk dóm í Líkfundarmálinu svokallaða ferðaðist hingað til lands á eftirnafni konu sinnar samkvæmt heimildum Vísis. Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að greiningardeild embættisins hafi haft grunsemdir um að hann væri kominn hingað til lands og hafið leit að honum á mánudag ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra.

Innlent
Fréttamynd

Dómur í stórum málum

Nú klukkan fjögur mun Hæstiréttur kveða upp dóma í tveimur af helstu málum undanfarinna missera hér á landi: annars vegar Landssímamálinu svokallaða og hins vegar Líkfundarmálinu.

Innlent
Fréttamynd

Út í hött, segir Grétar

Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas.

Innlent
Fréttamynd

Dómur í líkfundarmáli ó­breyttur

Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári.

Innlent
Fréttamynd

Segjast sak­lausir af nánast öllu

Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast sýknu af nánast öllum ákæruliðum. Verjandi eins þeirra segir hægt að hugsa sér verri meðferð á líki en hafi verið í þessu tilfelli og verjandi annars segir að fyrst fórnarlambinu hafi ekki verið ljós sú lífshætta sem við blasti hafi sakborningum ekki átt að vera hún ljós.

Innlent
Fréttamynd

Þre­menningarnir krefjast sýknu

Tveggja og hálfs árs refsingar er krafist yfir Jónasi Inga Ragnarssyni, Grétari Sigurðssyni og Tomasi Malakauskas í líkfundarmálinu svokallaða en aðalmeðferð í Hæstarétti hófst í gær.

Innlent
Fréttamynd

Líkfundarmál fyrir Hæsta­rétti

Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða krefjast allir sýknu af ákæru um að hafa ekki komið Vaidasi Juciviciusi til aðstoðar í neyð og fyrir að fara illa með líkið af honum. Tomas Malakauskas viðurkennir hlut sinn í smygli á fíkniefnunum sem Jucivicius var með innvortis. Aðalmeðferð þessa máls hófst fyrir Hæstarétti í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Allir dæmdir í 2 1/2 árs fangelsi

Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða, Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Thomas Malakauskas, voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir voru ákærðir fyrir að koma Litháanum Vaidas Juceviciusi ekki til hjálpar í neyð, ósæmilega meðferð á líki hans og innflutning á tæplega 224 grömmum af amfetamíni.

Innlent
Fréttamynd

Fram­burður Jónasar þótti ó­trú­legur

Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas, þremenningarnir í líkfundarmálinu, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þeir voru fundnir sekir um fíkniefnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir illa meðferð á líki.

Innlent
Fréttamynd

Krefst tveggja ára fangelsis­dóms

Saksóknari í líkfundarmálinu krefst, að sakborningarnir þrír verði hver um sig dæmdir til að sæta að lámarki tveggja ára fangelsi, við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enn fremur taldi saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi vera hæfilega refsingu.

Innlent
Fréttamynd

2 1/2 árs fangelsi hæfi­legt

Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningar í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð í Héraðsdómi lauk rétt fyrir hádegi.

Innlent
Fréttamynd

Réttar­höld hefjast 18. októ­ber

Réttarhöld í líkfundarmálinu hefjast 18. október í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn hafnaði í dag kröfu verjenda um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hinn látna, Vaidas Jusevicius.

Innlent
Fréttamynd

Vilja sjúkra­skýrslur frá Litháen

Beiðni verjenda í líkfundarmálinu í Neskaupstað um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hugsanleg veikindi Vaidasar Jucevicius, var hafnað af dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í gær. Verjendurnir óskuðu eftir úrskurði í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Margt líkt með málunum

Litháinn sem situr í gæsluvarðhaldi vegna tilraunar til fíkniefnasmygls, kemur frá sama bæ og Vaidas Jucivicius, sem fannst látinn í höfninni í Neskaupsstað í febrúar. Margt er líkt með málunum tveimur.

Innlent
Fréttamynd

Stakk hann þrisvar

Grétar Sigurðarson, einn sakborninga í líkfundarmálinu, játaði fyrir héraðsdómi í dag, að hafa stungið lík Vaidasar Jusevisiusar þrisvar sinnum, en ekki fimm sinnum, eins og hann er ákærður fyrir. Grétar neitaði að öðru leyti sök í málinu, en það var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 14 í dag.

Innlent
Fréttamynd

Þing­fest í næstu viku

Mál vegna líkfundar Vaidasar Jucevicius í Neskaupstað verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 16. júní næstkomandi.

Innlent