Mál Helga Magnúsar Gunnarssonar
1 2 ›
Segir ákvörðun ráðherrans hafi ekki áhrif á stöðu sína Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari og Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari eiga eftir að ræða saman eftir að dómsmálaráðherra gerði kunnugt um að verða ekki við ósk Sigríðar um að víkja Helga Magnúsi frá störfum. Hún segir niðurstöðu ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ríkissaksóknari. Innlent 11.9.2024 06:24
Niðurstaðan í máli Helga Magnúsar „á brúninni“ Ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja vararíkissaksóknara ekki úr starfi þrátt fyrir hegðun hans var á „brúninni“ að mati sérfræðings í vinnurétti. Ómögulegt sé að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunni fyrir opinbera starfsmenn almennt. Innlent 10.9.2024 19:02
Stéttaskipt tjáningarfrelsi Í gær, mánudaginn 9. september sl. kom niðurstaða dómsmálaráðherra í máli vararíkissaksóknara, Helga Magnúsar Gunnarssonar. Vararíkissaksóknari eins og flest vita var áminntur og sendur í leyfi fyrir ítrekaða orðræðu, deilingar og „like“ á samfélagsmiðlum. Skoðun 10.9.2024 12:03
Dómsmálaráðherra hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir þungu fargi létt af sér eftir að dómsmálaráðherra tilkynnti að hann yrði ekki leystur frá störfum. Hann segist þó ekki ánægður með rökstuðning dómsmálaráðherra og að hún hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu. Ríkissaksóknari segir ekki unnt að upplýsa um næstu skref að svo stöddu. Innlent 10.9.2024 09:36
Ummælin óviðeigandi en Helgi Magnús sleppur Dómsmálaráðherra telur sérstakar aðstæður réttlæta ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, vararíkissaksóknara, sem séu þó til þess fallin að grafa undan trúverðugleika ákæruvaldsins. Hann verður því ekki leystur frá störfum. Helgi Magnús fagnar ákvörðun ráðherra og hlakkar til að mæta aftur til vinnu. Innlent 9.9.2024 15:39
Sigríður segir háttsemi Helga Magnúsar ekki sæmandi embætti ríkissaksóknara Ríkissaksóknari ítrekar að henni hafi borið að áminna vararíkissaksóknara vegna ósæmilegrar hegðunar fyrir tveimur árum og senda mál hans til dómsmálaráðuneytisins á þessu ári þegar hann hélt uppteknum hætti. Háttsemi hans hafi verið ósæmileg og ósamræmanleg embætti Ríkissaksóknara og varpað rýrð á embættið. Innlent 5.9.2024 19:22
Kannast ekki við fleiri líflátshótanir í garð Helga Magnúsar Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áréttar að ástæða þess að hún sendi mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara til dómsmálaráðherra sé ekki vegna persónulegs ágreinings. Hún hafi verið úrræðalaus eftir áminningu sem hún veitti honum árið 2022. Henni hafi ekki verið kunnugt um frekari líflátshótanir í garð Helga Magnúsar. Innlent 5.9.2024 13:15
Ákvörðun handan við hornið Dómsmálaráðherra ætlar að tilkynna ákvörðun sína varðandi Helga Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknara á allra næstu dögum. Þetta sagði hún eftir fund ríkisstjórnar í morgun. Innlent 3.9.2024 16:30
Fullviss að Guðrún standi með sér Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segist fullviss um að dómsmálaráðherra hafni beiðni Sigríðar Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, um að hann verði tímabundið leystur frá störfum. Innlent 29.8.2024 06:28
Helgi Magnús situr heima meðan Guðrún leitar sér ráðgjafar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra getur ekki sagt til um hvenær mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara verður afgreitt innan ráðuneytisins. Á meðan situr Helgi Magnús heima. Innlent 20.8.2024 12:59
Beiðnin afturkölluð og Helgi þarf ekki að skila lyklum Beiðni ríkissaksóknara um að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari skili lyklum að húsnæði embættisins, fartölvu og öðru slíku hefur verið afturkölluð. Helgi fékk tölvupóst þess efnis fyrir um fjórum klukkutímum en fékk svo annan fyrir hálftíma þar sem beiðnin var afturkölluð. Innlent 19.8.2024 18:42
Helgi beðinn um að skila lyklunum Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hefur verið beðinn um að skila lyklum og fartölvu til embættis ríkissaksóknara, að beiðni skrifstofustjóra embættisins. Hann telur þessa ákvörðun ólögmæta, en dómsmálaráðherra hefur ekki tekið ákvörðun í máli hans. Innlent 19.8.2024 17:53
Tvö þúsund þegar skrifað undir til stuðnings Helga Magnúsi Búið er að koma upp undirskriftalista á Íslandi.is til stuðnings Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara. Ríkissaksóknari hefur óskað eftir því að hann verði leystur af störfum vegna umdeildra ummæla í garð hinsegin fólks og útlendinga. Innlent 18.8.2024 11:33
Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki geta tjáð sig um mál vararíkissaksóknara á meðan málið er til skoðunar í ráðuneytinu. Hún hefur leitað sér ráðgjafar innan og utan ráðuneytis vegna málsins. Guðrún ræddi þetta mál, og fleiri, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 12.8.2024 08:57
Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Lögmaður Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara hefur sent dómsmálaráðherra bréf þar sem þess er krafist að áminning sem hann hlaut frá Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksóknara verði afturkölluð. Innlent 11.8.2024 13:25
Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Ríkislögreglustjóri segir hótunum í garð opinberra starfsmanna ekki hafa fjölgað svo um muni en tekur þó fram að árásir gegn þeim hafi aukist. Þessari þróun sé tekin alvarlega og unnið sé að því að tryggja öryggi lögreglumanna og annarra starfsmanna. Innlent 1.8.2024 12:18
„Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Helgi Magnús Gunnarsson vararríkissaksóknari segist hafa látið út úr sér orð sem hann hefði betur látið ósögð. Þrátt fyrir það segir hann að ekkert sem hann hafi sagt hafi kastað rýrð á störf hans hjá embættinu. Innlent 1.8.2024 11:12
Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn „Það má því segja að þau séu að verða þétt tvíeyki, Sigríður og Helgi Magnús,“ var skrifað í Viðskiptablaðið þegar Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson voru skipuð í embætti ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara árið 2011, en þar á undan höfðu þau verið saksóknarar Alþingis í málaferlum á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 1.8.2024 08:01
Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Þingmenn og fyrrverandi hæstaréttardómari eru á meðal þeirra sem hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara, um að leggja til við ráðherra að hann taki mál hans til skoðunar, og vísi honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 22:09
„Ekki við hæfi“ að dómsmálaráðherra tjái sig um mál Helga Dómsmálaráðherra telur ekki við hæfi að hún tjái sig um erindi ríkissaksóknara varðandi tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara meðan á málsmeðferð stendur. Innlent 30.7.2024 18:27
Vonar að ráðherra verði ekki við ósk Sigríðar Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari telur ekki að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari sé til þess bær að veita honum áminningu í starfi. Það vald liggi hjá dómsmálaráðherra. Hann segist vona að dómsmálaráðherra taki ekki til greina ósk Sigríðar um að taka mál hans til skoðunar, og vísa honum tímabundið frá störfum. Innlent 30.7.2024 17:53
Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir áminningu sem Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hlaut árið 2022 hafa snúið að nokkrum tilvikum um tjáningu hans, sem nái aftur til ársins 2017. Sigríður telur sér ekki heimilt að upplýsa nánar um þessi tilvik. Hún segir kæru á hendur Helga frá hjálparsamtökum hælisleitenda ekki tilefni þess að hún vísar máli Helga nú til ráðherra. Innlent 30.7.2024 13:45
Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Vararíkissaksóknari furðar sig á ósk yfirmanns síns um að dómsmálaráðherra taki mál hans til skoðunar, vegna ummæla sem hann lét falla í fjölmiðlum. Hann viðurkennir að hann hefði getað orðað hlutina öðruvísi, en telur ummælin ekki hafa verið yfir strikið. Innlent 30.7.2024 12:07
Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins skorar á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að fallast hvorki á varanlega né tímabundna lausn Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara frá störfum vegna ummæla hans um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Innlent 29.7.2024 22:09
Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hefur lagt til við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari verði leystur tímabundið frá störfum vegna kæru á hendur honum fyrir ummæli um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum. Helgi er afar ósáttur við viðbrögð yfirmanns síns og spyr hvort hún sé embætti sínu vaxin. Innlent 29.7.2024 15:59
Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara vegna ummæla sem hann lét falla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum og um Solaris-samtökin í síðustu viku. Innlent 24.7.2024 11:21
Gerir ættar- og meint hagsmunatengsl Odds að umtalsefni Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari gerir ættar- og meint hagsmunatengsl Odds Ástráðssonar lögmanns að umtalsefni í færslu á Facebook, þar sem hann bregst við gagnrýni Odds. Innlent 20.7.2024 11:27
„Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting“ Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir marga fegna því að sjá Mohamad Kourani bak við lás og slá. En þó hann sé ýkt dæmi erum við að flytja inn í stórum stíl menn sem gefa ekki mikið fyrir okkar samfélagsgerð og sáttmála. Innlent 16.7.2024 15:09
„Við erum bara að segja þeim að vinna vinnuna sína“ Embætti ríkissaksóknara hefur skipað Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu að ljúka rannsókn á fjársöfnun Semu Erlu Serdoglu, stofnanda Solaris, og Maríu Lilju Ingveldar Þrastardóttur Kemp, sjálfboðaliða samtakanna. Innlent 16.7.2024 10:50
Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Mohamad Kourani hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í OK Market í mars og fjölda annarra brota. Innlent 15.7.2024 11:03