Skoðun

Fréttamynd

Sátt um lausnir á vanda LSH

Það getur reynst erfitt að vera stór og taka til sín mikið af almannafé. Stærsta fyrirtæki landsins, Landspítalinn, með yfir 5.000 starfsmenn, hefur fundið fyrir því. Um það bil 9 prósentum af útgjöldum ríkisins er veitt til reksturs spítalans.

Skoðun
Fréttamynd

Hjörleifur fjaðralaus ósannindamaður

Okkur öllum sem er annt um náttúru Íslands ofbýður það þegar einstaklingar sem kenna sig við náttúruvernd nota rakalaus ósannindi í meintri baráttu sinni fyrir náttúruvernd.

Skoðun
Fréttamynd

Er tónlist annars flokks listgrein?

Það er í raun ótrúlegt að það skuli hafa viðgengist í gegnum árin að tónlist og ritlist séu skattlögð með misjöfnum hætti. Ég hef a.m.k. aldrei heyrt nein skynsamleg rök sem gætu réttlætt slíka mismunun. Mér er hulinn sá eðlismunur á tjáningarformunum sem slík tilhögun gæti mögulega grundvallast á.

Skoðun
Fréttamynd

Eru íslenskar byggðir í andarslitrunum?

Í grein þessari, sem er sú seinni, gera undirritaðir nokkrar athugasemdir við málsmeðferð og túlkanir Sigríðar Daggar Auðunsdóttur blaðamanns, í röð fréttaskýringa sem birtist í Fréttablaðinu og grundvölluð er á líkani sem sett hefur verið fram af Frank J. Popper og Deborah konu hans.

Skoðun
Fréttamynd

Fjarðarárvirkjun fyrirmynd

Sú mikla umræða sem verið hefur undanfarið um virkjunarmál og umgengni við náttúru Íslands kallar á ný vinnubrögð og nýja nálgun varðandi slíkar framkvæmdir. Ný virkjun í Fjarðará getur orðið þar til fyrirmyndar. Látum náttúruna hafa forgang en nýtinguna mæta afgangi.

Skoðun
Fréttamynd

Gagnslítil OECD-skýrsla

Í ljósi nýrra áherslna í rannsóknum og skýrslugerð er þó tímabært að stofnunin sé spurð hvort aðferðir hennar séu ekki úreltar. Þótt OECD leggi í orði áherslu á samtengingu félags- og efnahagslegra þátta verður hið efnahagslega alltaf ofan á. Oftrú á skýrslur sem unnar eru á afar þröngum forsendum er heimskuleg.

Skoðun
Fréttamynd

Um varnarmálin

Að mati greinarhöfundar hefur eina innlegg Samfylkingar í málinu verið kjökur yfir því að hafa ekki fengið nógu miklar upplýsingar á meðan hið viðkvæma og sögulega samningaferli átti sér stað.

Skoðun
Fréttamynd

Ákall til verndar Jökulsánum

Herförin gegn Jökulsám Skagafjarðar er komin á fulla ferð á ný. Á fundi skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar 19. sept. sl. samþykktu fulltrúar Samfylkingar og Framsóknarflokks breytingu á aðalskipulagstillögunni sem nú er til meðferðar hjá sveitarfélaginu: Skipulags og byggingarnefnd samþykkir að í aðalskipulagi verði gert ráð fyrir og sýnd möguleg svæði til virkjunar Héraðsvatna þ.e.a.s. við Skatastaði og Villinganes.

Skoðun
Fréttamynd

Heilbrigðismál og heilsufar þingmanna

Í vetur, á kosningavetri, verður að mínum dómi háð hörð barátta milli þjóðarinnar og stjórnmálanna um heilbrigðismál jafnt ungra sem aldraðra, með það markmið eitt að fá stjórnmálamenn til þess að skilja að þeir eru hluti þjóðarinnar og kunna sjálfir, eins og nýleg dæmi sýna, að vera háðir skjótri meðferð án biðlista. Í þeim árangri einum ætti sjálfkrafa að felast önnur nauðsynleg umbylting á núverandi stöðu mála í heilbrigðiskerfinu. Málið snýst um meðvitund en ekki peningavöntun.

Skoðun
Fréttamynd

Vistunarmat aldraðra og ráðvilla

Þingmönnum, embættismönnum í heilbr.- og tryggingaráðuneytinu og reyndar öllum áhugamönnum um málefni aldraðra, er vinsamlegast bent á að lesa greinar eftir framkvæmdastjóra Sóltúns, Önnu Birnu Jensdóttur, sem birtust af og til á síðum Morgunblaðsins seinni hluta síðasta árs og auðvelt er að nálgast.

Skoðun
Fréttamynd

Ofbeldi án refsingar

Því miður líta sumir enn svo á að vændi eigi að flokkast með frjálsum viðskiptum manna á milli en slík afstaða viðheldur völdum karlmanna yfir konum. Þau sem eru andsnúin vændi greinir líka á um leiðir en kvennahreyfingin hér á landi hefur sameinast um afdráttar­lausa afstöðu, að fara sænsku leiðina.

Skoðun
Fréttamynd

Árangurslaus peningastefna

Einn stærsti gallinn við núverandi framkvæmd peningastefnunnar er tímasetning vaxtabreytinga. Yfirleitt er talið þær taki 12-18 mánuði að ná fram fullum áhrifum. Flest bendir til að verulega verði tekið að hægja á efnahagslífinu eftir 1 ár. Þá er óheppilegt að fá fram full stýrivaxtaáhrif. Fullur þungi í peningastefnunni er einfaldlega of seint á ferðinni.

Skoðun
Fréttamynd

Hilmar Örn áfram í Skálholti!

Ég vona að kristileg sjónarmið og velvild í garð Hilmars, samstarfsfólks hans, samfélagsins og Skálholts verði til þess að uppsögnin verði dregin til baka. Samhygð og sátt þarf að ríkja um Skálholtsstað. Látum boðskap Guðs um kærleika, sátt og samlyndi vera leiðarljós okkar allra.

Skoðun
Fréttamynd

Námsefnisgerð fyrir grunnskóla

Heldur finnst mér Illugi gera lítið úr öllu þessu starfi þegar hann talar um að kennarar geti sjálfir búið til námsgögn og selt þau til annarra skóla. Það hljómar eins og þeir geti setið við tölvuna sína og samið texta, náð sér í myndir, prentað út, heft saman og selt til hinna skólanna.

Skoðun
Fréttamynd

Vatnajökull; eldrisi undir stjórn Landsvirkjunar?

Í Fréttablaðinu sunnudaginn 27. ágúst birtist ágæt umfjöllun um bráðnun um Vatnajökuls og áhrif á Kárahnjúkavirkjun. Þar er haft eftir Sveinbirni Björnssyni, sérfræðingi hjá Landsvirkjun, að síðasta flóð í Jökulsá á Brú, sem sé líkleg afleiðing af eldgosi undir jöklinum, liggi undir öskulagi frá árinu 1158.

Skoðun
Fréttamynd

Frelsi til kúgunar

Það að eitt og sama meðalið lækni alla sjúkdóma allra sjúklinga er nokkuð sem snákaolíusölumenn hvers konar hafa reynt að telja fólki trú um frá alda öðli, oft með skelfilegum afleiðingum. Þar fyrir utan hefur fyrirmyndin sjaldnast sjálf tekið inn eða notið tilætlaðs árangurs af meðalinu.

Skoðun
Fréttamynd

Styðjum Erlu Ósk til formennsku

Aðalfundur Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fer fram í dag og hefst kosning til formanns klukkan 15 og stendur yfir til klukkan 19. Tveir frambjóðendur hafa gefið kost á sér til embættis formanns og að baki hvorum frambjóðanda er 11 manna hópur sem býður sig fram til stjórnar­setu. Fyrirkomulag kosninganna er með þeim hætti að formannskjörið sker einnig úr um hvor hópurinn fer inn í stjórn félagsins.

Skoðun
Fréttamynd

Eignarrétturinn er ekki bara mikilvægur útgerðarmönnum

Eignarrétturinn er mikilvægur. Undir þessari yfirskrift er leiðari Fréttablaðsins 2. sept. sl. sem skrifaður er til stuðnings tryggari eignarrétti útgerðarinnar á aflaheimildum. Vísað er til þess að Ragnar Árnason prófessor áætli að ríkið sparaði sér um þrjá milljarða fái sjávarútvegurinn að ráða sér sjálfur án afskipta hins opinbera.

Skoðun
Fréttamynd

Smjörklípur

Þegar ljóst var að vinir ALCOA höfðu í tvígang leynt Alþingi grundvallarupplýsingum um geigvænlega hættu af því að byggja stíflur við Kárahnjúka og varðar ekki aðeins rekstur virkjunar heldur líka líf og heill fólks í byggðum neðan Hálslóns.

Skoðun
Fréttamynd

Dýraníð og lögin

Vegna frétta í fjölmiðlum af dýraníði (dyresex) vegna kynferðislegrar misnotkunar á íslenskum hesti í Danmörku vill Dýraverndarsamband Íslands koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum.

Skoðun
Fréttamynd

Gagnkvæm virðing, jafnræði og breytilegt samfélag

Ég las nýlega grein um konu í blaðinu þar sem hún vildi vita hvert íslenska ríkisstjórnin stefndi varðandi málefni innflytjenda. Hún kom með marga góða punkta í greininni sem væri við hæfi að skoða vandlega. Í mörgum löndum í Evrópu í dag er Evrópusambandið ásamt ríkisstjórnum, sveitarfélögum, félagasamtökum og almenningi að vinna hörðum höndum saman að því að kynna hugtakið ÞÁTTTAKA. Það er að segja að vekja almenning til umhugsunar á mikilvægi þess að hvetja og aðstoða alla í samfélaginu til að vera virkir þátttakendur óháð uppruna, trú, þjóðerni, kynþáttar, litarhætti, útliti o.s.frv.

Skoðun
Fréttamynd

Kæri Róbert

Við á Ríkisútvarpinu erum fullkomlega sammála því að þjóðin þurfi frjálsa og óháða fjölmiðla. Einmitt þess vegna vil ég senda þér nokkrar línur.

Skoðun
Fréttamynd

Kæri Jón

Okkur var sagt að við fengjum tvö til þrjú ár til þess að láta NFS sanna sig. Gefðu okkur tvö. Nú um mánaðamótin stóð til að við færum í dreifingu um allt suðvesturhornið. Ekki loka sjoppunni áður en búið er að opna hana til fulls. Í fullri opinni dreifingu er þetta viðskiptahugmynd sem gengur upp. En það tekur meiri tíma en 10 mánuði að sýna það.

Skoðun
Fréttamynd

Frelsi í stað ríkisafskipta

Þó er eitt atriði í þessu öllu sem hefur lítið breyst frá því að smásala hófst hérlendis. Það eru afskipti ríkisins. Skattar og tollar á vörur og þjónustu virðast ekki eiga sér nokkur takmörk. Það er staðreynd að nefnd á vegum ríkisins heldur uppi ofurverði með handstýringu á verði landbúnaðarafurða.

Skoðun
Fréttamynd

Þróunarfræði og frjálshyggja

Það að ætla að draga einhvern lærdóm af efnahagsþróun 20. aldarinnar án þess að taka með í reikninginn hvernig grunnurinn var lagður að velgengni Evrópu annars vegar, og að eyðileggingu margra þróunarlandanna hins vegar, nær náttúrulega ekki nokkurri átt, hvorki fræðilega né siðferðislega.

Skoðun
Fréttamynd

Birgir Tjörvi á villigötum

Birgi Tjörva finnst furðulegt að menn hafi ekki enn séð þetta skæra frjálshyggjuljós, af einhverjum dularfullum ástæðum trúi sumir enn því að frjáls markaður sé ekki leiðin til fullsælu fátækra ríkja. Kannski er ástæðan einfaldlega sú að veruleikinn er aðeins flóknari en fínu frjálshyggjulíkönin. Þau hæfa best draumaheimi, ekki raunveruleikanum napra.

Skoðun