Mál Julians Assange

Niðurstaðan hræðileg og nöturlegt að hana beri upp í dag
Dómstóll í Bretlandi úrskurðaði í dag að framselja megi Julian Assange stofnanda Wikileaks til Bandaríkjanna. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks segir niðurstöðuna hræðilega og hálf nöturlegt að hún skuli koma út á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna. Málinu verði mætt í héraði með nýrri áfrýjun og sé því alls ekki lokið.

Geta framselt Assange til Bandaríkjanna
Dómstóll í London sneri í dag við fyrri úrskurði undirréttar þar sem framsalsbeiðni Bandaríkjastjórnar vegna Julian Assange, stofnanda Wikileaks, var hafnað.

Assange fær að giftast barnsmóður sinni í fangelsinu
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur fengið heimild til að ganga að eiga barnsmóður sína, lögmanninn Stellu Moris. Athöfnin mun fara fram í fangelsinu þar sem Assange er haldið en dagsetning athafnarinnar er óákveðin.

Líf Assange í húfi og loforð Bandaríkjastjórnar innantóm
Dómstóll í Lundúnum tekur nú fyrir áfrýjunarbeiðni Bandaríkjastjórnar vegna framsals Julians Assange en framsalsbeiðninni var hafnað í upphafi árs. Ritstjóri WikiLeaks segir heilsu Assange vera í húfi og gefur lítið fyrir fullyrðingar Bandaríkjamanna um að Assange verði í öruggum höndum þar í landi.

Assange gæti afplánað dóm í Ástralíu
Bandarísk stjórnvöld segja að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, gæti fengið að afplána mögulegan fangelsisdóm í heimalandi sínu Ástralíu verði hann framseldur til Bandaríkjanna og sakfelldur þar. Áfrýjun vegna framsalskröfunnar er tekin fyrir í Bretlandi í dag.

Bandaríkjamenn freista þess enn að fá Assange framseldan
Tveggja daga réttarhöld hefjast í Lundúnum í dag, þar sem bandarísk stjórnvöld freista þess að fá ákvörðun dómstóla í Bretlandi varðandi Julian Assange hnekkt.

Skora á Bandaríkjastjórn að fella niður ákæru á hendur Assange
Hópur þingmanna úr fimm flokkum sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem skorað er á Bandaríkjastjórn að fella niður ákæru á hendur Julian Assange, stofnanda WikiLeaks. Hann situr nú í bresku fangelsi og á yfir höfði sér allt að 175 ára fangelsi í Bandaríkjunum, verði hann framseldur.

Heita því að vista Assange ekki við verstu aðstæður og leyfa honum að afplána í Ástralíu
Bandarísk stjórnvöld hafa heitið því að vista Julian Assange ekki við verstu aðstæður ef hann fæst framseldur frá Bretlandi. Þá yrði honum heimilað að afplána mögulegan dóm í heimalandi sínu, Ástralíu.

Snowden telur frétt Stundarinnar drepa málið gegn Assange
Bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden telur að frétt Stundarinnar um lygar íslensks vitnis bindi enda á mál bandarískra yfirvalda gegn Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Kjarni ákærunnar gegn Assange tengist þó ekki framburði íslenska vitnisins.

Assange ekki sleppt gegn tryggingu
Julian Assange, stofnanda Wikileaks, verður ekki sleppt úr fangelsi gegn tryggingu að svo stöddu. Þetta var ákvörðun dómara í London eftir að verjendur Assange höfðu krafist þess að honum yrði sleppt.

Kristinn um úrskurðinn í máli Assange: „Ákvörðunin var rétt en á röngum forsendum“
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segist finna fyrir miklum stuðningi við málstað Julians Assange, stofnanda Wikileaks. Í dag úrskurðaði dómari í dómsmáli gegn þeim síðarnefnda, um að hann skyldi ekki framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna.

Assange ekki framseldur til Bandaríkjanna
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verður ekki framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Þessi úrskurður bresks dómara var opinberaður fyrir skömmu. Assange, sem er 49 ára gamall, á allt að 175 ára fangelsi yfir höfði sér í Bandaríkjunum.

Réttarhöldunum frestað vegna kórónuveirunnar
Réttarhöldum yfir Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, í Lundúnum hefur verið frestað fram á mánudag. Óttast er að einn lögmanna hans gæti hafa smitast af kórónuveirunni.

Assange skipað að hafa sig hægan í dómsal
Dómari í London varaði Julian Assange, stofnanda Wikileaks við því að hann yrði fjarlægður úr dómsal og réttað yrði yfir honum fjarstöddum ef hann héldi áfram að trufla réttarhöldin í dag.

Dagur mikilla vonbrigða
Réttarhöld yfir Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, hófust á ný í Lundúnum í dag.

Réttarhöld hefjast á ný yfir Julian Assange
Réttarhöld hefjast að nýju í dag í London yfir Julian Assange, stofnanda Wikileaks, en tekist er á um það hvort það skuli framselja hann til Bandaríkjanna þar sem hann gæti átt yfir höfði sér 175 ára fangelsi.

Assange gat tvö börn þegar hann bjó í sendiráði Ekvador í Lundúnum
Julian Assange eignaðist tvö börn á laun á meðan hann bjó í ekvadorska sendiráðinu í Lundúnum. Frá þessu greindi Stella Morris sem segist hafa verið í ástarsambandi með WikiLeaks stofnandanum frá 2015 og að hún hafi alið syni þeirra tvo upp ein og óstudd.

Assange neitað um lausn gegn tryggingu
Dómstóll hafnaði kröfu lögmanna Julians Assange, stofnanda Wikileaks, um að hann verði látinn laus gegn tryggingu í dag. Lögmennirnir héldu því fram að sleppa bæri Asssange vegna þess að hann væri í sérstakri hættu af kórónuveirunni.

Segja Assange sæta illri meðferð í fangelsi
Lögmenn stofnanda Wikileaks segja að hann hafi ítrekað verið handjárnaður og berstrípaður eftir fyrsta dag réttarhalda um framsal hans til Bandaríkjanna í gær.

Assange sakaður um að hafa sett líf fólks í hættu
Tekist er á um hvort framselja beri stofnanda Wikileaks til Bandaríkjanna fyrir dómi í Bretlandi í morgun.

Trump sagður hafa boðið Assange náðun gegn vitnisburði
Lögmaður stofnanda Wikileaks vísaði til vísbendinga um að honum hefði verið boðin náðun þegar mál um mögulegt framsal hans var tekið fyrir í breskum dómstól.

„Það er einfaldlega verið að murka lífið úr þessum manni á meðan við aðhöfumst ekkert“
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, hefur miklar áhyggjur af Julian Assange, stofnanda Wikileaks og þekkir hann ekki lengur fyrir sama mann vegna þeirrar meðferðar sem hann hefur sætt.

Segja Assange svo veikan að hann „gæti dáið í fangelsi“
Yfir sextíu læknar hafa skrifað undir opið bréf þar sem þeir lýsa yfir alvarlegum áhyggjum af heilsufari Julians Assange, stofnanda Wikileaks, sem situr nú í öryggisfangelsi í Lundúnum.

Segir meðferð nauðgunarásakana á hendur Assange ekkert annað en réttarfarslegan skandal
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir mál saksóknara í Svíþjóð gegn Julian Assange, stofnanda Wikileaks, réttarfarslegan skandal. Saksóknarar í Svíþjóð hafa lagt niður rannsókn á máli Assange sem var grunaður um nauðgun.

Saksóknari í Svíþjóð leggur niður rannsókn á máli Assange
Saksóknarar í Svíþjóð hafa lagt niður rannsókn á máli Julian Assange en hann hefur verið þar grunaður um nauðgun.

„Ég er hryðjuverkamaður að mati Bandaríkjastjórnvalda“
Þann 11. apríl síðastliðinn var Julian Assange stofnandi Wikileaks, handtekinn af bresku lögreglunni í Sendiráði Ekvador í London þar sem hann hafði fram að því notið pólitískrar verndar í sjö ár.

Fylgdust með Assange allan sólarhringinn
Spænska öryggisfyrirtækið Undercover Global S. L. deildi myndböndum og hljóðskrám af fundum Julian Assange með lögmönnum sínum og öðrum með leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA.

Assange verður áfram í fangelsi í Bretlandi
Dómari taldi verulega hættu á að Assange hlypist aftur á brott eins og hann gerði fyrir sjö árum þegar hann leitaði hælis í sendiráði Ekvadors.

Skaðabótagreiðslan kemur sér vel í framsalsmáli Julian Assange
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segir skaðabótagreiðslu sem SSP fá greidda verið notuð til uppbygginga á starfseminni. Hann segir hana koma sér vel til að standa strauma af lögmannskostnaði sem kann að fylgja framsalsmáli Julian Assange en það verður tekið til meðferðar í Bretlandi í lok febrúar á næsta ári.

Pamela óskaði Assange til hamingju með daginn og líkti honum við Mandela
Leikkonan Pamela Anderson sem gerði garðinn frægan í Baywatch þáttunum vinsælu óskaði í gær góðvini sínum Julian Assange til hamingju með 48 ára afmælið með mynd af þeim tveimur á Instagram